Tíminn Sunnudagsblað - 13.01.1963, Síða 2
Þegar unnið var aö bókinni
„Sommerfugler fra hele ver-
den“, sem íjallar — eins og
fram kemur í bókartitlinum —
um fiðrildi frá öllum heimshlut-
um og hefur að geyma ýmiss
konar fróðleik, auk vísindalegra
athugana, um þessi skordýr,
kom oftar en einu sinni í Ijós,:
að nauðsynlegt er að skilja á
milli hinna líffræðilegu atriða í
lífsháttum þessara dýra og
áhrifanna, sem þau hafa haft á
Myndirnar eru allar af færeyskum fiBriltfum. Hér að ofan er Herse convolvuli L.,
er Færeyingar nefna kóngafiðrildi.
FIÐRILDI / HJÁTRÚNNI
goðafræði og alþýðutrú gegnum
aldirnar. Til þess að leiða þessi
áhrif í ljós, þyrfti að skrifa sér-
stakt rit um þennan þátt fiðr-
ildafræðinnar En hér á eftir
fara nokkur sýnishorn um það.
hvernig menn á ýmsum tímum
og ólíkum stöðum í heiminum
hafa tengt þessi fögru skordýr
hjátrúnni.'
Skordýrin, og þó sérstaklega fiðr-
ildin, hafa verið ríkur þáttur í hjá-
trú kynslóðanna svo langt aftur í
aldir, sem sögur greina. Mörg þeirra
eru meira að segja guðaættar eins
og til dæmis skortítan, sem sam-
kvæmt hinni giísku goðafræði var
eitt sinn fagur unglingur, sem naut
ástar gyðju einnar. Hún sárbændi Seif
um að gefa ástvini sínum eilíft líf, en
hún gleymdi að biðja honum eilífrar
æsku og varð því ag horfa upp á
hann verða eilinni ag bráð, þótt
hann slyppi við dauðann Að lokum
hrærðist hig harða hjarta föður guð-
anna, Seifs, <il meðaumkunar, og
hann umskapaði unglinginn í skor-
títu.
í fornöld var fiðrildið tákn Psyche,
sem guðinn Amor elskaði, og er í
rauninni mannssálin. Þessi hugmynd
er þekkt um alian heim. En elzta frá-
sögnin um fiðnldi í heimsbókmennt-
unum á rót sína að rekja til Kína og
er frá fimmtu öld fyrir Krist. Einn
af lærisveinum hins mikla spekings
Lao-tse, sem hét Tshuan Sang,
dreymdi eitt smn, að hann væri kál-
fiðrildi, og meistari hans skýrði
drauminn á þann veg, að fiðrildið
væri tákn liinnar ódauðlegu sálar
hans. í hugmyndaheimi hinna fornu
Egypta var fiðrildig einnig sálin, sem
hafði yfirgefið bústað sinn, manns-
líkamann, og senmlega hefur þessi
hugmynd borizt frá þeim til Grikk-
1. Pyrameis atalanta L. (aSmíráls
fiðrildi). — 2. Pyrameis cardui
(þistilfiðrildi). — 3. Vanessa 10 L.
(páfuglafiðrildi). — 4. Vanessa
urticae L.
26
T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ