Tíminn Sunnudagsblað - 24.03.1963, Blaðsíða 3

Tíminn Sunnudagsblað - 24.03.1963, Blaðsíða 3
BARN. yffiiWíH ÞAÐ BAR VIÐ í lebrúarmán- iiði árig 1848, að nokkrir bændur í Árneshreppi á Ströndum mönn- uðu áttæring og héldu x hákarla- legu, svo sem mun haia verið al- s'.ða þar um slóð'ir. Þurfti karl- mennsku allmikla til slíkrar sjó- sóknar um hávetur, þegar allra veðra var von. Ef veður leyfði, var oft legig dögum saman norður í hafi, og hefur slíkt verið ærið kaldsamt, því að ekkert skýli var á hákarlaskipunum og - engin völ á voigum bita né sopa. Ef blundað var, urðu menn að halla sér í sjó- kiæðunum að bátssúðirui undir berum himni, og hressingin, sem kostur var á. þegar þeir vöknuðu af siíkum blundi, var sýrublanda eða kannski brenniv'nssopi. Hákarlaskip það, sem hér verð- ur sagt frá, virðist hata verið frá Krossnesi. Voru á því bændurnir þar, Magnús Jónsson cg Grímur Jónsson, en tvennum sögum fer af því, hvor þeirra var formaður. En voru í förinni Sveinn bóndi Dagsson á felli og sonur hans, Dag- ur að nafni. Loks eru tilgreindar tvær konur, Jófríður Hansdóttir og Rannveig nokkur Trúlegt hefði virzt, að hákarla- legur hefðu ekki verið taldar við hæfi kvenna, svo harðsóttar sem þær voru. En hér var þó annað uppi á teningnum. Það var ekki að- ems, að þessar tvær konur færu í hákarlalegu í þorraiokin, heldur var önnur þeirra vanfær — meira að segja komin að falo Sú konan, sem svo var á- síatt um, var Jófríður. Faðir henn- ar, Hans Guðmundsson, er kallað- ur var askasmiður, var sonur séra Guðmundar Bjarnasonar í Árnesi. Hafði Hans búið alllengi á Gjögri, en mun hafa verig örrnauður, og hætti hann búskap löngu áður en hér var komið. Fór þa oóttir hans í vistir, og hafði hún um skeið verið vinnukona í Krossnesi hjá Magnúsi Jónssyni jg Guðbjörgu Jénsdóttur, konu hans. En svo fór, sem stundum vildi verða, að hún varð vanfær í þessari visi, og var pað Magnús, húsbóndi hennar, er hafði gert henni þungann. En ekki var sá hégómi látinn standa í vegi fyrir því, að hún færi í há- karlalegu. Hefur Jóíriður vafa- laust verið mikil tápkona, enda átti hún kyn til þess. Morguninn, sem lagt var af stað. kvartaði Jófríður þó um lasleika, og hefur þá ef til vill venð nokkur kvíði í henni. Eigi ag síður stei.g hún á skipsfjöl, og var siðan hald- ið rakleitt á hákarlamiðin. Þegar á jniðin kom, var lagzt við stióra og vöðum rennt í sjó. Ekki er þess getið, hve lengi hafði verið legið á miðunum, er Jófríðui tók jóð- sótt. En það gerðist 24. dag febrú armánaðar. Hákarlamennirnir létu sér lítt bregða. Var búið um Jó- fríði í þátnum og leitazt við að tjalda þar yfir hana, og veitti Rann veig henni þá hjúkrun, sem hún mátti. Innan stundar ói Jófríður lieilbrigt og fullburða meybarn, og virðist fæðingin hafa gengið greiðlega. Þótt konur á Ströndum kveink- tiðu sér lítt við ag fara í hákarla- iegur, fæddu þær ekki at sér svo harðgerar dætur, að opið hákarla- skip á rúmsjó væri beinlínis við þeirra hæfi þegar á fysta dægri. Auk þess var hér ekkt handbært neitt það, sem við þótti þurfa. þegar barnsburg bar a'ð Hákarlamönnunum varð samt kki ráSafátt. Þeiir tóku af sér írefla og klúta, er vaftð var utan um barnið, og sumir lögðu til af sír bolflíkur. Grimur '. óndi Jóns- son fór úr skinnpeysu loðinni, sem Jiann hafði haft sér til skjóls í bttkarlalegunni, og í hana var iitiu stúlkunni stungið. Lagði þannig hver til einhverja flik, er hann gat af sér reytt Þó segja sumir, að einn hafi sá verið á fkipinu, er ekkert lagöi til: sjálfur bamsfaðirinn. En hér gætir kann- ski meiri illkvittni en réttmætt cr í garð bóndans, sem fór með ■'innukonu sína nálega jóðsjúka i hákarlalegu. Er auðfundið á þess- ari munnmælasögu, nvort sem hún er sönn eða login, að honum hefur legið á hálsi af sveitungum sinum — og ekki að ástæðulausu. Sumir segja, að þegar hafi ver- ig tekinn upp stjóri og haldið til lands með konuna og barnið. Aðrir lelja, að enn hafi verið legið skamma hríð, en lands leitað, er veður spilltist. Skiljaniega hefur ekki þótt gott að hverfa heim af miðunum meg lítinn afla. En hvort sem um það hefur þingað lengur eða skemur, þá virðist nokkuð hafa á bjátað.» heimleið- inni. Er -þag í sögnum. að komið hafi verið dimmviðri með þoku og báturinn villzt af réttri leið. Svo er að minnsta kosti +aiið, að hann Iiafi tekið land á Finr.bogastaða- sandi í Trékyllisvík, en þar er íending góð í skjóli v.ð Árnesey, þótt stormur sé af norðri og illt : sjó. Landtakan heppnaöist vel. Voru þær mæðgur, Jófríður og dóttir hennar, færðar heim ag Finnboga- stöðum. Þar bjó þá Magnús Guð- mundsson, sveitarhötðingi í Ár- neshreppi. Kona hans, Guðrún Jónsdóttir, veitti hinum óvæntu gestum hjúkrun alla cg aðhlynn- ingu, svo sem hún framast kunni, enda ekki á hverjum degi, að sængurkona norðan af hákarlamig um tæki land með nýfætt barn sitt á Finnbogastaðasandi. Dvöld- ust þær mæðgur á Finnbogastöð- um, unz móðirin var fcrðafær. — Hafa sennilega ekki liCið margir dagar, áður en hún fór á stjá, því eð þeim mæðgum báðuni heilsað- ist prýðilega. Litla stúlkan var va‘rJ ausin og nefnd Guðrún. Ekki getur neinn hrósag sér af því að vera niðji hennar. Hún varð ei.ki langlíf. Hún andaðist í Ingólfsfirði 19. roarz ári síðar En það er af Jófríði að segja, ag hún giftist nokkru seir.na vinnu- manni emum í Dalv>k, Guðmundi að nafni, launsyni Sveins Arnfinns sonar, er bjó á Kárastöðum i Borgarhreppi og víðar í lágsveit- um Mýrasýslu. (Helztu heimildir: — Blanda. Strandamannabók. eftir Pétur Jónsson frá Stökkum, Stranda menn, eftir séra Jón Guðnason) TÍMINN - SUNNUDAGSBLAO 267

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.