Tíminn Sunnudagsblað - 24.03.1963, Page 4

Tíminn Sunnudagsblað - 24.03.1963, Page 4
Byggingarlis' hefur verið til á ís- landi um lansan aldur, í misríkum ;■ mæli þó, en skammt er síðan til varð u stétf manna hér á landi, sem kennir ?. sig við hana: — arkitektar. Og það V er ekki fyrr en á allra síðustu tímum, ■í að þeir haía sett mörk sín á íslenzk > byggingarmál. En þótf, þessi stétt v sé ung í þjóðfélaginu, hefur hún þó ' vakið á sér mikla athygli, — ef til vill fyrst og fremst vegna þess, að verk hennar — að minnsta kosti þau, sem ekki hafna á botni skrif- borðsskúffunnar — eru sífellt fyrir augum almennings og stór hluti hins daglega lífs. Sí og æ er lagður dóm- ur á þessi verk, beint eða óbeint. Þau kalla dóminn yfir sig með útliti sínu og öðru, sem er samofið þeim áhrif- um. er þau haia Arkitektinn stendur og fellur með f'úsi sínu og hann gerir sér það ljóst. Þess vegna reynir hann að gefa verkt sinu það, sem hann heldur. að verði þvi helzt til gildis. í Ávöxt þessa'ar viðleitni sjáum við ; vegfarendur ; mörgum þeirra bygg- i inga, sem risjð haia upp undanfarin ár og áratugi Ávöxtinn er ekki tréð sjáum við. og þaðan af síður rætur þess, sem Þggja ttl margra stofnana, einstaklinga og starfshópa. Og þótt endur fyrir löngu hafi verið sagt við okkur; af ávöxtunum skulið þið þekkja þá, er stundum fróðlegt að fá svolitla skráargatsinnsýn til þess, sem á bak við er. — Þess vegna lallaði ég til Gunnlaugs Halldórssonar arki- tekts og kom honum að óvörum við iðju sína. — Það er voðalegt hlutskipti að þurfa að skilja eftir sig hverja skissu í jafn varanlegu efni og byggingum, segir Gunnlaugur. En það hvetur mann líka til þess að reyna að gera vel, og þegar allt kemur til alls er það hið bezta í verkum manna, sem ber þeim vitni. þegar fram líða stund- ir, en ekki hið versta. Það er svo um allar listgreinar. — Þú ert öruggur á því, að þetta sé listgrein? — Já, en þessi listgrein hefur auð- vitað allt annað gildi en aðrar list- greinar, því að hún er hagnýf og þar af leiðandi ekki eins óháð og aðrar listgreinar En það, sem knýr fram sköpun arkitekisins er það sama og hjá öðium listamönnum — að láta ejtthvað eftir sig sem lifir sem lengst. — Getur þetta minnisvarðasjónar- mið ekki verið hættulegt, leitt til bruðls? — Það getur hugsazt, en það er ekki bruðlið, sem lifir, heldur hið sanna menningargildi byggingarinn- ar. Bruðlið er þegar farið að dæma í lifanda lífi arkitektsins, og í aug- um framtíðarinnar verður það aldrei annað en hjóm. Enginn byggir var- anlegan minnisvarða á þeim grunni. Hitt er annað, að oft líð'ur langur tími, þar til byggingar öðlast þegn- rétt í umhveríinu. Það er oft ekki hægt að sjá samstundis, hvort hún er fulltrúi varar.legs menningarg’ldis. Svo það er eins gott að dæma varlega. — Græða arkitektar ekki á tá og fingri? — Það er þörf fyrir marga arki- tekta hér á landi, ef rétt er á haldið, og þeir sem t'yrir eru, þurfa ekki að kvaita. En afkoman hefur aldrei ver- ið aðalatriði í augum þeirra arkitekta, sem meta köllun og starf einhvers, — ekki frekar en hjá öðrum listamönn- um. — Þú ert þá kannske harðánægður með byggir.garmálin í landinu? — Nei, því fer fjarri. Þótt við megum vel nna við okkar hag, er Glaumbær í Sltagafirði. Raett við Gunnlaug Hall dórsson, arkitekt 268 T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.