Tíminn Sunnudagsblað - 24.03.1963, Síða 5

Tíminn Sunnudagsblað - 24.03.1963, Síða 5
byggingarmálum þjóðarinnar síður' en svo vel stjórnað, og þetta er mörgum umhugsunarefni. Það eru 35 arki- tektar á íslandi — allir í Reykjavík — og við teiknum nú orðið um helm- ing allra bygginga í borginni (fyrir nokkrum árum ekki nema einn fimmta), en hverfandi lítið utan henn- ar, og er það satt að segja óviðun- andi ástand fyrir þjóðarheildina, og þó leiðast fyrir þá stétt, sem öðr- um fremur ætti að eiga hlut að máli. — Hver er ástæðan fyrir þessu? — Sumpart lagasetning og fram- kvæmd laga um byggingarmál — og svo hugsunarleysi um stjórn íslenzkra byggingarmála. — Nú ertu að blanda pólitík í mál- ið. — Já, en það verður þá að hafa það. — Tökum til dæmis 'sveitirnar, — Það er sömu sögu að segja þar, því miður. Teikningar mega aldrei kosta neitt. Það er meinið. Það eru gerð lög um það á Alþingi, en það gengur öllu verr að létta af tollum og sköttum, sem snerta nýbyggingar. — Gæði húsnæðismálastjórnarteikn- inga er ekki í réttu hlutfalli við lengd þessa mikla orðs og þótf þær kosti ekki mikið, kunna þær samt að reynast dýrar. Af þessu sérðu, að ekki er auðvelt fyrir arkitekta að rækja hlutverk sitt og setjast að ut- an Reykjavíkur og keppa þar við fjölritunarskrifstofur í Reykjavík, sem lítið eða ekkert taka fyrir iðju sína og hafa tekjur sínar annars staðar frá. Það á að búa þannig í haginn, að þjóðin öll geti notið sinna arkitekta, því að það er þeirra skylda að ann- þú ert þó varia mjög á móti Húsa- meistaraskrifslofunni og skipulags- slcrifstofunni? — Skipulagsmál verða að vera í höndum þess opmbera — það er rétt, og þeim miðar í rétta átt. En fleiri verða að koma til. Það er ekki til hagsældar, að einn maður setji fanga mark sitt á alla byggð landsins hversu góður starismaður sem hann er. — Um Húsameisiaraskiifstofuna gegnir öðru máli: Þeiia embætti var stofnað til þess að tryggja starfskrafta Rögn- valds Ólafssonar og Guðjóns Samú- elssonar og það var nauðsynlegt og ágætt. En þessi forsenda er ekki leng- ur fyrir hendi Nú gæti ríkið valið úr allri stéttinni eftir þörfum. Það hlýtur að vera betra, og það gæti eftir sem áður notfært sér þá ágætu starfskrafta, sém hjá -því starfa nú. “'.//<|VWVU' • .1 ‘rg- ^ * 5AUHÐÆB - E YJAftRÞI sem þér standa sennilega nær hjarta en sjávarsíðan; Teiknistofa bygging- ar- og landnámssjóðs á að segja fyrir um, hvernig á að byggja upp landið utan kaupstaða, að undanskildum opinberum byggingum — og það meira að segja ókeypis. Arkitektum er þar ekkert hlutverk ætlað. Það væri, sjáðu til, kannske hægt að stjórna landinu án stjórnmálamanna, en það er öruggt, að byggingarmenn- ing verð'ur ekki til í sveitum lands- ins á ný án arkitekta. Hópur góðra arkitekta þarf að starfa að uppbygg- ingu sveitanna í samkeppni — eða samvinnu, vildir þú víst heldur. — Ekkert skrifstoíueinræði; það stend- ur aðeins í vegi fyrir þróun málanna. Eg veit að þetta er vel meint og góð- ir haenn að verki, en þetta er mál allrar þjóðarinnar. Það er ekkert markmið fólgiö í því að rembast eins og rjúpan við staurinn. — Ertú jafn gagnrýninu á sjávar- síð'una? ■ t ■ ast byggingarlist í landinu. Ef ekki er hægt að losna við þessar stofn- anir, þarf að minnsta kosti að breyta þeim. Einkum þairf að losa lán- veitingar úr tengslum við þær, — að öðrum kosti má búast við, að veð- deild Landsbankans fari líka af stað! — En ertu ekki ánægður með lög- gjöfina um verkamannabústaði? — Það er ágæt löggjöf og vel aí stað farið. en raunverulega eru þau mál, sem falla undir hana, sama markinu brennd og það sem ég gat um áðan: — Mér vitanlega hafa eng- ir arkitektar aomið nálægt málum, sem varða byggingu verkamannabú- staði í fjölda ára að minnsta kosti ekki hér í bæ. Einn ágætur trésmið- ur hefur það að tómstundaiðju að teikna verkamannabústaði Reykjavík ur, en í lögum stendur auðvitað: Rík- isstjórnin lætur gera fyrirmyndar- uppdrætti o s. frv. — þarna sérðu lög og túllcun þeirra — Þú ert herskár þykir mér. En í stað þessa embættis ætti að vera deild í stjórnarráði, sem skipulegði byggingarstarfsemi ríkisins og hefði að sjálfsögðu litla en góða teikni- stofu til einstakra verka og trúnaðar- starfa. Eg veit, að þetta, sem ég hef nú sagt, lítur út eins og ég sé að reka áróður fyrir réttindum okkar arkitekt- anna, en það er samt ekki tilfellið Það er nefnilega meginatriði, að þessi skilyrði séu í lagi, svo að byggingar- list geti þróazt i landinu. Við megum ekki gleyina, að við eðlilegar aðstæð ur vara byggingar lengur en ein kyn slóð. Þegar kynslóðin er öll, eiga byggingar að bera menningu þjóðar- innar vitm, en ekki vitna um ástand nokkurra skrifstofa í Reykjavík. — Heldurðu, að íslendingar standi öðrum þjóðum að baki í byggingar- list? — Eg held eKki, að arkitektar hér séu verri en annars staðar, og þeir Fratnhald á 285. síðu. T í H 1 N N — SUNNUDAGSBI AÐ 269

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.