Tíminn Sunnudagsblað - 24.03.1963, Page 6

Tíminn Sunnudagsblað - 24.03.1963, Page 6
PETER FREUCHEN MARTRÖÐ ÉG ÁTTI HEIMA í Thúle, þegar heimsstyrjöldin fyrri geisaði. Allt samband við önnur lönd rofnaði. — Ekkert skip komst svo langt norður á styrjaldarárunum, og þá var ekki til útvarp, sem flytti fréttir landa á milli. í Thúle var friður og kyrrð — friður til þess að vinna og hugsa. Ég afréð ag halda lengra norður með fáeinum vinum mínum af kyni Eskimóa, allt til nyrztu mannabyggða. Erindi mitt var að kynnast háttum Eskimóa, þegar þeir fengu engan varning frá öðrum löndum og urðu að öllu leyti ag bjargast á eigin spýt- ur. Ég var eini hvíti maðurinn þeirra á meðal. En það kom í sama stað nið- ur, hve lengi ég bjó meðal þeirra, og hve vel ég reyndi að tileinka mér lifn aðarhætti þeirra, daglegar venjur og veiðiaðferðir. Ég gat ekki án þess verið að leita mér hugarhægðar í bókum. Þess vegna tíndi ég saman fullan kassa af bókum, þykkum og þungum. Eg valdi rit, sem gátu orðið mér til einhverrar fræðslu í einverunni, og þörfin á að hafa eitthvað til þess að hugsa um knúði mig til þess að lésa bækur, sem mér hefði annars varla komið til hugar ag opna. Ég ruddi mörgum bókum af slíku tagi niður í kassann og bjó um þær á sleðanum sem best ég kunni. Allmargir Eskimóar slógust í för- ina. Við höfðum ágætan fararbúnað, og allir vorum við í bezta skapi, þeg- ar við lögðum af stað. Leið okkar lá fyrir Parryhöfða. Framundan höfð- anum er ísinn mjög viðsjárverður, og flesta mánuöi ársns verða ferða- menn að ,'eggja ieið sína yfir jökul- ii;n míkla ’ð bíi'ki höfðans og íara síðan niður á ströndina norðan han.s. Það er mikill krókur, og jökulferð- irnar voru jafnan erfiðar. Vig vorum á einu máli um það, að við skyldum freista þess að komast fyrir framan við höfðann, þótt varhugavert væri, því að þannig gátum við sparað tíma og fyrirhöfn. Við sáum för eftir sleða, er farið hafði þessa leið nokkr- urn dögum áður, og við gerðum okk- ur vonir um, að ísinn væri sæmilega tryggur. Við komumst þó fljótt ag raun um annað. Það sannaðist, að hyggi- legra hefði verið að taka á sig krók- inn og fara yfir jökulinn. ísinn varð sífellt þynnri og þynnri. Hvað eftir annað sáum við, að vakir höfðu mynd azt, þar sem sleðinn hafði farig fyr- ir fáum dögum, en síðan hemað yfir þær á ný. En við létum það ekki á okkur bíta, því að á einni nóttu frýs svo í hörðu frosti, að ísinn ber sleða. Þetta var samt tafsamt ferðalag. — Hvað eftir annað ristu sleðameiðarn- ar niður úr ísnum, og við urðum að stritast við að draga þá upp úr, svo að vig misstum þá ekki í sjóinn. — Ferðafélagar mínir voru Eskimóar, og slík óhöpp spilltu ekki gleði þeirra. En þó formæltum við sjálfum okkur, að við skyldum ekki heldur velja hina leiðina. Við brutumst áfram, unz myrkrið skall á, og þá vorum vig svo heppnir að rekast á klettaskúta í bjarginu, þar sem við gátum leitað hælis um nóttina. Þess var enginn kostur að bera allan farangur okkar upp í skútann. Við skildum allt eftir á ísnum, nema húðfötin og hundana. Vig tókum líka með okkur mat til kvöldsins, en létum annað liggja kyrrt á sleðanum. Við bjuggum um okkur sem bezt við gátum, fegnir hvíldinni eftir erfiðan dag, og létum ekki á okkur bíta, þótt ískyggilega brakaði og gnauðaði í ísnum. Það var orðið svo dimmt, að við sáum ekkert frá bjarginu, og við vékum frá okkur öllum áhyggjum: Við myndum sjá það næsta dag, hvað nóttin hafð'i borið í skauti sínu. Við uppgötvuðum það morguninn eftir, að tveir sleðar höfðu orðið und ir íshrönn. Annar þeirra var sleðrnn minn. Straumar í sjónum höfðu hlað- ið ísnum saman og velt honum yfir sleðakrílin okkar. Og þetta var ekki neitt hálfverk. Sleðana sjálfa hafði raunar ekki sakag að ráð'i, en allt, sem á þeim var, hafði sópazt burt. Við vorum margar klukkustundir að höggva þá upp úr íshrönglinu og gera við þá, og varningurinn, sem á þeim hafði verið, var farinn veg allrar veraldar. Kössum og fararbún- að'i hafði ísinn ekki þyrmt. Eskimó- HljómiistarmaSur frá Thúle. Jafnvel slíkur náungi gat ekki komið I veg fyrir, a'ð páfarnir i Avignon næðu tökum á hinum danska ævintýramanni. 270 T í M I N N - SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.