Tíminn Sunnudagsblað - 24.03.1963, Page 10

Tíminn Sunnudagsblað - 24.03.1963, Page 10
breytzt vi3 þurrkun landsins síð- ustu árin. Frá fornu fari hefur þó þéttbýli mikið svo verið í Austur-Land eyjum, jafnvel svo undrun sætir. Árið 1880 eru þar 65 býli með 520 manns, árið 1890 63 býli með 502 íbúum. Geta má þess til samanburð- ar, að árið 1940 voru býlin aðeins 52 með 333 íbúum. Sjálfsagt er hvort tveggja nú miklum mun færra. Mið að við afkomumöguleika er það lítt skiljanlegt, hversu margir menn gátu áður fyrr lifað á svo litlu lands- svæði. Skýringin á því hlýtur að liggja í sjósókn og aflabrögðum í stórum stíl. Strandlengja Austur- Landeyja er um 12—13 km. og öll ægissandur fyrir opnu úthafi. Þaðan er því útræði örðugt og hættulegt í senn. En miklar fiskigöngur eru oftast með söndunum vetur og vor. Þangað Sóttu menn því til fanga úr Landeyjum ölaum saman. Afli varð mikill, þegar vel viðraði og fiskur gekk nær landi. Annálar geta um 700 til hlutar af stórfiski á einni ver tíð við Landeyjasand. Vera má, að til séu um þau aflabrögð hærri töl- ur. Fjölmenni Austur-Landeyja áð- ur fyrr átti því afkomu sína eins mikið undir sjósókn og sjávarafla sem ávöxtun jarðargróðans. Og afl- inn var stundum fljótfenginn, þegar dauður var sjór og fiskigöngur mikl- ar. Menn fy'lltu báta sína, jafnvel tví- og þríhlóðu sama daginn. Og menn úr Landeyjasandi sóttu löng- um sjóinn fast og djarft, þrátt fyrir þau geysiörðugu skilyrði, sem slík at- vinnugrein var háð og bundin. „Og hafgang þann ei hefta veður blíð, sem voldug reisir Rán á Eyja- andi, þar sem hún heyir heimsins •snga stríð.“ Þessar ljóðlínur - Jón- íar HaUgrímssonar geyma sígilda nynd af Landeyjasandi og aðstöð- unni til útræðis þaðan. Þungur söng ur bárunnar við Landeyjasand hljóð'n- ar oft ekki þótt logn sé á dögum og jafnvel vikum saman. Og þeir eru vissulega fáir dagarnir í árinu, sem hún lætur ekki til sín heyra. Þannig er háttað meðfram sönd- unum, að tvö sandrif myndast að jafnaði skamnit undan landi. Ytri grynningárnar nefnast útrif, en þær, sem nær eru landi, eyrar. Hér og þar á innri grynningunum myndast svo rásir eða álar, sem liggja til tands og nefnast hlið. Voru hlið þessi ndingarstaðir bátanna. Auk hins þætta brimgarðs, sem þegar er i.efndur, var svo brotið við landið eða lanrlsjórinn. Hann var síðasta og erfiðasta þrautin við lendinguna. Miili eyranna í hliðinu og utan við landbrotið varð oft alldjúpt lón, er kallað var lega. Þar var fiskur seil- aður og bátunum lent tómum, þegar vondur var sjór. Sjaldan var annars kostur en að sæta lögum við land- 274 inguna. En ófær var sjór með öllu, þegar á útrifi braut. Aí þessari ófuUkomnu lýsingu má ef til vill iáða, hversu ægilega örðugt var um lendingu, og hversu lítið mátti út af bera til þess, að allt færi vel. Hefur þar óneitanlega reynt mjög á árvekni, snarræði og harðfengi þeirra, sem í stríðinu stóðu. Um og eftir 1890 var enn mikil sjósókn úr Landeyjum og margir kunnir formenn, er að henni stóðu. í Austur-Landeyjum voru þá meðal annarra eftirtaldir formenn: Jón Brandsson frá Hallgeirsey, Guðlaug- ur Nikulásson s.st., Jón Guðnason frá Hallgeirseyjarhjáleigu, Pétur Pet- reusson frá Krosshjáleigu, og Sigurð ur Þorbjörnsson frá Kirkjulands- hjáleigu. Voru allir þessir menn þekktir að atorku og árvekni í starfi sínu. Einkum mun þó Jón Brandsson hafa verið kunnur fyrir dirfsku og áræði í sjósókn og aflabrögð að sama skapi. Hafði hann skip gott, Bæring að nafni. Var það áttæring- ur í stærra lagi. Réri Jón stundum einskipa, þegar öðrum þótti útlit ískyggilegt og sátu í landi. Mun að sögn enginn fqrmaður á síðastliðinni öld hafa sótt jafn djarflega sjó úr Landeyjasandi sem hann. Hafði hann og mannval gott á skipi sínu og skipti lítt um háseta, eins og háttur og venja var nafntogaðra formanna. Sigurður Þorbjörnsson var og hfnn mesti atorkumaður og fullhugi í sjó sókninni. Hafði hann einnig gott lið og traust 'Sér til fylgdar. Nefni ég einkum þessa tvo af því, að þeir koma hér svo átakanlega við sögu. Þegar leið á vetrarvertíð, voru ýmsir formenn úr Landeyjum. er skip áttu góð, vanir að hverfa til Vest- mannaeyja með útgetrð sína. Var þaðan auðveldara til sjósóknar og aflavon mun meiri. Veturinn 1893 höfðust margir Landeyjaformenn við í Eyjum og stunduðu sjó það- an. En sá vetur varð áfallasamur, eins konar fimbulvetur, sem skráður er blóðugu, óafmáanlegu letri í sögu Landeyja og hjörtu elztu manna þar eystra. Laugardaginn fyrir pálmasunnu- dag, eða 25. marz þennan vetur, var á blíðviðri og því almennt róið úr „Eyjum“. Þeir formenn, er traustust áttu skip og áhafnir, sóttu þá und- ir Landeyjasand, sem mun vera um tveggja tíma róður. Einn þeirra var Jón Brandsson frá Hallgeirsey. Varð hann einna fyrstur til að hlaða skip sitt, afferma í „Eyjum“ og róa svo samdægurs á sömu miðin. Var það venjan, þegar mikið fiskað ist. Er á daginn leið, brældi lítið eitt á suðaustan og sjór ýfðist nokkuð. Bátarnir, sem undir „Sandinn“ höfðu sótt, skiluðu sér qinn eftir annan í höfn í „Eyjum“. Sumir þó ekki fyrr en orðið var myrkt af nótt. En Jón Brandsson kom aldrei úr þeirri feið. Er talið, að ofhleðsla, ásamt myrkri, brælu og slæmu sjólagi, hafi valdið. Með þessum mikla fullhuga og afla- manni fórust samtals 15 menn. Voru þeir eftirtaldir: 1. Jón Brandssón, 60 ára, kvæntur bóndi í Hallgeirsey, átti 3 börn upp- komin. 2. Ólafur Einarsson, 16 ára, bónda- son frá Hallgeirsey. 3. Jóhann KristmundssOn, 28 ára, ókvæntur vinnumaður frá Syðrk Úlfsstöðum. 4. Guðmundur Ólafsson, 33 ára, ókvæntur vinnijmaður frá sama bæ. 5. Jóhann Þóroddsson, 18 ára, bóndason frá Syðri-Úlfsstaðahjáleigu og fyrirvinna aldraðra foreldra. 6. Magnús ionsson, 27 ára, bóndi í Oddakoti, !ét eftir sig konu og barn í vöggu. 7. Sigurður Gíslason, 43 ára, bóndi í Oddakoti, lét eftir sig konu oj 3 börn um og innan við fermingu. 8. Guðlaugur Ólafsson, 30 ára, ókvæntur og fyrirvinna hjá aldraðri móður að Hólmi. 9. Magnús Ólafsson, 28 ára, vinnu maður að Hólmi, albróðir nr. 8. 10. Guðmqndur Diðriksson, 54 ára, vinnumaður frá Bakka, lét eftir sig unnustu og 5 börn í ómegð auk 4 uppkominna hjónabandsbarna. - 11. Sigurður Einarsson, 25 óra, ókvæntur bóndason frá Bryggjum. 12. Guðni Guðmundsson, 28 ára, bóndason frá Skíðbakkahjáleigu, átti unnustu og barn í vöggu. 13. Jón Einarsson, 60 ára, kvænt- ur bóndi að Káragerði í Vestur-Land eyjum, átti 4 börn uppkomin. 14. Páll Jónsson, 38 ára, vinnu- maður að Arnarhóli, sömu sveit, lét eftir sig unnustu og barn 6 ára. 15. Guðmundur Sveinsson, 22 ára, ókvæntur bóndason frá Vatnskoti í Þykkvabæ. Eins og upptalningin ber með sér voru flestir þessara manna á blóma- aldri. Yfirleitt munu þeir hafa ver- ið valdir í skiprúm eftir hreysti harðfengi. Má því öllum vera ljóst hversu mikil og óbætanleg skörð hafi orðið við fráfall þeirra. En harmsagan í sjósókn Austur- Landeyja hélt áfram þessa eftir- minnilegu vetrarvertíð. Þremur dög- um síðar, eða þriðjudaginn næstan fyrir páska, var veður gott og al- mennt róið úr Landeyjasandi. Er á daginn leið', brimaði snögglega, eins og svo oft vill verða, og fengu því margir örðuga lendingu. Einn þeirra var fyrrnefndur formaður, Pétur Petreusson frá Krosshjáleigu í Aust- ur-Landeyjum. Varð hann síðbúinn til lands, kom að með mikinn afla og seilaði hann út á legunni, eins og venja var til. En þegar komið T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ /

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.