Tíminn Sunnudagsblað - 24.03.1963, Side 11

Tíminn Sunnudagsblað - 24.03.1963, Side 11
var innarlega í hliðið, reið að jcniki'ð ólag. Bátinn fyllti skyndilega og flestum bátverjum skolaði út í ólg- andi brimlöðrið. Formaðurinn, sem hafði haldið um seilarnar — og trú- lega fastar en skyldi — hvarf í brimgarðinn og kom ekki í ljós fram ar. Alla hina, 10 að tölu, báru öld- urnar upp í sandinn, suma þrekaða, en engan svo að líftjón hlytist af. — Að Pétri varð bæði mannskaði og eftirsjá. Hann var 51 árs, ókvæntur og bjó með aldraðri móður simni. Hét hún Guðrún og var dóttir hins kunna gáfumanns, sér Páls skálda Jónssonar, prests í Vestmannaeyjum 1822—1837. Kippti Pétri mjög í kyn sitt um atgjörvi til líkama óg sálar. Var hann greind- ur vel, bókhneigður og orðheppinn svo að orð var á gjört. Skip hans hét María og var síðustu ár Péturs bæði gamalt og úr sér gengið. Þótti hann lengi beita þeirri fleytu fulldjarf- lega við sjósókn og flutninga. Svar- aði hann jafnan með gamanyrðum, er menn átöjdu hann fyrir dirfskuna. Einhverju sinni, er hann kom úr Vestmannaeyjum með Maríu drekk- hlaðna vörum og fékk erfiða lend- ingu í sandinum, var hann minntur á þetta. Svaraði hann þá með þess- um léttu og fleygu orðum: „Vörurnar voru í skipinu að innan og sjórinn hélt að því að utan, svo að María mín var öldungis eins og járnskip." Sumir töldu, að Pétri hefði ekki verið alls kostar óljúft að bera bein- in í Marín sinni, svo margar tvísýn- ar stundir, sem þau höfðu átt sam- an. Að minnsta kosti mundi hann hafa mætt dauða sínum með sömu róseminni, sem hann var þekktur að bæði í höppum, hættum og þraut- um. Enn var svo ókominn síðasti þátt- ur harmleiksins við Landeyjasand árið 1893. Um sumarmálin höfðu nokkrir formenn úr Landeyjum, sem vertíð stunduðu frá Vestmanna eyjum, sætt færi að komast til lands. En á leiðinni heim fengu þeir vax- andi vestanátt og neyddust því til að lenda margir saman austarlega á Krossfjöru i Austur-Landeyjum. Þar var og talið vera hlið allgott. Settu ]>eir þar upp bátana og farangurinn með það fyrir augum að flytja hvort tveggja heim til sín, þegar veður og sjór leyf.ði. Það færi sýndist mörgum gefast 26. apríl eða rúmum mánuði eftir að Jón Brandsson fórst. Var þá hægviðri, en úfinn sjór og útlit ekki svo vænlegt sem skyldi. Komu þá margir í Krosssand til þess að flytja til skip sín og það, er þeim fylgdi. Meðal þeirra var Einar Þor- steinsson,. lengi bóndi að Arnarhóli í Vestur-Landeyjum og formaður þaðan. En einn af hásetum hans er náinn heimildarmaður og um leið sjónarvottur þess hörmulega slyss, er þá varð í hliðinu við Kross-sand. Er hann Jón Tómasson, enn á lifi, gegn maður og traustur, lengi bóndi að Miðkoti í Vestur-Landeyjum og formaður úr Kotasandi. — Hinn nafnkunni formaður, Sigurður Þor- björnsson frá Kirkjulandshjáleigu, -varð fyrstur að sjó þennan dag sem svo oft áður. Hafði hann hugsað sér að leita fyrst fiskjar og hverfa svo til Vestmannaeyja síðar um daginn, ef veður og sjór réðust vel. Átti hann og hásetar hans ýmsa hluti í „Eyj- um“, sem ekki urðu teknir með, þeg ar þaðan var komið um sumarmál- in. Með Sigurði voru að þessu sinni tveir Mýrdælingar, sem beðið höfðu fars til Eyja. Tókst honum vel að komast út og yfirgefur frásögnin hann þar með í bili. — Það óvænta hafði skeð, að þrír hásetar Sigurð- ar náðu ekki róðri þennan morgun. Voru þeir: Ólafur Magnússon, bóndi frá Dufþekju í Hvolhreppi, Jónas Þorvaldsson, vinnumaður frá Tjörn- um undir Eyjafjöllum, og Jón Þórð- arson, ókvæntur bóndason frá Stóru Hildisey í Landeyjum. Skrldi ba’ milli feigs og ófeigs eins og mál- tækið segir. Jón Þórðarson, sem tal- inn var hugmaður og karlmenrii, hafði vaknað í seinna lagi þennan morgun. Brotafærð hafði og nokkuð íafið för hans til sjávar. Hann varð því að horfa á skip Sigurðar hverfa út úr hliðinu, um leið og hann kom á sandinn. Mun honum að vonum hafa þótt það mjög miður. Þangað var' þá einnig kominn Jón Guðna- on, formaður frá Hallgeirseyjarhjá eigu, farsæll maður og traustur. ætlaði hann að flytja.skip sitt og farm þaðan í Hallgeirseyjarsand, sem mun vera um klukkutíma róður. Snéri Jón Þórðarson sér því þegar að nafna sínum og bað hann að Skila sér til Sigurðar Þorbjörnssonar, um leið og hann flytti skip sitt til. Tók Jón Guðnason hvorki af né á um það, en kvað honum heimilt að vera í skipi sínu, sem hinn og þáði. Heppn aðist Jóni vel að komast út, þótt sjór væri nokkuð tekinn að þyngj- ast. En er á sjóinn kom, aftók hann með öllu að eyða tíma í útúrkrióka. Hafði Sigurður Þorbjörnsson þá lát- ið reka undan falli nokkuð austur á bóginn. Bauð Jón Guðnason háset- mn sínum að leggjast sem fastast á árarnar vestur með landinu. Tókst honum að lenda heilu og höldnu skipi og farmi í Hallgeirseyjarsandi, þótt tæpara mætti vart standa. Óhapp eða töf Jóns Þórðarsonar varð honum þannig til lífs og geng- is. Hann átti síðar merka lífssögu, bjó lengi að Núpum í Ölfusi og lézt hér í Reykjavík fyrir fáum árum — að ég ætla — 102 ára gamall. Jón var karlmenni til áræðis og starfa og frábær söngmaður. Kom hann 100 ára fram í útvarpi og söng m.a. passíusálm og ættjarðarljóð. Mun mörgum finnast,, að örlögin hafi hér gripið inn í og ráðið því, sem verða vildi. Víkur nú sögunni aftur austur á bóginn. Gerðist það nokkum veginn jafn snemma, að komnir voru í sand inn þeir síðustu, er hugsað höfðu til sjávar þennan dag, og Sigurði Þorbjörnssyni var veifað að. Var þá sjór að verða ófær til lendingar, vindur vaxandi suðaustan og um leið illfært eða ófært til „Eyja“. En Sigurður var, eins og ’áður er sagt, Framhald á 286. síöu. T f M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 275

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.