Tíminn Sunnudagsblað - 24.03.1963, Page 13

Tíminn Sunnudagsblað - 24.03.1963, Page 13
Sæluhús viS Þeisfa. reyki. (Ljósmynd: Þorsteinn Jósepsson). bíta, þar sem haginn er beztur. Næst er kaffi drukkið, nesti borðað og nokkrar brauðsneiðar smurðar, sem vera skulu nesti til dagsins. Þá er- um við ferðbúnir. En þegar við ætl- um að taka hestana, finnast þeir ekki. Við leitum nokkra stund áður en við verðum þeirra varir og get- um handsamað þá. Þeir voru komn- ir nokkurn spöl niður á grundirnar, niður frá kofanum. Þeir eru skrepp- ingslegir og frýsa, líkt og óhugur só í þeim. — í skyndi er lagt á, síðan stigið á bak og riðið upp með rjúk- andi leirgrófunum, með Bæjarfjall- ið á hægri hönd, en það er næsta fjall við Þeistareyki, eins og nafn- ið bendir 01. Stigið er af baki í Bóndhólsskarði og skipulögð leitin, en Bóndhólsskarð skilur á milli Ket- ilfjalls og Bæjarfjalls. Valtýr ög Árni ganga norður um Bungu, en Bunga er hæsta hæð á Reykjaheiði, og þaðan austur, og síðan suður austasta hluta landsins og allt suður í horn á merki Mý- vatnssveitar og Þeistareykja. Eg skyldi aftur á móti ganga suður austan Bæjarfjalls og suðaustur hjá Þórunnarfjalli og síðan suður á merki. Fyrri hluti dagsins leið tíð- indalaust. Við Brúnn röltum um auðnina, dauðaþögla og lífvana. Ým- ist sat ég á baki hans, eða rölti á undan honum og hélt í tauminn. Öðru hvoru rufu nokkrar rjúpur þögnina, og tvívegis mátti sjá geysi- stórar breiður af snjótittlingum. Annars ríkti grafarþögn yfir öllu. Hvergi varð ég kinda var eða slóða eftir kindur. Það var tekið að stytt- ast lil rökkurs þegar við Brúnn komum suður að girðingunni norðan við Gæsafjöllin; en girðing sú var gerð á fjárskiptaárunum á mörkum Aðaldælinga- og Keldhverfingaaf- réttar að norðan, en Mývetninga- og Reykdælingaafréttar að sunnan; og nær frá Skjálfandafljóti að vest- an og í Jökulsá að austan. Við girð- inguna hitti ég þá Árna og Valtý; höfðu eþir meðferðis goltóttan for- ystusauð og hvíta tvílembda á. Kind- ur þessar rákum við vestur með girðingunni um stund, þar til við komum vestur á móts við Kvíhóla- fjallahorn, en Kvíhólafjöll er fjalls- rani, sem gengur alllangt suður úr Bæjarfjalli. Nú talast svo til á milli okkar, að Valtýr og Árni fari með kindur þessar og gangi með sér jafnframt norður á Þeistareyki, en ég leiti nokkru lengra vestur og gangi síðan norður Randir, sem eru vestan Kvíhólafjalla. Vildi ég gjarna taka þennan krók á mig, þar sem mér fannst ég hafa orðið afkastalít- ill um daginn, því að enga skepn- una hafði ég fundið. Skilur nú með okkur. Halda þeir til norðurs, en ég til vesturs. Þegar hér var komið, var tekið aö þyngja í lofti, en kyrrt að kalla. En það leið þó ekki á löngu, þar til snjóflygsur tóku að falla úr lofti, í fyrstu ósköp hægt og meinleysis- lega, en von bráðar jókst hríðin, og tók að storma af norðaustri. Eg hélt þó áfram enn um stund til vesturs, eins og ekkert væri, enda var hest- urinn fús í þá átt. Mun hann hafa búizt við því, að við værum á heim- leið. En þetta mátti ekki svo til ganga lengur. Eg tók í taumana, steig af baki og hugsaði ráð mitt- Komin var kafaldshríð og stormur- inn færðist i aukana. Hva^j skyldi nú gera? Átti ég að ríða niður með allri girðingu og niður í Geitafell, sem er næsti bær við afréttina? Auðvit- að var þag auðveldast o,g bezt og hesturinn viljugur þá leið. Nei, ekki skyldi ég gera það. Það var minnk- un að því. Það var flótti. Svo myndu þeir Valtýr og Árni óttast um mig, ef ég kæmi ekki í kofann um kvöld- ið. Eg steig á bak, sneri hestinum við og hélt af stað móti veðrinu. Eg hlaut að ná Kvíhólafjallahorni, og þá átti ég að vera viss með það að hafa mig norður með fjöllunum og norð- ur á Þeistareyki. En Brúnn var óá- nægður og gerði hvað eftir annað verkfall; svo að ég varð að lemja hann áfram til að hafa hann úr spor- unum; enda herti alltaf veðrið og fannkoman jókst. Það var að koma stórhríð. Mér tór ekki að verða urn sel. En áfram streittumst við Brúnn, þar til ég hélzt ekki lengur við á hestinum fyrir kulda. Eg var illa búinn; hafði aðeins sumarhúfu á höfði, og yfir- höfnina hafði ég skilið eftir í kofan- um um morguninn. Eg teymdi nú hestinn um hríð og fór eins greitt og ég framast komst móti veðrinu. Við það hlýnaði mér. Allt í einu veröur fyrir mér hæð eða fjallsrani, og áfram held ég og heldur virðist hækka undir fæti, síðan lækkar aftur, og ég kem í einhverja dæld eða hvilft. Eg hafði stundum heyrt gangnamenn tala um Kvíhólahvilft, vestanvert við KvíhólafjöiL Aldrei haíði ég komið þangað sjálfur. Myndi ég nú vera staddur þar? Líklega. Mér létti. Nú hlaut ég að kofnast norður með fjöllunum og heim í kofa. En kvosin reyndist mér ör- lagaþung. Eg komst ekki upp úr henni, þar sem ég reyndi fyrst, enda var hesturinn tregur í taumi, því að skjól var þarna niðri. Eftir nokkurt þóf komumst við Brúnn þó upp úr dældinni; en þegar upp var komið, fannst mér veðrið hafa versnað um allan helming. Nú var komin grenj- andi stórhríð. Og það sem verra var, hún var af hásuðri, að mér fannst. Eg var orðinn áttavilltur. Og áfram hélt ég móti veðrinu til suðurs að mér fannst, í stað norðurs, og lítið eitt T I M I N N — SUNNUDAUSBLAÐ 277

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.