Tíminn Sunnudagsblað - 24.03.1963, Side 15

Tíminn Sunnudagsblað - 24.03.1963, Side 15
öllum vonum. Verst var að vinda sokkana. Fingurnir voru svo loppnir, að þeir vildu ekki hlýða. Á endanum tókst það þó, og nú leið mér bet- ur á fótunum. Að þessu búnu hallaði ég mér aftur á bak í dúnmjúkan snjóinn. Þetta var dásamlega gott. Svo fór ég að hugsa heim; heim til konunnar og barnanna og aldraðrar móður. Nú skildist mér betur en nokkru sinni fyrr, hve mikið ég átti heima. Gott var, að þau vissu ekki, hvar ég var nú staddur. Yfir mig færðist værð og friður. Eg hætti að greina veð- urdyninn og hríðina; síðan hvarf mér allt. Skyndilega heyrðist mér kailað naínið mitt. Eg stökk á fætur. Voru nú komnir menn að leita mín? Eg varð allur að eyrum og hlustaði og hlustaði. Nei, það var enginn að kalla. Það heyrðist ekkert nema veð- urdynurinn uppi í hæðunum í kring. Líklega hefur mér sigið í brjóst ein- hverja stund. Mér var kalt. Eg skalf allur og nötrandi. Þarna gat ég ekki verið lengur. Svo fór ég að fikra mig upp urðar- brekkuna; við það færðist líf í dofna fæturna-, og mér hlýnaði. Þegar upp kom, sá ég mér til mikillar gleði að veðrinu hafði slotað og hríðin minnkað, og öðru hvoru sást til tunglsins í gegnum skýjaglufur. Eg fór að ganga um og reyna að glöggva mig á þvi, hvar ég væri staddur. Allt í einu gekk ég fram á gjávegg og fyrir framan mig greindi ég eitt- hvert kolsvart hyldýpi. Þetta virtist vera gjá eða niðurfall, með þver- hníptum hamraveggjum; ég hörfaði afturábak, svo tók ég stein og kast- aði í djúpið. Eftir drykklanga stund greindi ég hljóðið frá steininum, þeg ar hann nam við botninn. Þetta var þá ekki alveg botnlaust. Nú varð mér ljóst, hvar ég var staddur. Eg hafði oft heyrt gangnamenn tala um Stóravíti og Litlavíti, en aldrei hafði ég komið þar sjálfur, fyrr en nú. Eg var auðsjáanlega staddur hjá Vítum. Það var ekki um að villast. Og ég hafði gist í Stóravíti. Eg vissi, að héðan myndi vera um tveggja stunda gangur að norður- enda Bæjarfjallsins. í nokkrum fjarska sá djarfa fyrír fjalli, á milli éljanna, og ég var svo öruggur með það, að þetta hlyti að vera Bæjar- fjallið, að ég reyndi ekki einu sinni að glöggva mig á veðurstöðunni, en stefndi hiklaust í áttina til fjallsins. Eg gekk eins rösklega og ég gat og fjallið nálgaðist. Loks var ég þá kominn að því, en hér var ekki allt með felldu. Þetta var stakt fjall, og auk þess var sú hlíð'in, sem að mér sneri, miklu bratt- ari en austurhlíð Bæjarfjallsins átti að vera. Fljótlega komst ég að raun um, að ég vai^ staddur við Þórunp- arfjall. Eg hafði gengið til suðurs, í stað norðvesturs og farið langan veg afleiðis. En ekki þýddi að sakast um orðinn hlut. Bezt var að taka þessu öllu með ró. Eg settist niður og hvíldi mig nokkra stund. Eg bjóst við, að um þriggja kiukkustunda gangur væri frá Þórunnarfjalli til Þeistareykja í góðu færi. En eins og ég var nú, orðinn magnlaus a£ sulti og þreytu, og færð hafði einn- ig versnað til muna, hlaut það að taka miklu lengri tíma að komast þessa leið. „Sá verður tvisvar feginn, sem á T f M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 279

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.