Tíminn Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Tíminn Sunnudagsblað - 26.05.1963, Qupperneq 3

Tíminn Sunnudagsblað - 26.05.1963, Qupperneq 3
Þjóðverjar dreifðu þessari mynd um alla Evrópu. Á henni sést, þegar hermenn þar sem hann var fangi. og höfðu verið kvaddir til þessa staðar víðs vegar að úr Evrópu, alveg eins og hann og án frekari skýringa. Biðtíminn var langur, en liðsfoi- ingjarnir styttu sér stundir við að ræða þaff efni, sem efst var á baugi um þessar mundir: Ítalía. — Ítalía hafði iiafið þátttöku í stríðinu 10. júní 1940 — eftir hernám Frakklands. Herferðirnar til Grikklands og Egypta lands höfðu ekki orðiff ítölum til heiðurs. Þjóðverjar höfðu orðið aff hlaupa undir bagga með þeim hvað eftir annaff, og skömmu síðar mátti heita, að ítalía væri hernumið svæði. Mussolini hafð'i smám saman glatað vinsældum sínum. Bandamenn höfðu gengið á land á SikUey og þá hafði hið fasistíska Stórráð verið kallað saman, o,g 25. júlí 1943 var Mussolini steypt af stóli — fjórum dögum áður en hann varð sextugur — og hann fluttur burt sem fangi í eigin landi, enginn vissi hvert. Loks var biðin á enda. Aðstoðar- foringinn birtist og sagði: „Herrar mínir. Foringinn bíður yðar“. — Liðs- foringjarnir stilltu sér upp í ein- falda röð og gengu inn í stóran sal. Hurð var hrundið upp, og Hitler gekk inn, föstum, hröffum skrefum. Hann bar járnkrossinn á brjóstinu, en eng- in önnur tignarmerki. — Skorzeny var aftastur í röðinni, vegna þess að hann var yngstur og tignlægstur. Hitler staðnæmdist frammi fyrir hverjum þeirra og leit beint í augu þeirra um leið og þeir kynntu sig. Síðan gekk hann eitt skref aftur á bak og spurði: „Hvaða álit hafið þér á Ítalíu í dag? — Þessari spurningu svöruðu liðsforingjarnir í réttri röð með innantómum slagorðum, sem þeir héldu, aff væri viðeigandi svar við spurningu „foringjans": Þeir töl- uðu um hana sem „hinn hugrakka bandamann" og fleira í þeim dúr. Þar sem Skorzeny stóð aftastur í röðmni, gafst honum talsvert ráðrúm til þess að hugsa sig um. Hann vissi, að Hitler var beiskur vegna þess, að herir Bandamanna höfðu hertekið Suður- Týról, sem var auðugasta og fegursta hérað Austurríkis. Þegar „foringinn" staðnæmdist frammi fyrir honum til að hlýða á svar hans, sagði hann að- eins: „Mein Fiihrer, ég er Austurrikis maður“. Hitler starði á hann, líkt og hann byggist við framhaldi, en Skor- zeny þagði. Hitler hélt áfram að stara á hann í nokkrar sekúndur, en sagði svo: Skorzeny höfuffsmaður verður etfir. — Þér, herrar mínir, megið fara. Þegar liðsforingjarnir voru farnir, sagði Hitler um leið og hann gekk fram og aftur á gólfinu með hendur aftur fyrir bak: „Ég hef mjög mikil- vægt verkefni handa yður, Skorzeny höfuðsmaður". — Síðan vék Hitler að ástandinu í Ít’alíu, og sagði, að Musso- lini hefði verið svikinn og hertekinn Storzeny fylgja Mussolini út úr hótelinu, og Róm gæti hvenær sem væri fallið í hendur Bandamanna. Hann sagði, að konungur Ítalíu og vinur hans, Badoglio marskálkur hefðu skipulagt samsærið gegn Mussolini. Eftir að Hitler hafði vikið ýmsum orðum að þessu samsæri, stanzaffi hann frammi fyrir Skorzeny, leit fast í augu hans og mælti: „Þér eigið að frelsa Mussolini. Þessari fyrirætlan verður að halda stranglega leyndri. Aðeins örfáir menn vita, að við ætlum aff reyna að frelsa Mussolini" — Hvorki sendiráð Þjóðverja í Róm eða þýzka herstjórnin þar vissi um þessar ráða- gerðir. Ifitler sagði, að Skorzeny ætt: að vera undir stjórn hershöfðing.i að nafni Student. En eins og á stæf' vissi enginn, hvar Mussolini væri nið ur kominn. „Það er fyrst og fremst verkefni yðar að finna þennan stað Leggið yður allan fram við þetts verkefni. Það verður að heppnast, því að það mun hafa ófyrirsjáanleg áhrif á gang stríðsins. Þér, Skorzeny höf- uðsmaður, berið persónulega ábyrgð á þessu verkefni gagnvart mér“, sagði „foringinn" að lokum. IÍMINN - SUNNUDAGSBLAÐ 459

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.