Tíminn Sunnudagsblað - 25.08.1963, Síða 21

Tíminn Sunnudagsblað - 25.08.1963, Síða 21
en þag kymii ag vera helzt til mikið vatn í því“. Sami karl lýsti svo matarvist á prestssetri e:nu, sem hann hafði ver- ið á: „Þar var grautur á morgnana, grautur með graut á daginn — og grautur út á graut á kvöldin“. Fann ekkerf grjónið Húsfrey.ia ein snemma á þessari öld hafði skammtað vetrarmanni sínum morgunmatinn, og var hann ag búast til atlögu vig grautinn. Hún var víst ekki óhrædd um, að grauturinn væri snöggsoðinn og spurði því: „Er nú grauturinn enki soð'inn hjá mér?“ Vetrarmaðurinn, sem var nærsýnn, tók þá í skeiðina og skyggndi gaum- gæfilega uin ieig og hann renndi úr henni, en mæiti síðan: „Ég hef ekk- ert grjónið fundið enn“. ÞaS stálu fleiri Gömul saga hermir, að bóndi væri á leið til kirkju sinnar á strandsvæði, sem hann og kirkjan áttu saman. Sá hann þá kiörlegt tré, rétt hjá merkj- um — en kirkjunnar megin. Þótti hon- um þag betur komig sín megin og fór að bisa því yíir merkin, en tréð var þungt og tafðist hann svo við, að prest ur var kominn í stólinn, þegar hann kom til kirkju. Um leið og bóndi opn- aði hurðiua, mælti prestur í ræðu sinni: „Jesús rak út djöful þann er dumbi var“ — En samvizka bónda gerði honum þá giettu, að honum heyrð'ist prestur segja: Rekið út djöful þann er drumb- inn bar! Róndi hrökk þá öfugur út um dyrnar, en mælti um leið hálfhátt: „Það stela nú fleiri af rekanum þín- um en ég“ Kerlingin i ánni Fátæk kerlnig lagði eitt sinn af stag til að hnupla sér ullarögn á næsta bæ, þar sem uiiin var þvegin fjarri bæ, og grunaði hana, að ekki væri varzla um ullina. Þeita gekk líka að óskum að öðru sn þvi ag yfir á var ag fara og þegar hún var á heimleið með poka skjattann, ætlaði áin að verða henni ofjarl. Striddi hún vig strauminn, en sá sitt óvænna. og kom til hugar, að hún yrði að heita nokkru góðu fyrir sér, svo ag hún mætti bjargast. Mælti hún þá: „Æ. — aldrei skal ég stela“ — en í sama bili fann hún, að var að grynnen og bætti við: „Vænti ég, vænti ég — “ Skemmtitegra a3 sigla í kaf Guðmundur hét maður, töluvert þekktur undir auknefni Th. Hann þótti ofurhugi og orðheppinn í bezta lagi. Sjómaður var hann ótrauður og hafði aldrei hiekkzt á. Einu sinni var hann farþegi á áraskipi frá Akranesi til Reykjavíkur; veður var allhvasst og formanninum gekk illa að verja skipið, enda ekki talinn með snilling- um. Þá hrópaði formaður til stafnbú ans: „Felldu tokkuna!" Stafnbúinn heyrði ekki og hváði. Guðmundur sat miðskipa; har:r hafði þagað, en þótt of lítill gangurinn. Þegar hásetinn hváði, greip hann færið og grenjaði svo ag tók yfir veðurgnýinn: „For- maðurinn segir þér að setja út klýf- inn — og vera fljótur að því“! Háset- HELLIR UNDIR Framhald af 680. síðu. ið rituð, svo að vitað sé. En brátt sá- um við, að þarna vantaði kjálkabeinin og bak við fjarveru þeirra er aftur saga, sönn og furðuleg. Jón Sigur- geirsson kann hana og þekkir manna bezt, því að hann varð, sér óviljandi, við málið riðinn. Hefir hann léð frá- sögn sína til birtingar í Framsóknar- blað Vestmannaeyja — jólablað; 1961. Við skoðuðum að sjálfsögðu útilegu imannakofarústirnar, sem eru, minn- ir mig, þær stærstu og greinilegustu, sem fyrirfinnast á landinu. Kofinn stendur fremst í hraunjaðrinum alveg eins og í Herðubreiðarlindum. Hann er miklu stærri, þrírýmdur a.m.k., og hefir vafalaust verið vel manngengur í fyrstu. Þaikið er nú löngu fallið og veggir taisvert signir. Stór beina- hrúga í einu kofabrotinu segir sína sögu. Skömmu austar einnig í hraunjaðr- inum er fjárhúskofi, og frá honum liggja göng skáhallt niður á gras- lendið. Al'lt er þetta haglega gert og hugvitsamlega, sömuleið'is fjárrétt, sem er skammt frá uppi á hrauninu. Hraunig er þarna mjög þykkt og hraunkamburinn því hár og sér vítt yfir af honum. Margt og misjafnt mun hafa borið fyrir augu kofabúa, er þeir svipuðust um af kambinum, bæði glóandi lindir og tjarr.ir og gróandi grös eins og við lilum þetta kvöld og einnig „eitt samfellt hjarn sunnan til Herðubreiðar". En hún rís hátt í norðri séð af kambinum. Eg hefi alítaf viljað trúa því, að þarna hafi Fjal]a Eyvindur búið við sæmilegan kost, eftir því sem um var að gera. Hafl nóg að bíta og brenna og umíram allt verið í friði. Nú kepptist hver um annan þveran við að segja méi að dvöl hans hér sé ósannað mál. Frá kofanum gekk ég ug fleiri austur að Kreppu, sem er þar skammt undan, og höfðum við þá farið yfir þvera Krepputungu. Við inn skaut þegar út klýfinum; skipið saup aðeins, en rétti sig þegar áltur og jók skriðirn. Formaður fann að þetta fór oelur — og þagði. Lentu þeir síðar hftiiu og höldnu, þar sem ætlað var Þegar þeir voru komnir í land, sneri foimaðurinn sér að Guð’- mundi og spurði með þykkju, hvers vegna hann befði borið svona skakkt ( á milli á sjónum, sagði ag þeim, sem I ekki skildu n.ælt mal, væri sæmra að halda sér saman. Guðmundur kímdi og svaraði. „Ivíér fannst einhvern veg inn skemmtilftgra, ef við ættv-m að far ast, að vig sigldum okkur heldur í kaf en að sullast niður ganglausir"! JÖKLI - komum að ánni, þar sem hún fellur í þröngu gljúfri Hún er ljótt vatns- fall og illúðlegt, ekki sízt þarna sem hún ólmast í gljúfurböndunum ems og bölvandi flagð. Nokkru ofar renn- ur hún breiðar og hefir gert lrá upp- tökum. — Einhvers staðar þar hefir hún verið riðin. — Þar heitir vist Kreppuvað. Rétt fyrir neðan þrengsl- in breiðir hún aftur úr sér, og var mér sagt, að þar hefði a.m.k. Jón í Möðrudal riðið hana, og þar hefir Jón Sigurgeirsson nokkrum sinnura farið yfir hana á gúmmíbát sínum. Uppi á árbakkanum hinum megin og gegnt okkur liggja nokkrir bitar og flekar. Þetta er göngubrú, sem Ferðafélag Akureyrar lét gera á Kreppu árið 1951 undir forystu Jóns Sigurgeirssonar og sá hann um smíði brúarinnar. Brúin er mjög ein föld. Tveir bitar, sem reistir eru upp og látnir falla yfir gljúfrið og niður á barminn ninum megin. Síðan eru flekarnir látnir á og gengið yfir, eða þá að flekarnir eru látnir ónotaðir og bara riðið yfir á bitunum emum saman. En það hafa þeir víst gert oftar en einu sinni Jón og Ólafur Jónsson, sá mikli öræfakönnuður, og e.t.v. fleiri. Síðan þessi brú var reist hafa flestir eða allir, sem sótt hafa heim Ilvánnalindir, farið urn hana. Þá er farig austur í Möðrudal, suður svokallaðan Arnardal og suður í Kverkárnes, sem við sáum frá brú- arstæðinu. Vaða verður yfir Kverká, sem er frernur litil á og rennur þarna skammt austan við Kreppu, ganga síðan að brúarstæðinu og svo yfir í Hvannalindir. Með hinni nýju brú á Jökuisá við Upptyppinga, er þessi göngubrú vænt anlega leyst af hólmi. Þeir, sem kunnugir eru brúnni og brúarstæð- inu segja, að gljúfrið hafi gleikkað þó nokkuð síðan 1951, og ef svo fari fram, verði bitarnir innan skamms of stuttir. Við hverfum heim til galdanna svöng og þreytt eftir langan og mjög T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 693

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.