Tíminn Sunnudagsblað - 01.09.1963, Page 15

Tíminn Sunnudagsblað - 01.09.1963, Page 15
sæti, þurfti rúm tveggja meSal manna. Á flestan hátt var hann mik- ill fyrir sér, kunnur að stórmennsku og ekki undansláttargjamt. Er sýslumaður hafði sett þingið og nefnt þingvotta, las hann stefnu til sakbornings, „ag mæta hér nú fyrir rétti til viðurmælis og forsvars, að hann sé ei valdur að dauða Helgu Símonardóttur, sem dauð fannst og af mannavöldum drepin, að menn hyggja, á hálsinum fyrir ofan Flögu um morguninn þess 27. júní næst af liðins“. „Stefnast einnig sem vitni í því máli, Jón Guðmundsson, Guðrún Magnúsdóttir og Halldóra Jónsdóttir á Flögu, Sigvaldi Sveinbjörnsson og Helga Sigvaldadóttir á Gilsstöðum.Þor steinn Jónsson og Guðmundur Jóns- son á Helgavatni, séra Bjarni Jóns- son á Undirfelli, Guðmundur Guð- mundsson í Þórormstungu, Guðmund- ur Guðmundsson á Marðamúpi, Pét- ur Loftsson á Brúsastöðum, Jón Þór- arinsson og Gróa Jónsdóttir á Kornsá, til vitnisburðar og undirréttingar í þessu máli, slíkt sem hverjum þeirra er vitanlegt til upplýsingar að horfa“. Vitnin voru síðan öll látin vinna eið að því, sem þau myndu bera við yfirheyrsluna. Samkvæmt þeim vitnisburðum, sem skráðir eru í Þing-og dómabók Húnavatnssýslu, hefur sagan um Helgu verið rakin að mestu leyti hér á undan. Hún er frumheimild, en svo illa hefur farið, að úr henni hefur glatazt blað þar sem skráður er fram- burður sumra vitna í þessu máli. — Vantar því framburð sex vitna alveg og nokkuð af því er tvö sögðu. En með því að vitnisburðir þeirra, sem til eru, reynast mjög samhljóða um öll höfuð'atriði, er ekki líklegt að mikilsverð vitneskja hafi glatazt með hinu týnda blaði. Framburður-Jóns Guðmundssonar á Flögu er ýtarlega rakinn og hefur hann og fólk hans haft frá flestu að segja. Jón Þórarinsson og Gróa kona hans þóttust ekki vita til þess, að Jón, sonur þeirra hefð'i að heiman farið eða verið á ferli þessa nótt, er stúlk- an var myrt. Jón sagði þó, að Ólafur sonur sinn hefði sagt sér, að Jón hefði farið á fætur um nóttina að hlaða torfi, en ekki hefði hann skipað honum það verk. Að lokum voru öll þau vitni er líkið höfðu skoðað, spurð um það, hvað þau hygðu helzt, að hefði Helgu Símonardóttur til dauða dregið. Voru þau öll sammála um það, „að þeirra meining væri helzt, að hún mundi um hálsinn og vitin kreist og kæfð hafa verið með höndunum til dauða, því að enda þótt bandið, sem var um hálsinn, hafi mjög fast verið tvíbrugðið og sums staðar rautt undir því, meina þeir meiri blámi hefði á hálsinum verið ef hún til dauðs hengd hefð'i verið, hvað auðsýnilegt var af áverkum, bólgu og bláma, sem hún hafði á öllum líkamanum, nema alleina kviðnum, fótum og handleggj- um. Saman ber og öllum vitnunum í því, að þeir hyggja engan annan en Jón Jónsson sekan í hennar dauða. Sömu meiningar eru og nálægir þing menn“. Að þessu loknu var málinu frestað til framhaldsrannsókinar síjðar og sýslumaður hafði fangann heim með sér að Þingeyrum. V. Leið nú hátt í ár að Jón Jónsson var í haldi á Þingeyrum og ekki gert að máli hans. Sýslumaður lét gæta hans vel, og jafnframt halda honum að vinnu og auðvitað kauplaust. Það var gömul og rótgróin venja sýslu- manna, er héldu gæzlufanga. Nú er stefnt til manntalsþings í Ási, 11. júní 1767. Þangað var flutt- ur Jón fangi og þar komu ný vitni, er stefnt hafði Verig til vitnisburða um morðið á Helgu, „sem kennt er Jóni Jónssyni, samt athæfi hans und anfarið og allt annað, sem þeim kann fvitanlegt að vera og þessari sök T j M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 711

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.