Tíminn Sunnudagsblað - 16.08.1964, Blaðsíða 21

Tíminn Sunnudagsblað - 16.08.1964, Blaðsíða 21
og þá mágur Kolskeggs fróða. En sagan í Landnámu, um að Kolskegg- ur hafi séð ölhornið, sem var œttar- gripur í Síðu-Hallsætt, bendir til náins kunningsskapar milli þessara ætta. Gissur ísleifsson hefur búið á Hofi á árunum fyrir 1082. Hann var fæddur um 1042. Það getur því verið kringum 1070, að hann kvænist Stein unni. Á það er bent hér að framan, að Gissur Hallsson hafi verið á líku reki og Gissur biskup. Hallui, sonur hans, væri þá að líkindum fulltíða um það leyti, sem Gissur varð bisk- up. Hafi Gissur biskup farið með mannaforráð í Vopnafirði, áður en hann varð biskup, hefur hann ein- mitt fengið þeim frændum sínum, Gissuri eða Halli, syni hans, þessi mannaforráð, meðal annars vegna þess, að þeir áttu ætt að rekja til hinna fornu Hofsverja. Með þessu móti verður skiljanlegt, hvers vegna Finnur lögsögumaður er tengdur við Hof og Hofteig. III. Eins og bent er a hér áður, getur séra Finnur Hallsson ekki verið sami maður og Finnur lögmaður, og hann getur ekki heldur tímans vegna ver- ið sonur Halls Órækjusonar, Hólrn- steinssonar, samkvæmt þeim heim- ildum, sem fara verður eftir. Allt bendir til þess, að séra Finnur lög- sögumaður hafi verið afkomandi vold ugustu ætta, og mágsemdir hans við Hafliða Másson sýna, að svo hefur verið. Þeir Síðu-Hallur og Gissur hvíti voru meðal áhrífamestu höfð- ingja um aldamótin 1000, og þótt Þorgeir Ljósvetningagoði færi þá með lögsögu, er augljóst, að það eru áhrif þeirra Síðu-Halls og Gissurar, sem ráða þar úrslitum um kristní- tökuna. Þetta sést, ef Kristnisaga er nákvæmlega athuguð. Kona Hafliða Mássonar var meðal niðja Gissurnar hvíta, og það er í gegnum þær mágsemdir, sem Haf- liði giftir bróðurdóttur sína séra Finni Hallssyni, sem hefur verið vel þekktur í Skálholti og Haukadal. Vegna þeirra mágsemda hefur Finn- ur þá líka verið á Breiðabólsstað, þegar lögin voru þar skrásett, og vegna menntunar sinnar verið meðal þeirra, sem rituðu lögin fyrst undir handleiðslu þáverandi lögsögumanns, Bergþórs Hrafnssonar. Það er svo bein afleiðing þess, að Finnur er val- inn lögsögumaður 1139. Hann hefur átt lagasafn og tekið þátt í að rita það. Þetta hefur vegið meir en fjar- lægðin frá þingstaðnum. IV. Sonur Finns prests Hallssonar var Þórhallur, sem sagt er, að hafi verið „austr í fjörðum í Fljótdalshéraði" og var sendur Brandur prestur Úlf- héðinsson „austur í fjörðu." Kona VODAVERK Einhvern tíma kringum 1645 gerðist sá atburður í Vestmanna- eyjum, að sigamaður, Þórður Jóns son að nafni, hrapaði til bana með þeim hætti, að sá, er gæta skyldi festarinnar, Hannes Eyjólfsson, að nafni, missti hennar. Vigfús, sonur Gísla lögmanns Hákonar- sonar, fór þá með lögsögu í Vest- mannaeyjum, og kom til hans kasta að fella dóm um það, hvort Hannes hefði fellt á sig sekt. Ekki er nú kunnugt, hvernig dómur hans hljóðaði. En þegar hann var lesinn í lögréttu árið hans var Valgerður Þorgilsdóttir, Oddasonar. Ekkert er vitað um niðja þeirra nema Þórólfur Bjarnason, sá er drap Halla-Geir i Austfjörðum, var af ætt Þorgils Oddasonar og sennilega afkomandi Þórhalls. Þórarinn Jónsson á Valþjófsstað skaut honum undan og sendi hann til Kolbeins unga, sem hélt hlífi- skildi yfir honum, en hann var að lokum drepinn norður í Skagafirði. Auk Þórhalls hefur Finnur átt dótt- ur, þótt hennar sé hvergi getið. Sú dóttír séra Finns hefur verið kona Odds djákna Gissurarsonar á Val- þjófsstað, og sonur þeirra var Teitur, i'aðir Gróu og Ragnfríðar. Teitur bjó fyrst á Hofi, en síðan á Valþjófsstað, þegar Jón Sigmundsson, sonur Arn- bjargar, systur Teits, afsalaði sér Val- þjófsstað og afhenti Teiti staðinn og mannaforráð þau, sem hann hafði farið með í Múlaþingi. En Jón tók við staðfestu og völdum Svínfellinga. Gissur, faðir Odds á Valþjófsstað, var Eínarsson og vafalaust bróðir Magnúsar biskups, sem inni brann í Hítardal. Oddur djákn á Valþjófs- stað hefur heitið nafni Odds Kols- sonar, Síðu-Hallssonar, þess sem get- ið er í formála Heimskringlu, sem frumhöfundar Noregskonungasagna á íslandi. Nafn Teits Oddssonar er vafalaust úr ætt frá Gissuri hvíta og líklegast frá Teiti, manni Gróu Síðu- Hallsdóttur, og ekki þarf að efa, að Gróa Teitsdóttir hefur borið nafn úr ættum frá Síðu-Halli. ,Mlar þessar nafnalíkingar eru órækt vitni þess, hver var uppruni þeirra Valþjófs- staðafeðga, Odds og Teits. Vera Teits Oddssonar á Hofi í Vopnafirði er bending um, að hann hefur verið dóttursonur Finns lögsögumanns. Við fráfall Gissurar biskups 1118 P « !> R 4< í EYJUM 1646, virtist lögmanni og iögréttu- mönnum, að hann fengi staðizt eft ir þeim atvikum, sem tilfærð voru. Var þetta ályktað voðaverk af hálfu Hannesar, þó að hann synjaði vilja síns með sjöttareiði. og skyldi hann að þeim eiði unn- um bæta erfingjum Þórðar, eftir því sem vitnisburður þeirra, er nærstaddir voru, þegar hann hrap aði, gæfu tilefni til, þó ekki meira en einn fjórða mann- gjalda. (Helztu héimild. Alþingisbæk- ur). er Gissur Einarsson einn talinn höfð- ingi Austfirðinga, en það er vottur þess, að um þær mundir eru öll völd á því svæði að dragast saman á hend- ur hans, og hafa þau lialdizt í hönd- um niðja hans til loka þjóðveldisins. V. Ég þarf ekki að laka það fram, þótt mér þyki það viðkunnanlegra, að það, sem segir hér að framan, eru ályktanir mínar, dregnar af nafnalíkingum, búsetu og eðlisþátt- um þeirra rnanna, sem fjallað er um og kunnir eru af stuttum og losara- legum frásögnum af þeim. Þannig bregður Teiti Oddssyni mjög í kyn Síðu-Halls. Teits er getið sem sátta- manns og friðsemjanda. Þá er Finn- ur lögsögumaður enginn friðarspillir, en fátt um hann kunnugt annað en það, að hann heíur haft mannheill. Annars hefði hann ekki verið kjör- inn lögsögumaður svo fjarri þing- staðnum. Rétt er enn að Denda á Arnbjarg- arnafnið á dóttur Odds djákns á Val- þjófsstað. Hér að framan hef ég get- ið þess til, að móðir Finns prests og lögsögumanns hafi verið Arn- björg af kyni Ámunda Þorsteinsson- ar. Sé sú tilgáta rétt, væri nafn konu Sigmundar, föður Jóns, langömmu- nafn hennar. F í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 765

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.