Tíminn Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Tíminn Sunnudagsblað - 20.09.1964, Qupperneq 16

Tíminn Sunnudagsblað - 20.09.1964, Qupperneq 16
sagnfræðingur: SUÐUR MEÐ SJÓ ByggSin á Vatnsleysuströnd skipt- ist i hverfi. Utan Strandarheiðar verður fyrst fyrir Kálfatjarnar- hverfi, þá Þórustaðahverfi og Auðna- hveríi. Kálfatjörn og kirkjustaður. Nafn á að vera dragíð af því, að kálfar af sækúakyni eiga að hafa komið úr Naustakotstjörn við sjávargötu Kálf- tirninga. í fornum máldaga er stað- urinn nefndur Galmatjörn. en það er marklaust nafnabrengl. Ekki vilja sagnir hlíta því. að kirkja hafi frá upphafi staðið að Kálfatjörn, heldur á hún að vera flutt þangað undan ágangi sjávar annaðhvort frá Þórustöðum eða Bakka. austasta bænum í hverfinu. Sá bær var fluttur tvisvar undan sævarbroti á 18. öld. Að Kálfatjörn stendur ein af stærstu sveitakirkjum hér á landi. iHún var reist 1893, og voru þá rúm- lega 900 manns í sókninni og um helmingi fleiri á vertíðum. Nú telj- ast sóknarbörnin um 370, og ver- menn eru hættir að sækja á Vatns- leysúströnd. Þar var prestssetur til 1919, en þá var staðurinn gerður ann exía frá Görðum á Álftanesi. og situr presturinn nú í Hafnarfirði. Kirkjugarðurinn á Kálfatjörn er heimatilbúinn, mold hefur verið ekið í hann, til þess að unnt væri að grafa menn bar skikkanlega, en jarðvegur er víðast grunnur á Ströndinni. Einn af Kálfatjarnarklerkum var Ámundi Ormsson, d. 1670. Á hans dögum bjó Björn Sturluson smiður á Bakka. Þeir voru báðir hagyrðingar. Björn var bendlaður við víg og óttaðist líflátsdóm. en var að lokum sýknaður. Um hann kvað Ámundi þessa vísu, og er síðari hluti hennar landfrægur: „Þuríði mína þekkja menn“, þetta segir klerkur. Ekki batnar Birni enn banakringluvérkur. Sveinbjörn Hallgrímsson er einn af mestu afreksmönnum, sem þjónað hafa Kálfatjarnarsókn. Hann vígðist aðstoðarprestur þangað 1842 og bjó um skeið i Halakoti í Brunnastaða- hverfi. Byltingarárið mikla 1848 stofnaðí hann ásamt Páli Melsteð sagnfræðingi hálfsmánaðarblaðið Þjóðólf. Það varð langlífasta og eitt- hvert áhrifaríkasta málgagn, sem út ÞRIÐJA GREIN hefur komið hér á landi. Aðstoðar- presturinn frá Kálftjörn er fyrsti íslenzki blaðamaðurinn. Þjóðólf- ur var löngum eitt helzta málgagn sjálfstæðisbaráttunnar út- gefið hér á landí. Ármann á Alþingi, Fjölnir og Ný félags- rit voru gefin út í Kaupmannahöfn. Nú réðust íslendingar heima fram á ritvöllinn, tóku að gagnrýna stjórn- arvöldin, krefjast aukins þjóðfrelsis og lýðréttinda. „En látum oss þá vakna, íslend- ingar, látum þjóðlyndi og þjóð- rækni ná því valdi vfir hugum vor- um, svo að vér álítum engin þau málefni oss óviðkomandi, sem að einhverju leyti horfa til heilla fyrir land vort.“ — Þannig hljóðar ávarp Sveinbjarnar ritstjóra í fyrsta tölu- blaði Þjóðólfs. Hann hefur eflaust hvatt sóknarbörn sín af stólnum í Kálfatjarnarkirkju til þjóðrækni, djörfungar og framtaks. Hann var ættaður úr Innri-Njarðvík, systur- sonur Sveinbjarnar Egilssonar rektors. Þingstaður hreppsins var að Kálfa- tjörn fram til ársins 1818. Þá voru hreppsþingstaðirnir að Kálfatjörn, Bæjarskerjum á Rosmhvalanesi og Járngerðarstöðum í Grindavík af lagðir, en þingstaður fyrir alla þrjá hreppana settur í Njarðvíkum. Þá voru Njarðvíkurnar einnig sameinað ar Vatnsleysustrandarhreppi, og hélzt það til 1885, en þá voru þær gerðar að hreppsfélagi með Kefla- vík. Þessar breytingar á hreppaskipt ingu eru sprottnar af fólksfjölgun á Ströndinni á 19. öld. Á fornum þingstöðum hefur víða verið helgi- staður í heiðnum sið, og svo mun einnig á Kálfatjörn. Nokkru fyrír vestan bæinn er hóll, Goðhóll, og stóð þar kot í eina tíð. Hér hefur sénnilega staðið hof þeirra Strand- ara. Einn afburður á Kálfatjarnarþingi er frægur að endemum í íslandssög- unni. Árið 1698 seldi oóndinn á esnni hjáleigunni á Brunnastöðum, Hólm- fastur Guðmundsson, 3 löngur, 10 ýsur og 2 sundmagabönd i Keflavík, en samkvæmt kaupsvæðaskiptingu átti hann að verzla 1 Hafnarfirði. Kaupmaðurinn þar, Knud Storm, hafði ekki viljað nýta þessa vöru, en samt sem áður kærði hann Hólm- fast fyrir verzlunarbrot og fékk hann dæmdan í háa sekt. Hólmfast- ur átti ékkert fémætt nema gamalt bátskrifli, og Knud Storm vildi ekki nýta það fremur en vöru bóndans og krafðist húðláts. Var Hólmfastur bundinn við staur á Kálfatjarnar- þingi og húðstrýktur miskunnar- laust að amtmanni viðstöddum, en því skotið til konungs, hvort hann skyldi ekki dæmdur til þrælkunar á Brimarhólmi. Hér var þó of langt gengið. Hinn danski lögmaður, Láritz Gottrúp, kærði meðferðina á Hólmfasti fyrir konungi, og síðar tóku þeir Árni Magnússon og Páll Vídalín málíð upp, og hlaut Hólmfastur nokkrar miskabætur. Eftir þetta var gerræði kaupmanna hnekkt að nokkru. Písl- imar við staurinn á Kálfatjarnar- þingi voru ekki færðar til einskis. Hólmfastur Guðmundsson býr á Bræðrakoti, hjáleigu frá Innri-Njarð- víkum, árið 1703 og telst þá 56 ára. Árið eftir strýkingu Hólmfasts (1699) fékk Knud Storm menn á Kálfatjamarþingi til þess að veita sér siðferðisvottorð, þar sem segir m.a.. „að Knud Storm hafi umgeng- izt frómlega og friðsamlega við sér- hvern mann----------. . . og sérhvers manns nauðsynjum jafnan góðvilj- uglega gegnt og tilbærilega hjálpað og fullnægt með góðri kaupmanns- vöru í allan máta, svo sem sérhver óskað hefur og sérhverjum af oss er vitanlegt. Hvers vegna vér skyldug- lega viljum---------gjarna óska, að fyrr vel nefndur kaupmaður mætti vel og lengi með lukku og blessun sömu höndlan fram halda og hljóta (bæði hér á landi og annars staðar) guðs náð og gleðileg velfelli til lífs og sálar æ jafnan fyrir Jesum Krist- um“ Landakot er austast í Auðnahverfi. Þar bjó Guðmundur Brandsson, UM REYKJANESSKAGA — YNGSTA HLUTA ÍSLANDS 880 T í M 1 N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.