Tíminn Sunnudagsblað - 22.11.1964, Page 22
sumt á mannleg þjóðfélög. Þar er þó
á sá raginmunur, að samfélag hvít-
mauranna byggjast á eðlisávísun, sem
er meðfædd, en þjóðfélög manna eru
menningarfyrirbrigði, að vísu lífs-
nauðsynleg, en gefa þó meira svig-
rúm til fjölbreytni en skordýrasam-
félögin, þar sem alit gengur eftir
föstum fyrlrfram ákveðnum reglum,
sem ekki verður breytt, nema með
breytingum á genum tegundarinnar.
Samfélagsform manna eru þeim hins
vegar ekki meðfædd, þótt segja megi,
að þörfin á einhverju samfélagsformi
sé mönnum eðlislæg.
Aldursmunur á hvítmaurum og
mönnum sem tegundum er mikill
Skordýrasamfélögin hafa staðið
óbreytt i 50 milljónir ára. en ekki
mun vera nema um 1 milljón ára
(sumir segja reyndar hátt í 2 millj
ónir) síðan fyrstu mennirnir komu
fram á sjónarsviðið. Þróunin hefur
þannig haft miklu lengri tíma til
að móta samfélög skordýranna en
þjóðfélög manna, og það er ólíklegt,
að mannlegt samfélag eigi nokkurn
tíma eftir að taka á sig ósveigjan-
leik hvítmaura samfélagsins. En ýms-
ir eru þó á því máli, að slíkt kunni
að verða nauðsynlegt, og þeir eru
til, sem vilja gera mannlegt líf að
einni allsherjar hvítmauraþúfu. Það
verður hver að gera upp við sjálfan
sig, hvort hann telur slíkt æskilegt
eða ekki.
Brautryíjandi —
Framhald af 1040. síSu.
lega meðaumkun með sjóveikísjúkl-
ingunum í hásetaklefanum, og
skrapp Skafti því niður og
sótti Kristine. Hún ætlaði varla að
treysta sér, en hann fullvissaði hana
um, að þó þröngt væri í stýrishús-
inu og litið um sæti, væri miklu
betra þar að vera en niðri í loftleys
inu. Hún dreif sig því upp, tók iagið
með, „og viti menn,“ segir hún,
„sjóveikin batnaðí, og ég skemmti
mér konunglega eins og þæi hinar.“
Eftir heimkomuna til Noregs
skrifaði frú Ebbing systur sinni og
bað hana um Helgukvæðið. Skafti
og ferðalagið með honum virtist
vera henni eftirminnilegra en flest
annað úr íslandsferðinni.
Þessar norsku systur eru dætur frú
Mörthu tílatved-Praih, sem mörgum
íslendingum er að góðu kupn. Hún
hefui oft komið til íslands og ferðast
hér mikið. Fyrst og tremst hefur
hún verið að heimsækja ættingja
sína, en hún hefur líka verið hér
fulltrúi félagasamtaka og komið
fram vi» hátíðleg tækifæri i
nafni norsku þjóðarinnar, til dæmis
á Snorrahátíðinni. Flutti hún oar
frumnrt kvæði. Er það i bók Jónas-
ar Jónassonar um Snorrahátíð
ina en hefur því miður
ekki verið þýtt á íslenzku. Um skeið
átti frú Glatved-Pralh sæti í Stór-
þinginu norska. Hún hefui unnið
mjög mikið að félagsmálum og er
vel þekktur og eftirsóttur fyrirlesari.
Víða hefur hún flutt erindi um ís-
land. Báðar skilja þær mæðgur ís-
lenzku sæmilega. Frú Ebbing er líka
mikill íslandsvinur og hefur skrifað
margar greinar í norsk blöð um ís-
land og íslenzk málefni. Mun kynn
ingin við Skatfa og ferðalagið með
honum hafa átt eigi alllítinn þátt í
að vekja áhuga hennar á íslenzkri
menningu.
IX.
Ég held, að ég hafi engan mann
þekkt jafnöruggan í trú sinni á guð-
lega vernd sem Skafta, enda virðist
reynsla hans í þeim efnum óviðjafn-
anleg. Fjölmargar leiðbeiningar og
viðvaranir hefur hann fengið um dag
ana með einhverjum dulrænum
hætti, sem hann skýrir hiklaust þann
ig, að „yfir sér sé vakað.“
Frá einum slíkum atburði ætla ég
að segja hér, og hefur Skafti sagt
mér þetta sjálfur. Én ég hef líka
fengið frásöguna staðfesta í ýmsum
atriðum hjá öðrum. Vel hann úr, af
því hann er tengdur sérstak-
lega minnísstæðum atvikum ,en ekki
af því, að hann sé í rauninni merki
legri en ýmsir aðrir.
Skafti og Pétur, bróðir hans,
komu til Siglufjarðar frá Akureyri á
Úlfi þrem nóttum fyrír snjóflóðið
mikla 12 apríl 1919, sem sópaði
burtu stórri síldarverksmiðju við
austanverðan Siglufjörð, húsum og
fleiri mannvirkjum og tók 18 manns-
líf.
Mikil fannkoma var, en ekki
hvasst. Skafti renndi upp að Gránu-
bryggju, sem var innst á eyrinni aust
anverðri, og ætlaði sér að leggja bátn
um þar. En um leið finnst honum
hvíslað að sér: Ekki þarna. Þetta var
svo ákveðin fyrirskipun, að hann
hlýddi óðar og hélt inn að bryggju
víð sunnanverða eyriiia, sem lengi
var nefnd Friðleifsbryggja, og lagð-
ist við hana vestanverða. Þar bundu
þeir bátinn sem bezt þeir gátu með
sterkum taugum, því að hríðin hélzt.
Farm höfðu þeir talsverðan, þar á
meðal olíuföt á þilfari. Þeir bræður
sváfu um borð á nóttunni.
Nóttina áður en snjóflóðíð féll,
ir iwi .........................
Lausn
40. krossgátu
hafði Skafti órólega drauma, og
morguninn eftir var hann sannfærð-
ur um, að einhver hætta væri a§
steðjandi. Hann lét því verða sitt
fyrsta verk að kasta akkerisfestinni
yfir bryggjuna og binda hana vand-
lega við stólpana. Snjóflóð datt
honum ekki í hug, að gæti grandað
þeim þarna. En nóttina eftir féll
snjóskriðan, og flóðaldan lyfti
bátnum alveg upp yfir bryggjuna,
svo að öll böndin slitnuðu, nema
akkerisfestin. Hún hélt, en annars
hefði báturinn sjálfsagt farízt. Tals-
vert tók framan af næstu bryggju
vestan við og braut um leið af stýri
bátsins. Svo glöggt stóð þetta, að
ef slaknað hefði á festinni svo sem
1—2 fetum meira, myndi byrðingur-
inn hafa brotnað og báturinn sokkíð.
Margir bátar, sem lágu við bryggj
urnar, sukku, en ekki voru menn í
þeim. Gráriubryggja fór alveg og all-
ar aðrar bryggjur á austanverðri eyr
inni út að Baldri. Er ekki að efa,
að þessi einkennilega viðvörun bjarg-
aði lífi þeirra bræðra.
Skafti er nú kominn yfir sjötugt.
Ég hef spurt hann, hvort hann hafi
enn sömu tilfinningu og fyrrum, að
yfir honum sé vakað.
„Ekki fyllilega," segir hann. „Að-
staðan er önnur síðan ég hætti sjó-
mennsku, og svo er gamla hugboðið
um, að ég eigi hlutverki ólokið, horf-
ið. En traust mitt og trú á góðum
guði er óbreytt."
Lánið — eða heppnin — virðast
enn fylgja Skafta. Aldrei hefur síld-
in brugðizt Siglfirðingum jafnherfi-
lega og í sumar. í Siglufirði er 21
söbunarstöð. Flestar eða allar höfðu
þæi margt fastráðið fólk og marg-
víslegan tilkostnað, en alls voru þar
aðeins saltaðar 12.634 tunnur. Marg-
ar stöðvanna fengu ekki eina bröndu,
aðrar fáein hundruð tunnur, en á
Nöf var söltuð 3.621 tunna. Mér er
sagt, að það muni hafa verið eina
stöðin, sem bar sig nokkurn veginn.
W' NO ♦ SJ r fí s \ 6 \ / \ > N s s 1 \ P> t_ J
\ H * V 1 s \ fí N
• K 6 \ T D L T fí
\ fl F \ K fí P L fí R
\ G \ 1? tl L fí P \ P P
A s R fí 1 N N i K
fl b fí F L i P n H N fí i
N fí F N s i N \ N í P fí
s N n s \ T U s * u fí O
fí S fi F fí s •c 0 \ K fí P
s K fí V L K O 0 \ a P n \ N ri
> * ri \ V L \ s T * K R /í p
u u \ ri \ r L A V 1 U s 1
p R o K tc fí V n \ í u N \ N
L * n N G o V o R P u R \
\ fl i> J L s fí N N \ K u s ó P
fi \ L \ fí p fí K \ M \ s
* o L a \ o T u L
R ó \ i fí' K 0 5 fí R \ R s
Á L 1 H á 1 S M fí t> u X
1054
T t M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ