Tíminn Sunnudagsblað - 21.02.1965, Page 10

Tíminn Sunnudagsblað - 21.02.1965, Page 10
halda bragðinu. Munnvatnið var hon- um sem gleðitár. „Hvenær náðu þeir þér?“ spurði Warnette á ný. „Fyrir fimmtán mánuðum," svar- :aði hinn. Warnette blístraði í hljóði. Fimm- tán mánuðum. Hann skildi, hvað það þýddi. Grænleita birtu bar á skaðskemmd andlit þeirra, sem í vagninum voru, líkast því sem þeir væru komnir nið- ur á sjávarbotn í órofaflækju af rotnuðum marhálmi. Warnette fannst jafnvel andlit þessa vinar síns líkast ásjónu drukknaðs manns. Drættir þess voru þó rólegir og ákveðnir, og augun, ögn útstæð, voru einlæg og hreinskilin. En brúnirn- ar voru merktar blóði eftir mikla barsmíð. „Við eigum langa ferð fyrir hönd- um,“ hrökk út úr Warnette. „Lítur út fyrir það.“ Þeir voru enn sannfærðari um það en áður, að þetta yrði löng ferð. Einhvers staðar úr rökkvuðum vagninum heyrðust umbrot og óp, þungar og þjáningarfuliar stunur. Þetta kom utan úr horni. „Gefið honum loft, gefið honum loft. Hann er að deyja.“ Fangar þeir, er stóðu umhverfis hinn deyjandi mann, reyndu að rýma til, svo að hann mætti fá ofurlítið andrúmsloft. En mannabúkarnir voru eins og sandkvika. Það er unnt að ýta henni frá sér með öxlum og baki, en hún sígur aftur að. Þessi. lifandi hraunstraumur flóði óaflátanlega inn í hverja minnstu glufu, og þeir, sem reynt höfðu að færa sig aftur á bak, hættu fljótlega svo gagnslausrj til- raun. Fylkingar færðust saman á ný, og maðurinn hneig í andarslitrum niður í nafnlaus og loftvana djúp. Stuna hans brast eins og bóla. „Allt þetta fólk . . .“ tuldraði Warnette og benti á þröngina kring um sig. Hinn brosti við. Ekki gat hið sama átt við „allt þetta fólk“, þar sem engum samanburði varð hér við komið. „Hvað stundaðir þú?“ spurði War- nette. „Vann í Iögfræðiskrifstofu." „Það mun rétt vera.“ hugsaði Warnette, „hann lítur út fyrir það.“ „Ertu kvæntur?" „Já. Tvö börn — drengur og telpa.“ „Ég á bara eitt. Telpu.“ Hann varð að hugsa sig um til þess að muna það. Þá spurði hinn: „Hvað starfaðir þú?“ Vatnið var enn að koma fram í munninn á Warnette. Dásamlegt að hafa þetta brauðbragð uppi í sér. Hann var ofurlítið upp með sér, þegar hann svaraði spurningunni: ,Ég var ekki í neitt svipaðri vinnu og þú. Þvert á móti því öllu“ „Ég skil,“ anzaði hinn. „í þínu starfi hefur ekki verið neinn tími til viðskipta." Þetta var satt. Það var ekki unnt að”~stunda atvinnu og gegna her- þjónustu samtímis. Warnette hafði kosið að berjast íýrir góðan mál- stað, og hann var hreykinn af því. Hann fann brjóst sitt svella og blóð- ið renna hraðar um æðarnar. Þó furðaði hann á sjálfum sér. Hann hafði ekki varpað sér út í baráttuna fyrir sakir þeirrar heitu sómatil- finningar, er fór um æðar hans. Honum varð litið til vinar síns. Þrátt fyrir örin á andliti hans, hvíldi hógværð yfir því, eðlislæg góð- mennska, og framstæð augun ljóm- uðu af manngæzku. Svona piltur hlaut að hafa getað haldið starfi í lögfræðiskrifstofu svo lengi sem hann langaði til, án þess að nokk- ur hefði neitt á móti því. Mikið var hann annars líkur meinlausum verzl- unaraaanni. Og það var eitt af því, §em þjóðskipulagið krafðist. „Var þér ekki illt í maga?“ hvísl- aði Warnette. Brosið hlýja dofnaði á andlitinu með augabrúnirnar blóðstokknu: „Ekki þegar þeir kölluðu upp nafn ið mitt áðan,“ svaraði hann. Warnette svaraði engu. Hann vissi, við hvað var átt. Hann þekkti kvíð- ann fyrir að vera kallaður út úr hópnum, heyra nafn sitt kallað í fangelsisgarðinum. Síðan er maður- inn rekinn inn í lítið og einangrað herbergi, þar sem tveir hörkulegir og herðabreiðir náungar bíða með grimmdarlegum górillusvip. Hann var því kunnugur er svo stóð á, hversu unnt var að halda dauðahaldi í þá von að finna rakblað falið í dýnu. Og við langdvalir í slíkum klefum hafði hann með einhverjum hætti öðlazt þrek til þess að þrjósk- ast við að tala, með því að telja sér trú um, að hvað sem öðru liði, þyrfti hann ekki að ganga undir aðra yfirheyrslu. Því í klefa sínum næstu nótt, gæti hann forðað sér frá öllu þvílíku. Það var notaleg til- hugsun að geta skorið á slagæðina og látið hjartablóð sitt fjara út með hægð á milli þeirra skelfingarstunda, er þessi ruddamenni tóku hann að sér. Sú hafði þó orðið raunin á, að þeir settu hann í annan klefa. Nú var hann ekki lengur í einangrun. Þarna var tylft annarra manna hjá honum. Fyrir þær sakir leit allt bet- ur út fyrir hann. Hann var í hópi. Því hættan er ævinlega mest fyrir þann, sem er einn síns liðs. Áf sömu ástæðu fann hann nú til öryggiskenndar hér í þessum lestar- vagni, innan um eitt hundrað og fimmtíu nafnleysingja, sem hann þekkti ekki höfuð né sporð á. Hann var ekki lerigur sérstakt herfang út af fyrir sig. tfissulega er unnt að murka niður manngrúa með vélbyssu, en það er allt öðru- vísi en hitt, er nafngneindurr einstaklingur stendur einn frammi fyrir kvölurum sínum, sem af djöfullegri ánægju hafa ákveðið að draga upp úr honum allt, sem hann veit, og eru þegar teknir til að beinbrjóta hann og húðfletta. Lestin brunaði áfram í brennandi sólarhitanum. Svækjan var þegar far- in að höggva skörð í hópinn — þeir sem veikastir voru fyrir, hnigu nið- ur. Þeir Warnette og félagi hans brostu vorkunnsamlega að mönnum, er kveinuðu út af því einu, að þeim skyldi vera þrengt saman, hálfu öðru hundraði talsins, í einn og sama lest- arvagn, á leið til ókunns ákvörðun- arstaðar, án matar og drykkjar. Þeir vissu áreiðanlega ekki, hvað það var að vera tekinn fyrir sem alls vana einstaklingur. Þeirra voru þó for- réttindin að vera óþekktir, aðeins hlutar af heildarmúg. Þeim fannst verið að gera út af við sig einung- is með því að reka þá úr einu troginu í annað. „Hvers vegna hættið þið ekki að kvarta?" hrópaði Warnette til þeirra, „og reynið að koma á reglu? Það er betra en þetta víl.“ Það var rétt eins og hann hefði rekið þeim löðrung. Einhverjir hróp- uðu í ásakandi andmælarómi: „Hvernig heldurðu, að við getum komið á reglu? Við, sem getum ekki einu sinni hrært handleggina." Þetta var satt. Það var ekki unnt að hreyfa sig. „Stillið þá^ skap ykkar, það er höfuðskilyrði fyrir röð og reglu,“ mælti Warnette. „Eina leiðin til þess að bæta skap mitt er sú, að komast úr þessu hel- víti,“ svaraði annar. Warnette gafst upp. Þeir skildu ekki þetta. Þeir höfðu ekkert verra til samanburðar. Það dimmdi af nóttu. Hin dauf- græna dagskíma í lestarvagninum breyttist í kolamyrkur. „Fimmti dagurinn verður verstur," hrökk út úr vini hans. Warnette kinkaði kolli. Honum þótti vænt um að mega ferðast með manni, sem auðsjáanlega var öllum hnútum kunnur. Þeir brostu hvor til annars. Báðir áttu þeir mur.n- vatn uppi í sér og vissu, hve dýr- mætt það var. Þess myndu þeir sakna sárlega á fimmta deginum. Þá myndu hinir óhraustari vera dauð- ir og deyjandi allt í kringum þá. En þeir myndu geta þraukað það af. „Það er sálarþrekið, sem allt velt- ur á,“ mælti Warnette og túlkaði með því það, sem báðir höfðu verið að hugsa um. Utan úr horni heyrðist reiðilegt 154 IÍM1NN - SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.