Tíminn Sunnudagsblað - 21.02.1965, Side 11

Tíminn Sunnudagsblað - 21.02.1965, Side 11
kjökur. ungur maOur gat ekki orða Íundizt: „Þetta er ómögulegt. Þeir eta ekki látið oktetr afskiptalausa lla nóttina, án þess að gefa okkur vo mikið sem vatnsdropa." Þeir litu hvor til annars, Warn- ?tte og vinur hans. Vesalings dreng- Urinn. Hann var ekki lífsreyndur. Sumir fanganna reyndu að setjast eða leggjast niður, hver ofan á ann- án. Hópurinn virtist nú heldur láta Sefast. Öldugangur þessa mannhafs kyrrðist um sinn. „Þeir vilja leita hvíldar of snemma,“ varð hinum að orði. „Þeir vita ekkert um þetta,“ anz- aði Warnette. „Og okkur þýðir ekki að segja þeim neitt, þeir hlusta ekki á það.“ „Nei, ekkert." Warnette velti uppi í sér þessum tveim þungu atkvæðum, ekkert, eins og hann hafði gert með brauðmol- ánn. Ósjálfrátt velti hann þeim aft- ur og fram á tungunni, geymdi þau pppi í sér eins og tákn um vernd þá, er þau virtust lofa. Nóttin umvafði þá óralöngu faðm- lagi óminnisins. „Lestin staðnæmist. Ég vissi, að svo hlaut að fara.“ Rödd unga manns- Íns kvað við á ný. Nú var hún gleði- iróður hinnar fyrstu morgunskímu. Lestin nam staðar. Nú hófust um- þrot í öllum vagninum, því að allir reyndu að ryðjast til dyra. Blótsyrði, hróp og heitingar. „Þú verður að gera þeim þetta skiijanlegt," sagði hinn. „Þá munu þeir standa kyrrir á morgun, hver a sínum stað, þó að lestin hægi á gér. Þá troðast þeir ekki hver yfir annan.“ Þeir, er næstir stóðu dyrunum, Íömdu á hurðina, þangað til blóðið agaði úr hnefum þeirra. Aðrir eyddu munnvatni sínu í óhljóð. „Þeir ættu að spara þrótt sinn til fimmta dagsins,“ mælti hinn. „En þeir kunna ekki skil á þessu,“ svaraði Warnette. Ungi maðurinn hljóðaði æðislega: „Eftir hverju eru þeir að bíða? Hvers vegna hleypa þeir okkur ekki Út hér?“ Þessi rödd var áþekkust lambsjarmi. Warnette kenndi í brjósti um liann. Hann fann sér skylt að vara piltinn við að reyna svo mikið á sig, ef hann vildi sleppa lífs úr þessari ferð. „Þeir ætla ekki að opna hurðina. Þeir eru bara að síldpta um eimvagna,“ kallaði hann. í daufri dagmálaskímunni sá Warnette, hvernig andlitin umhverf- is hann, sem feginsbjarma hafði brugðið á í fyrstu, tóku nú á sig yfirbragð örvæntingar og vonbrigða. Það var tilgangslaust, hugsaði Warnette. Þeir höfðu engin tök á samanburði. Aftur lagði lestin af stað, og Warn ette fann, að þeir, sem í kring um hann stóðu, hötuðu hann, hötuðu hann í blindni, eins og honum væri um að kenna, að dyrnar höfðu ekki verið opnaðar. Hatrið lagði eins og rafstraum frá einum til annars, og hann fann það svo greinilega hjá þeim, sem næstir honum stóðu, er þeir gáfu honum olnbogaskot eða gutu ólundarlega augum til hans, en jafnvel hatur þeirra entist skamma hríð. Þeir voru of máttfarnir til þess að hata. Og straumurinn lin- aðist og leystist upp í þessum más- andi, stynjandi múg, en óþolandi stækju tók að leggja af óþvegnum líkömum og önduðum náum í vagn- inum. Þeim varð þungt um andardrátt af ólyktinni. Vegna hitans tóku lík- amir hinna látnu skjótlega að rotna og boðaði þeim, sem eftir lifðu, hvað í vændum var. „Það er skammarlegt, sví- virðilegt,“ mælti unglingurinn ekka- þrunginni röddu. „Að hugsa sér þeir skuli láta okkur deyja svona, deyja eins og hunda, eins og hunda.“ Hann æpti þessi andmæli í örvæntingu, öskraði þau hásum rómi. Argaði þau af öllum þeim veika mætti, sem hann átti til. Hann var ljósrauður á hörund og þakinn freknum, varir hans veiklulegar og eitthvað barns- iegt í röddinni. Warnette sárvor- kenndi honum og vildi gjarna hjálpa honum, en vissi ekki, hvernig hann ætti þess kost. Lestin skrönglaðist leiðar sinnar. Loftið var hressandi þennan sumar- morgun — svo ferskt, að þeir fundu það jafnvel inni í vagninum. „Á sumrin var ég vanur að fara á fætur um þetta leyti,“ mælti hinn hljóðlega. Augu hans leiftruðu: ',,Ég bjó lengst af í úthverfunum. Það óx tré fram undan svefnlierbérgisgluggan- um mínum. Fuglarnir vöktu mig oft- ast, þegar þeir voru að fljúga um í trénu. Þykir þér vænt um fugla?“ „Það er nú lílcast til,“ svaraði Warnette. Framhald i 164. síðu. X f M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 155

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.