Tíminn Sunnudagsblað - 21.02.1965, Page 14

Tíminn Sunnudagsblað - 21.02.1965, Page 14
. «n»niiwwwrm»w» nu». ■—-i n ------------- --------------------------------------- Kópavogur eins og þar er nú umhorfs. Hinn gamli þingstaður var skammt frá brúnni á læknum. Þar hafa margir verið kveðnir, þar sór Árni lögmaður Oddsson einveldiseiðinn með tár í augum, og þar þinguðu þeir Gissur Einarsson og Kristófer Hvftfeldur um það, hversu með Ögmund biskup skyldi farið. Ljósmynd: Þorsteinn Jósepsson. Asdísar, sem heíui vafið hann að sér og streittist á móti eftir megni. Honum er snarað á hest og strák- ur settur til þess að teyma undir honum. Svo er haldið úr hlaði: Þetta er undarlegur hópur, sem sif ast upp heiðarbrekkurnar um það bil, er júnísólin veitir Suðurlandi árdagskossa sína: Leiðsögumaður- inn norðlenzki, sem forðum þá skjól undii verndarvæng Ögmundar í Skálholti, ríður fyrir, keikur og rogginn og þykist hafa röggsamlega innt af höndum trúnaðarstarf sitt, örvasa biskupinn, sem húkir blind- ur og kýttur á færleik sínum, glott- andi strákurinn sem undir honum teymir, og í kringum þá brynjaðir hermennirnir af skipi Kristófers Hvítfelds, með sverð í slíðrum við hlið sér og lensur og langskeptar axir á lofti. Þeim verður seinfarið, þó að hest arnir séu heimfúsir. En áfram mjak- ast, og ekki er förinni létt fyrr en kornið er í Ifólminn. Þar er biskup fluttur á skip út. Það heitir Brima- Samson, þetta skip. sem hann er vistaður á. XV. En ekki linnir ferðum yfir heið- arnar. Kláus van der Marwitzen kemur að austan og færir Kristófer Hvítfeldi bréf frá Gissuri biskupi. Því miður eru fréttirnar ekki góð- ar. Þeir félagar hafa riðið í*Hauka- dal til þess að rannsaka þar plögg Ögmundar biskups og leita verð- mætra muna, er hann kunni að eiga þar. En sú leit hefur borið lítinn árangur: „So was dar nychtes van sulver werke,“ segir í biskupsbréfi — ekk- ert utah einn silfurkaleikur, sem vó aðeins tvö lóð. En góð ráð getur Gissur biskup lagt Kristófer Hvít- feldi: Hvert silfurverkið hefur verið flutt frá Ifaukadal, getur „hinn gamli bezt sagt, ef hann vill það gera.“ Það er því ekki vonlaust um, að silfrið komi í leitirnar, ef þess er vendilega gætt, að blindi biskupinn sleppi ekki. Ella er við búið, að til ískyggilegra átaka geti komið: „Gætið þess því, leue Crystoffer, að hleypa refnum ekki aftur á land upp.“ Komist hann á „aldinck“ aust- ur er við búið, að fylgismönnum hans gerist heitt í geði. Uppreisn kynni að vofa yfir, ef hann næði fundi þeirra. íslendingar eru ekki enn jafnhallir undir hinn nýja sið og Gissur Einarsson hafði sagt í bréfi sínu til konungs fyrir þremur misserum, og ef í harðbakkann slær, á gamli biskupinn meiri ítök en sup- erintendentinn. Eftir þessar fréttir gerist riddar- inn Kristófer Hvítfeldur svo lítil- látur, að hann gengur á tal við hinn fangna biskup, og hvort sem þing- að er um það lengur eða skemur ,er sá sáttmáli gerður þeirra á mi'lli, að biskupi skuli frelsa sig með silfri sínu. Hinn níun-da dag júnímánað- ar er Gissur biskup kominn út á Brima-Samson og hefur haft þang- að með sér séra Einar í Görðum. Ögmundur biskup á að lesa Garða- presti fyrir bréf til systur sinnar á Hjalli. En nú verður hinum blinda öldungi það, að hann lýtur að séra 'Einari og hvíslar orði í eyi’a hans. Kristófer Hvítfeldur bregzt reiður við slíkum launmálum. Hann þrífur handfylli í hár beggja og dregur þá sundur. Loks verður það úr, að Giss- ur bisjcup skrifar bréf í nafni Ög- mundar, þar sem Ásdísi á Hjalla er sagt að fá bréfberanum í hendur það silfur bróður síns, er þar hefur verið grafið í jörðu. Að þessu sinni er séra Einar sendur austur í fylgd með mönnum Hvítfelds. Silfursjóðurinn kemur í leitirnar, og Ásdís tekur úr honum gullnisti, er hún segist sjálf eiga, en fær séra Einari allt hitt. En 158 T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.