Tíminn Sunnudagsblað - 21.02.1965, Síða 17

Tíminn Sunnudagsblað - 21.02.1965, Síða 17
Þegar húsvitjun er lokið á byggðar enda, held ég sömu leið til baka án tafar. En ekki er ég kominn nema tvo þriðju leiðar á „geymstöð," þegar poki minn er orðinn um fjöru- tíu pund. „Geymstöð" hef ég hjá Þórði Jónssyni í Sigtúni og legg þar undir mig heilt herbergi í kjallara. Þangað safna ég öllu grjóti, og þar læt ég það í kassa. Þórður þarf oft að setja bílinn í gang meðan ég stunda þessa hjá- vinnu, og ég þakka mér að nokkru þá æfingu, sem hann hefur í akstri. Yfirleitt eru allir boðnir og búnir til þess að rétta mér hjálparhönd. Þetta minnir helzt á Bandaríkin, þó að ég sé ekki alveg viss um, að hjáipin þaðán sé veitt í sama skyni og með sama hugarfari. VI. Daginn eftir hefst svo leit með hinn græna dólg í huga. Það er rigning með dólpungsroki — slíkt veður nefndi einn orðkring- ur maður á Héraði hlandhríð með skítkasti. Svavar Björnsson í Geitavík leggur samt ótrauður á dráttarvélina. Ég sit á pokum aftan á, en Birgir, bróðir hans, sem er yngri, fylgir eftir á hjóli. Sá græni á að vera í skriðum utan við Snotru- nes, og í þá átt er ekið. Svavar ekur glatt, og ég sit líkast því í brimskafli. Ég þykist vita, að Svavar sé að springa af hlátri, en segi samt ekki neitt, heldur reyni að loka þeim líffærum, sem opin eru, og verja þau áföllum. Á Nesi fæ ég fjóra stráka til við- bótar, og svo er haldið á ákvörð- unarstað. Þar skipulegg ég liðið þannig, að ég hef nokkurt bil á milli strákanna, og er þá hinn efsti uppi undir klettum. Sjálfur er ég neðst- ur, því að ég er seinfær, en strák- arnir fljúga þetta. Þeir eru líka glöggir á grjótið, og þeir eiga að henda því niður, er þeir finna, þann- ig að það gangi frá manni til manns, nema það virtist of viðkvæmt til þess — þá eiga þeir að troða því í vasa sína eða gera mér viðvart. Svavar á að leita græna steininn uppi. „Reynið samt ekki að hitta í haus- inn á mér,“ segi ég við strákana, og svo renna þeir af stað skelli- hlæjandi. Brátt fara að heyrast köll og skell- ir. Ég reyni að vera sem fljótastur að bera saman í hrúgur og reisa merki við þær. Brattinn er svo mik- ill, að það skríður undan fætinum i hverju spori, og oft nota ég hend- urnar jafnmikið og fæturna. Send- ingarnar harðna og veður herðir, og ég blæs eins og hvalur. „Þetta fer nú að verða sæmilegur afli,“ tauta ég, enda tekur nú allt í einu undan og engir skellir heyr- ast lengur. Mér verður litið upp í skriðuna. Allir liðsmenn mínir eru horfnir. Þeir höfðu, eins og von var, forðað sér heim, enda búnir að duga vel. Og ég tek til hins fyrra göngulags og kjótla grjótinu niður að vegi. Von bráðar lcemur þó Svavar, sem bafði farið að horfa eftir selum. „Hvað um græningjann?" spyr ég. „Kominn á kaf og finnst ekki,“ er svarið. Kannski er nóg af græningjum, hugsa ég, og þessi getur líka komið upp að vori. Og ég get beðið. Sár- ast er, hve ég á mikið af landinu ókannað, en aldur gnógur. Bara, að ég gæti náð í eitthvað af þessum framlífsdropum, sem verið er að láta drjúpa ofan í Adenauer — þá myndi ég leggja undir mig Vestfirði. Við erum fljótir að bera á bykkj- una, „og láttu nú sjá, að þú get- ir farið fetið,“ segi ég við Svavar. Svavar brást vel við þessu. Fyrsta ferðin hefur heppnazt eftir vonum, og brátt sit ég yfir rausnarlegu borði og rjúkandi drykkjum. VII. Næsti áfangi er innsti bær í Borg- arfirði, Hvannstóð. Það er fallegt og myndríkt nafn. Svona geta afbakan- ir og útúrsnúningar tekizt vel. í Fljótsdælu segir frá þvi, er Helgi Droplaugarson leitaði Gunnars Þið- randabana í Borgarfirði. Þar er þess getið, að þeir lögðu upp frá efsta bæ í Fannstöð. Ekki er það minn vilji að hnjóða í jörðina, en frekar mundi ég kenna hana við fönn en hvönn, epda fyrirfinnst hún þar ekki. Þarna býr svili minn, Sveinn Bjarnason, með konu sinni, Önnu Jónsdóttur. Þau hafa lagt landinu til tíu börn. Og þar er grjótval mikið. Ég vona þó, að lesendur fari ekki að bera mér það á brýn, að ég geti ekki fólks að neinu nema grjót fylgi. Uppistaða þessarar frásagnar er grjót, því að þetta er ekki ævi- saga neins. Mat mitt á mönnum fer ekki heldur eftir grjóti. En þar þyk- ir mér ekkert á skorta, er saman fergott fólk og grjót myndrænt. Ég hringi í Þórð Jónsson í Sig- túni og fortel honum áætlun mína. „Hvenær ferðu?" „Með morgni." „Vertu rólegur þar til ég kem.“ Ég var svo sem ekki að beiðast neins, en Þórður kemur að morgni. Við ökum sem leið liggur inn sveit. Mér verður starsýnt á Dyrfjöllin og ekki sízt dyrnar sjálfar. Annars þykir mér þau enn tignarlegri af Héraði, og um það hef ég marga fÍMINN - SUNNUDAGSBLAÐ 161

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.