Tíminn Sunnudagsblað - 21.02.1965, Síða 18

Tíminn Sunnudagsblað - 21.02.1965, Síða 18
Vindaský yfir Dyrfjöllum. — Ljósmynd: t*orstelnn Jósepsson. hildi háð við Borgfirðinga. Það ex eins og þessar dyr minni mig alltaf á aðrar dyr — dyrnar rnilli þess, sem er, og hins ókomna — og ekki laust við, að það sé í hinni víða'i meikingu. Dyr þessar eru fáfarnar, en ekki hai’ðlæstar. Ég man eftir tveimur mðnnum, sem fóru þar 1 gegn fyrir tugum ára. Það voru þeir Hannes hreppstjóri Sígurðsson og Þórður bóndi Þórðarson, báðir snarmenni og iþróttamenrx að fornum hætti. Þá var jökullinn rneiri báðum megin, og ég hygg, að þeir liafi farið að mesh' á jökli og .án þess að klífa berg. Hvort Þorsteinn borgari fór þarna yfir, vil ég ekki fullyrða. Svo gerðist það í sumar, rétt áð- ur en ég kom austur, að tveir ungir Borgfirðingar, Ingi og Ragnar Sigbjörnssynir, klifu þar yfir. Þeir fóru eitt kvöld að lokinni brúar- vinnu í Njarðvík inn í Dyrfjalladal undir Dyrfjöllum norðan megin. Ég veit ekki, hver ráðagerð þeirra hefur verið, en endirinn varð sá, að þeir klifu í gegn, komu gangandi niður á Bakkagerði og fengu þar bíl með sig til Njarðvíkur Aðstaða þeirra var allt önnur en hinna. Nú er jökullinn að mestu horfinn beggja megin eftir milt veð- urfar í marga áratugi. En þeir kváðu hafa fundið rák, sem þeir komust eftir. Einu torfærurnar á vegi okkar eru grindarhliðin beggja megin bæja, nokkurs konar krabbamein í vega menningunni. Jón litli, sonur Þórð- ar, tíu ára gamall grjótvinur minn, er samt ekki lengi að aígreiða þess- ar grindur, enda leikur hann sér með hundrað pund á bakinu. Ekki leiðist mér heldur hjá Þórði, því að hann er allra manna beztur félagi, hvað sem í skerst. í Hvannstóði er allt laust mér til handa. Fyrir utan veitingar í mat og drykk er farið með mig á dráttarvél á fjöll, þar til jörð þrýt- ur, en þá eru mér látnir í té burð- armenn. Morguninn eftir göngum við Sveinn bóndi ofan á Þveráreyrar, sem er skammur vegur. Eyrar þess- ar eru dreifar eftir ár, er koma innan úr fjöllum og njynda Fjarð- ará. Þarna finnast oft fallegir stein- ar, sem árnar hafa borið langt að. Við göngum eyrarnar á vísindaleg- an hátt, svo að færra fari á milll mála. Og við köllumst á og berum saman bækurnar um það, hvað eigi að taka. Sveinn er eldklár á grjót. Ef vafi leikur á um stóra steina, er sleggja tekin úr pússi okkar og greitt með henni högg, því að oft getur verið fallegt innan í steini þótt lítt sjái þess merki hið ytra. Þetta er hliðstætt því, sem er um okkur mennina. — Þarna göngum við fram og aftur og berum grjótið saman í vörðu. Þessu næst höldum við inn með ánni, þar til gljúfur teppa. Sveinn var þá búinn að bera mig yfir ána fram og aftur, því að hann var stíg- vélaður. Þarna var margt fallegt að sjá, en flest of stórt fyrir mig. En hugsað varð mér til blómagarðanna. Ekkert fer betur við blóm en fal- legt grjót. En það er eins og ann- að fyrir íslendingum: Þeir einblína flestir á blóm. Ekki skal lasta blóm. En það er ekki heiglum hent að standa í því verðlaunabrasi, sem 162 T í M I N N — SUNNUDAOSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.