Tíminn Sunnudagsblað - 21.02.1965, Blaðsíða 20

Tíminn Sunnudagsblað - 21.02.1965, Blaðsíða 20
livað sveitafólkið teggui a sig, og vita enda ekki, hvað það fær í sinn hlut, þegar allt hefur verið klippt og skorið. Fjöldi bænda skrimtir á því að stunda vinnu utan heimilis — sumir eru jafnvel sem gestir á heimili sínu. Þetta hlýtur að leiða til þess, að þeir geta ekki sinnt bú- skapnum og heimilinu, og allt dreg- ur til eins og hins sama. Á æskuárum mínum hataði ég öii sveitastörf, og lágu til þess ýmsar ástæður, sem ekki koma þessu máli við. Samt sem áður er ég ekki á móti landbúnaði. En að hinu leyt- inu segir mér þungt hugur um hann. Þó dugir lítt, að ég eða aðrir, sem flúið hafa úr sveitunum, séu að gern sig digra við þá, sem eftir ern Morguninn, sem ég fór frá Hóli, komst ég í mjólkurbíl sveitarinnar áleiðis að flugstað. Og þarna lenti ég í því ævintýri að vera með að smala allri mjólk sveitarinnar. sero fer til Egilsstaða. Mér hefur alltaf veriö iitiö uuí kýr, jafnvel svo, að ég neytti .varia mjólkur Og þegar ég sá þarna nokkr ar kýr á bæ, að einum undantekn um, sóttu að mér válegir vökudraum- ar. Mér fannst þessi kúastrjálingur vera eitt Iandauðnarmerkið Það mun þó rétt vera, að í svip gefa kýr ofurlítið meiri arð en sauðfé. En á það er að líta, að á undan- förnum árum hefur þetta fólk not- ið dálítils frelsis á meðan sauðfén- aður stikaði um afréttirnar. Þegar nú kýrin er setzt í öndvegið, er vinnan hvíldarlaus árlangt — það bætist ofan á fámennið, að aldrei gefst tómstund. Hér verður allt að ganga eftir skeiðklukku — engu má skeika. Ég sé í anda unga fólkið tínast burt, en eftir sitja vinnulúln hjón með yngstu börnin, unz svo færist aldur yfir, að börn hætta að fæðast. Og þessi ungu börn vaxa og finna slóð hinna. Hvað lengi þrauka svo_gömlu hjónin við að mjólka? Framhald af 155. síðu. „Auðvitað," hugsaði hann. „En ég hef aldrei haft tíma til að hlusta á þá.“ „Það er dásamlegt," tuldraði hinn við sjálfan sig. „Tré, sem er fullt af fuglum.“ „Já, það er yndislegt," át Warn- ette upp eftir honum. Hann hafði aldrei haft tíma til að kynnast fugla- lífi og trjágróðri. „Og meðan ég var að raka mig,“ hélt hinn áfram, „tók hún til morg- unvex-ðinn. Steikti brauðið. Ég þurfti ekki annað fyrir að hafa en setjast niður og drekka kaffið.“ Warnette óttaðist, að heimþráin myndi draga úr skapstyrk félaga síns. En hann var á kafi í minning- um sínum. „Það veitti manni kjark til þess að hefja dagsverkið," sagði hann. Kannski var það vegna þess, að hann byrjaði dagana með þessum hætti hugsaði Warnette, að hann hafði kjark til að mæta öllu, er á þá hafði drifið. En þessi viðkvæmni olli honum vandræðum. Warnette hafði þolað pyntingarnar vegna þess, að hann var hermaður, og kannski vegna aðdáunar sinnar á ímynd hreystinnar. Ef til vill hafði hinn verið að hugsa um hendur konu sinn ar, sem smurðu morgunbrauð hans, Ég vildi mega vona, að grunur minn rættist ekki. Og þessar hug- myndir mínar eiga ekkert skylt við svartsýni, því að ég er í rauninni ákaflega bjartsýnn á framtíð okkar á sjó og landi, ef við getum aðeins losað okkur við barnasjúkdóma okk- ar. Og hví skyldi okkur ekki vegna vel í þessu dásamlega landi? Við færumst sífellt nær hvert öðru við aukna tækni og margs konar framfarir, og þess vegna verður sjálf- stæði Bjarts í Sumarhúsum að víkja. Félagshyggjan er nauðsyn Þegar komin eru fimmtíu til hundrað kúa fjós og sérstakt fólk, sem annast nautgripina, þá verð ég ekki lengur á móti kúm. Hugsum okkur svo í framhaldi af þessu ræktun og full- komna nýtingu véla. Þessu þyrfti alls ekki að fylgja sameign á öllu. En við þetta mynduðust allt önnur og betri skilyrði en þau, sem fólk býr nú við og er að flýja. Ég vona, að Hjaltastaðarþinghár- menn misvirði ekki við mig þetta rabb, enda á þetta ekki frekar við sveit þeiíTa en aðrar sveitir. En nú er öil mjólkin komin á bílinn; og mín bíður kaffi á Eið- um. Eg kveð því bílstjórann og frú eina, sem í bílnum er — iít síðan til loftsins, sem ég á að sigla inn- an stundar. þegar höggin dundu á honum. I-Iver vissi nema þetta væri hin sanna ímynd sælunnar. Kannski hafði kunn ingi hans blátt áfram þolað ' þreng- ingai’nar til þess að varðveita ham- ingju sína. „Nú, ég var aldrei mikið heima,“ mælti Warnette. „Og þá sjaldan það var, hafði ég oftast lítinn tíma af- lögu.“ Þetta var satt. Það var kannski ástæðan til þess, að hann hafði aldrei getað notið þessarar hóglátu heim- ilisgleði. „Þú hefur ekki unnið fyrir sjálf- an þig,“ bætti hinn við af skilningi. Warnette furðaði sig á hreimnum. Það var aðdáun í honum, eins og hann öfundaði þann mann, sem bar- izt gat af heilum hug fyrir málstað annarra. Mann, er haldinn var ein- Iægri ástríðu, átti sér háleita hug- sjón. Sem aldrei gaf sér tíma til þess að sitja yfir góðum kaffibolla, þótt hann væri úr hendi þeirrar konu, sem hann unni. Til þessa varð þó hver maður að gefa sér tírna. Og svo var sem hinn fyndi sekt sína og van- mátt vegna þess, að honum hafði orðið á að veita sér slíkan munað. Warnette varð hlýtt um hjarlaræt- ur. Það var eins og hann fyndi á sér við tilhugsunina um að vera hér í þessum lestarvagni á leið út i HINN FIMMTI DAGUR 164 T I M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.