Tíminn Sunnudagsblað - 21.02.1965, Side 22
SvignaskarS. Ljósmynd Páll Jónsson.
í leitum á Langavatnsdal
Framhald af 147. síðu.
rnann sökum þoku. Snemma dags var
ég staddur í brattri fjallshlíð. Hrap-
aði ég þá niður brattan aurfláa og
rann fram á gljúfurbarm, en gat
stöðvað mig þar á fremstu snös.
Undir var hyldýpi, sem ekki sá til
botns í fyrir þokunni. Enginn var
nærri né vissi um þetta óhapp. En
ég var ómeiddur og hélt áfram eins
og ekkert hefði í skorizt. Ef illa
hefði farið, er óvíst, að ég hefði
fundizt. En þótt hurð skylli nærri
hælum eins og tvisvar síðar, er líkt
stóð á, þá átti ég samt ekki að bera
beinin á Langavatnsdal.
Við komum að leitarmannakofan-
um undir kvöldið með allmikið fjár-
safn. Gistum við þar næstu nótt, en
féð var rekið út á tanga, sem geng-
ur út í vatnið rétt hjá húsinu, og
skiptust menn á um að vaka þar
yfir því, tveir í einu
Svo mjótt var húsið, að ekki var
unnt að spyrnast í iljar, er- lagzt
var til svefns. Röðuðu menn sér þvert
á báða langveggi og réttu fæturna
á misvíx) fram á gólfið. Hnakka okk
ar höfðum við fyrir kodda, og vær
vai svefninn. Nú næddi ekki um
okkur.
Rigning og stormur var um nótt-
ina og hiðamyrkur. En aðhaldið var
gott og auðvelt að gæta kindanna
Skröfuðum við saman, ég og vöku
félagi minn, sem Árni hét, kennari
að mennt og starfi Mér ei ekki i
mirini, hvers son hann var, en held
að hann hafi verið ættaður úr Húna
vatnssýslu. Af hans vörum heyrði ég
fyrst þarna um nóttina þessa al-
kunnu vísu, sem ég lærði þá þegar:
Ætti ég ekki, vífaval,
von á þínum fundum,
leiðin eftir Langadal
löng mér þætti á stundum.
Hann kvað prest, sem átti heima
í Langadal í Húnavatnssýslu, hafa
ort vísuna til konu sinnar á ferð um
dalinn.
Daginn eftir var gengið á sömu
slóðir og reynt að ná saman þvi fé,
er hafði orðið eftir. Veðrið var engu
skárra — rigning og þoka. Þá bar
það til tíðinda, að villa kom að hópi
gangnamanna, er fóru á Víðidal, að
mig minnir — austurdrög aðaldals-
ins Voru þar saman þrír eða fjór-
ir drengir, og var þeirra elztur einn
skólabróðir minn frá Hvanneyri, rúm
lega tvítugur Var hann orðinn svo
villtur, að honum sýndist' áin renna
upp í móti. Hinir yngri sáu þó sem
var og héldu niður með henni, hvað
sem hann sagði. Elti hann þá. og
skiluðu þeir sér allir í gististað
Þriðja daginn var leitað frá
gangnakofanum og niður í byggð, og
var það nokkuð víðáttumikið lands-
svæði. Þá var þurrt veður og bjart.
Lausn
3„ krossgáfu
Þá voru Tandrasel og Grísatunga
efstu bæir í byggð, nú báðir í eyði.
Við Hermann gistum í Tandraseli
og áttum þar góða nótt. Sjaldan hef-
ur mér bragðazt matur jafnvel og
kjötsúpan þar þetta kvöld.
Daginn eftir var réttað í Grísa-
tungurétt, féð dregið sundur og rek-
ið til bæja. Við Hermann rákum
Ánabrekkuféð heim um kvöldið, og
var því sleppt í Ánabrekkuland. Kom
um við heim seint á fimmtudags-
kvöldi úr þessum lengstu göngum,
sem ég hef farið um dagana.
Nokkrum dögum síðar fór ég í
vetrarvist í Reykjavík. Þar var ég
fjósamaður næsta vétur -r- eina vet-
urinn á ævinni, sem ég hef haft
þann starfa. Mér hefur alltaf getizt
betur að sauðfé en kúm.
Þótt við hrepptum rigningu og
þoku á Langavatnsdal og aðbúðin
væri ekki á marga fiskana í þessum
göngum fyrir fimmtíu árum, þá eru
þetta ljúfir og bjartir dagar í end-
urminngunni. Og Langavatnsdalur er
ævintýraland, sem ég vildi mikið til
vinna að geta séð aftur í sólskini
á sumardegi. Þá skyldi ég láta mig
dreyma þar um horfna byggð og
fögur býli, þar sem búsmalinn dreif-
ir sér um grænar hlíðar, en fólkið
þeysir á fráum gæðingum um grund-
ir dalsins til kirkju og mannfunda.
Láttu ekkl refinn sleppa —
Framhald af 159. síðu.
að sverja biskupnum hollustueiða.
Og allir beygja sig fyrir þessum
kirkjuhöfðingja, sem svo mikinn
framgang hefur haft og skjótan.
Enn vantar nokkuð á tíunda árið
frá þeim degi, er hann sat umkomu-
lítill úti í Hamborg og hét Ögmundi
Pálssyni því, að hann slcyldi vera
góður drengur og duglegur að læra,
svo að hann þyrfti ekki að sjá eftir
peningunum, sem fóru í námskostn-
aðinn.
Sf \ \ \ 6 \ \ \ í? \ \ n \ \
\ fí fí ff N fí F e> / N G \
1 n N fí fí n s R V 6 X T i N N
b a J> \ 5 fí \ B fí \ \ N fl'
a o V \ sr fí \ M D \ F 7? n
N \ N fl \ U L \ L j N s
« 6 w D J N ->■ w fl‘ r T V fl
\ s K 6 \ i s I $ \ n U K
M £ V N -5f fl L> r \
\ E ] K \ p r V
\ M L \ T1 f * u
.\ M L K J i H G
\ R ö L fl N
Jf a N s L fí r fl
í 1 F K ö s r p y V K \ i P
\ r S a L L a L i N P \ V N u
\ V fí' \ ■R 1 ri 1? N \ Á b ft s \ E R R
K fí \ M \ N F y Þ fí
L N fí K \ í> R fj e P \ N /í
Þ fl' R n * R fí' N J R \ L i M l R
1 H \ N_ \ R 0 fí p J S T
166
T I m I M N - SUNNUDAGSBLAÐ