Tíminn Sunnudagsblað - 28.03.1965, Page 2
Kerstin Ekengren aS vinnu sinni viS Iftinn vefstól, sem leggja má saman að vinnu lokinni. Þetta er ný gerð vefstóla,
sem maður hennar hefur tejknað.
Listvefnaður
/ Svíþjóð
f mörgum kirkjum Svíþjóðar
getur að líta hin fegurstu vegg-
klæði, ofin listaverk, jafnvel mynd
klæði, sem koma í stað málaðr-
ar eða skorinnar altaristöflu. Bæði
í Svíþjóð og Finnlandi er list-
vefnaður listgrein, sem er mikils
metin og á vaxandi gengi
að fagna.
Sú var tiðin, að listræn mynd-
klæði voru í kirkjum Slíkt var
algengt um Norðurlönd á miðöld
um, ekki sízt í Noregi og Norr-
landi, og seinna komst þessi
venja á í Búhúsléni, þar sem
listvefnaður var iðkaður fram á
nítjándu öld. Svonefndur Finna-
vefnaður var ofinn víða á Finn-
landi, Spáni og í baltnesku lönd-
unum. Það var tvöfaldur vefnað-
ur, gæddur mikilli dýpt, og notað
við hann litað ullargarn og ólitað-
ur línþráður. Það gera þeir líka,
er nú fást við slíkan listvefnað.
Meðal þeirra Svía, sem nafn-
kenndastir eru fyrir listvefnað
sinn, er Kerstin Ekengren í
Sanna á Helsingjalandi. Mesta
verk hennar er Uppspretta lífs-
ins, fjórtán metra langur og ná-
lega hálfs þriðja metra breiður
myndvefur, sem nú hangir bak
við altarið í skírarakirkjunni við
Norrtullsgötu í Stokkhólmi. Hann
kemur þar í stað altaristöflu, og
miðdepill hans er svífandi fugl í
skini upprennandi sólar. Þessi
fugl er táknmynd heilags anda,
og neðan við hann streyma fram
fjórar elfur, ímynd guðspjalla-
mannanna, og neðst á klæðinu
flæða þessar elfur í Jórdan, laug
mannkynsins.
Þessi myndvefur þykir hið
mesta listaverk að allri gerð og
talandi tákn þess, hve miklir
möguleikar bíða listamanna á
þessu sviði. En hann er líka stór-
virki. Listakonan gat ekki hafizt
handa við hann fyrr en byggð
hafði verið miklu stærri vinnu-
266
T I U 1 N N - SUNNUDAUSBLAÐ