Tíminn Sunnudagsblað - 28.03.1965, Qupperneq 3
stofa en hún hafði áður til um-
ráða, og fimm konur sátu við
sjálfan vefnaðinn í þrjá mánuði.
Annars á þessi myndvefur sér
einkennilega sögu. Vetrarmorgun
einn fann listakonan dauðan fugL
með útbreidda vængi í snjónum.
Hún tók hann upp og fór með
hann inn á teikniborðið sitt. Hún
''teiknaði hann á ýmsa vegu, rétt
eins og hún héldi, að hún gæti
með því vakið hann til lífsins á
ný. Og það gerði hún raunar á
sinn hátt. Þessi fugl mun lifa
sínu þögla lífi meðan Uppspretta
lífsins er varðveitt, því að þess-
ar teikningar urðu seinna uppi-
staða í altarisvefnum, sem hún
hafði verið beðin um í kirkju
skíraranna.
Kerstin Ekengren hefur skreytt
margar kirkjur í Svíþjóð. Ofin
listaverk hennar en til dæmis í
Vellingbæjarkirkju, skammt utan
Við Stokkhólm, Offerdal og Ánge.
Hin síðari ár hefur hún langmest
hglgað sig kirkjuskreytingum, og
það eru kvenfélög safnaðanna og
saumaflokkar, sem eiga oftast
frumkvæðið að því, að til hennar
er leitað. Áhugasamar safnaðar-
konur eru líka drýgstar við að
afla fjár til slíkra kaupa. Lista-
verk af þessu tagi eru dýr.
Það er skoðun listakonunnar
og margra annarra, að kirkjan sé
að taka stakkaskiptum. Allt útlit
kirkna breytist hröðum skrefum.
Byggingarlag nýrra kirkna er oft
ast allt annað en gömlu kirkn-
anna, fyrri venjur eru þverbrotn-
ar, og þessar breytingar kalla á
nýja skreytingu. Mörgu, sem ver-
ið hefur í föstum skorðum öldum
saman, er nú umbylt, og við það
hefur listvefnaðurinn fengið sinn
sess.
Kerstin Ekengren notar mjög
línþráð, og allt línið í hinni miklu
altaristöflu í skírarakirkjunni i
Stokkhólmi er handspunnið. Blá-
ar línekrur hafa lengi blasað við
augum á Helsingjalandi. Fyrr á
tímum var línið spunnið heima á
bæjunum, en nú er sú kunnátta
að mestu leyti úr sögunni. Samt
er Krestin Ekengren svo heppin,
að í grennd viö hana er kona,
Ella Edlund, sem kann línspuna
til hlítar. Og hún hefur nóg að
starfa, konan sú. Hún situr alla
daga við rokkinn, og þráðurinn
Framhald á 286. síðu.
Uppspretta lífsins — helgiklæð-
13, sem skírarar nota sem altar-
tstöflu í kirkju sinn! viS Norr-
tullsgötu. t
I ! M I N N - SUNNUDAGSBLAÐ
265