Tíminn Sunnudagsblað - 25.09.1966, Side 17
ura salarkynni löggjafarþingsins og
fjöldi þingmanna handtekinn. Eftir-
lit var tekið upp með dagblöðum og
stjórnmálaklúbbum, og komið var
fyrir veggauglýsingum, þar sem grein
var gerð fyrir þessum ráðstöfunum.
Sagt var, að löggjafarþingið leitaðist
við það að ræna forsetann því valdi,
sem þjóðin hafði veitt honum, og öfl
jafnt til hægri og vinstri hefðu uppi
ráðagerðir um það að taka völdin í
sínar hendur og því hefði ekki verið
unnt að halda að sér höndum. Því
var bætt við, að stjórnarskrá ríkisins
væri óhæf og nauðsynlegt að ráða bót
þar á.
Svo brá við, að þessar aðgerðir
mættu engri mótspyrnu, sem heitið
gæti. Obbi manna studdi Loðvík Napó-
leon, og andstæðingar hans höfðu sig
ekki í frammi fyrr en að tveimur
dögum liðnum. Þá kom til uppþota
í Parísarborg, og ákaft var barizt í
nokkra klukkutíma. En hersveitir for-
setans höfðu betur, og eftir það var
ekki um frekari mótstöðu að ræða.
Nú var tekið til við það að refsa
þeim, sem brotlegir þóttu. Fjöldi fólks
var handtekinn og dæmdur til út-
legðar, flestir til Alsír og einnig
nokkur hundruð til hinnar alrændu
Djöflaeyjar úti fyrir strönd Frönsku
Guayana í Suður-Ameríku. Öll voru
þessi réttarhöld ólögleg og gerræðis-
bragur á þeim. En Loðvík Napóléon
var enn ekki orðinn fyllilega fastur i
sessi og hefur því þótzt þurfa að
grípa til harðvítugra ráðstafana.
Þá var komið að því, að þjóðin
fengi að láta vilja sinn í Ijós. Efnt
var tiljþjóðaratkvæðagreiðslu um það,
hvort Loðvík Napóleon ætti að fá
alræðisvald um nokkurt skeið til þess
að gera úr garðí nýja stjórnarskrá.
Átta milljónir greiddu atkvæði, og sjö
og hálf milljón kjósenda galt jáyrði
við því, sem spurt var um. Bóndi
nokkur gerði grein fyrir afstöðu sinni
á þessa leið: „Hvernig gat ég komizt
hjá því að veita honum lið, manni af
Bonaparteætt? Nefið kól af mér við
Moskvu árið 1812.“
Loðvík Napóleon lét ekki á sér
standa að notfæra sér það vald, sem
þjóðin hafði veitt honum. Stjórnar
skráin nýja sá dagsins ljós í febrúar
mánuði. Samkvæmt henni átti kjör
tímabil forsetans að vera tíu ár,
hann einn máti bera fram lagafrum
vörp, og hann skipaði menn í aðra
deild þingsins, öldungaráðið, sem
mátti leggja fram tillögur um breyt-
ingar á stjórnarskránni.
Vitaskuld kom að því, að svo var
gert, því að Loðvík Napóleon var
ekki búinn að ná því marki, sem
hann hafði sett sér. f nóvember lagði
öldungaráðið til, að stjórnarskránni
yrði breytt. Loðvík Napóleon skyldi
gerður að keisara, og keisaratignin
skyldi ganga að erfðum í ætt hans.
Frumvarp þessa efnis var lagt undir
þjóðaratkvæði, og úrslitin urðu á sömu
iund og fyrr: Loðvíki Napóleoni í vil.
Á öðrum degi desembermánaðar árið
1852 tók Loðvík Napóleon við hinn
nýju tign sinni. Og þá er Loðvík Napó
leon úr sögunni, því að keisarinn
tekur sér nafnið Napóleon þriðji, og
sem slíks er hans einkum minnzt í
sögunni.
VII.
Brátt kom að því, að keisarinn stað
festi ráð sitt. Hann hafði leitað eig-
inorðs við prinsessur af Vasa- og Hoh
enzollerættum, en fengið afsvar. Þá
reri hann á önnur mið og tók að
gera hosur sínar grænar fyrir aðals-
mey nokkurri af spænskum ættum,
Evgeníu de Montijo. Loðvík Napóleon
hafði raunar sótzt eftir kunnleikum
við Evgeníu, áður en hann varð for-
seti, en þá hafði hún tekið honum
dauflega. Nú varð annað uppi á ten
ingnum, og voru þau Evgenía gefin
saman í Notre Dame-dómkirkjunni,
hinn 30. janúar árið 1853. En þá
hafði keisarakóróna ekki setið á bóna
partisku höfði tveimur árum miður
en í hálfa öld.
Evgenía Frakklandsdrottning hafði
meiri áhrif á rás sögunnar en flestar
aðrar drottningar og konur yfirleitt
eins og síðar mun greint verða. Fögur
var hún, og vits verður henni naum-
ast frýjað, en drottnunargirni er
sögð hafa verið ríkur þáttur í fari
hennar. Sambúð þeirra Napóleons
þriðja mun hafa getað kallazt góð
fyrstu árin, og árið 1856 ól Evgenía
keisaranum son. En þar kom, að ást
Napóleons á drottningu kulnaði, og
leið að því, að hann lét Evgeníu ekki
einhlíta.
Á öndverðum sjötta tug aldarinnar
lék mikill ljómi um hirðlífið í París.
Þar ríkti glaðværð mikil, þar var sam
an komið úrvalslið merkustu manna
og kvenna, og drottningin sjálf hafði
þar forystu um tízkuna — hún og
hirðmeyjar hennar tóku að klæðast
krínólínum svokölluðum, sérkenni-
legum og næsta fyrirferðarmiklum
búnaði, svo sem getur í kvæði Grön-
dals:
Veðrið er svo indælt núna,
allir horfa á gömlu kúna,
krínólínan kæfir frúna
CDEFGHI
þar er þræll með líberí
keyrir upp á klárinn brúna,
kjaftur gín á hundi.
Listamaðurinn l.engi þar við undi.
Ekki má þó ætla, að Frakkar gæfu
ekki gaum að öðru en skemmtunum
og skartklæðum á þessum árum. Nú
var skammt til stórra tíðinda í Aust-
ur-Evrópu og hinum nálægari Ausur
löndum, og urðu þau undanfari Krím
stríðsins. Margar orsakir, sem ekki
er unnt að gera grein fyrir í stuttu
máli, lágu til þessarar styrjaldar, en
upphafið var það, að deila reis með
rómversk-kaþólskum og grísk-kaþólsk
um munkum um það, hvor aðilinn
skyldi annast gæzlu helgra dóma í
Jerúsalem, en sú helga bcrg laut
Tyrkjum, sjúka manninum í Evrópu,
sem svo var nefndur. Rússland var
forystuland grísk-kaþólska manna, en
Frakkland var voldugast ríki trúar á
rómverks-kaþólska vísu. Nú risu úf-
ar með Tyrkjum og Rússum, og sagði
Tyrkjasoldán Rússum stríð á hendur
í október árið 1853.
Englendingum var ekki um það gef
ið, að áhrif Rússa og ítök efldust til
muna, og yfirleitt nutu Rússar lítilla
vinsælda á Vesturlöndum um þessar
mundir. Napóleon þriðji var nokkuð
á báðum áttum um það, hvernig
hann ætti að snúa sér. Hann hafði
heitið þjóðinni friði, og við það lof-
orð fýsti hann að síanda. Hann vissi,
að stríðsrekstur myndi baka sér óvin
sældir, sérstaklega ef árangurinn yrði
ekki sem skyldi. Og Napóleon þriðji
var ekki svo tryggur í sessi, að hann
mætti við því að bíða alvarlegan
hnekki í utanríkismálum. Á hinn bóg-
inn ætlaði keisarinn ekki að fylgja
fordæmi föðurbróður síns í því að
vera á kanti við Englendinga. Þetta
atriði réð úrslitum um e.fstöðu Frakka,
er Englendingar tóku að sýna lit á
því að snúast gegn Rússum. Á út-
mánuðum árið 1854 sögðu Frakkar
og Englendingar Rússum stríð á hend
ur og undirrituðu vináttusamning sín
á milli.
T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ
833