Tíminn Sunnudagsblað - 26.01.1969, Page 22

Tíminn Sunnudagsblað - 26.01.1969, Page 22
Það gerðist fyrir norðan land Franhard af 65. síðo. Ekki mun það hafa verið nein nýjung, þátt strandreikningar yrði allháir og fyrirgreiðsla við skip- reika útlendinga talsvert dýrseld. Amtmenn voru því á verði, þegar þeir fengu þess konar skilagreinir til samþykktar og áritunar. Amt- manninum á Akureyri, Júlíusi Hav steen, þótti hér no*kkuð djúpt tek- ið í árinni, en lækkaði samt ekki neinn reikning til muna. Þó urðu athugasemdir hans margar. í mörg um reikninganna voru skekkjur, dagar ekki rétt taldir og rangt lagt saman eða margfaldað, þótt ekki væri það alltaf kröfuhafa í hag. Og fleira var athugvert. Mun þð hafa verið talsvert verk að komast botns í þessum reikningum, enda napur tónninn í bréfi því, sem amtmað- urinn skrifaði sýslumanninum að loknu uppgjöri. Þar sagði hann meðal annars: „í dönsku útleggingunni á fimmtánda fylgiskjali, reikningum læknisins, eru orðin „viðgerð á fót- um þriggja sjúklinga lögð út á þessa leið: „Reparation af tre Pati- enters Klæder", og hefði ég búizt við, að þér eigi settuð nafn yðar undir slíka útleggingu. Að endingu býst ég við, að þér, að svo miklu leyti, sem unnt er, látið yður um- hugað um, að daglaun þeirra manna, sem hafðir eru til sendi- ferða og annarra vika í tilefni af ströndum, og líkum tilfellum og hér er um að ræða, keyri eigi úr hófi fram“. Kostnaður sá, sem hlauzt af Mackintosh, varð aftur á móti furðulega lítill. Læknirinn á Siglu- firði lét sér nægja fáar krónur fyr- ir ómak sitt, og læknishjálp og ná- lega tveggja mánaða lega í sjúkra húsinu á Akureyri kostaði ekki nema rúmar hundrað og sjötíu krónur. Hvergi sést, að Jóhann Guhnlaugsson og skipshöfn hans né eigendur Storms hafi sett neitt upp fyrir að bjarga manninum og sigla með hann til hafnar. Hefur þó án efa verið logð í sölurnar veruleg aflavon. Þessu hefur verið veitt eftirtekt erlendis, er til loka uppgjörs kom þar. Árið 1885 bár- ust Jóhanni kveðjur og þakkarbréf frá Englandsstjórn og fylgdi þar með sjónauki forkunnargóður, sem enska stjórnin gaf honum, og sjö hundruð krónur í peningum, sem skiptl skyldi milli þeirra manna, er á Stormi v>oru, þegar Mackintosh fannst. (Helztu heimildir: Þinga- og dómabók, bréfasafn og strand- skjöl Þingeyjarsýslu, bréfabók Norður-Múlasýslu, bréfabók og skipskráningarbók Eyjafjarðar- sýslu, bréfabók og bréfadagbók Norður- og austuramtsins, bréfa dagbók landshöfðingjadæmis- ins, Norðanfari, Þjóðólfur, Fjall- konan, ísafold, Hákarlamenn og hákarlalegur eftir Theódór Frið- riksson, Annáll 19. aldar, prests þjónustubók Presthóla, sóknaap- manntal Sauðaness.) HéSan og þaðan Eins og frelsarinn. Sigurður Gissurarson hét piltur, sem heimilismaður var á Kirkjubæ í Hróarstungu hjá séra Árna Þor- steinssyni og Björgu Pétursdóttur. Hafði hann meðií annars þann starfa að mala korn. Matvist var heldur naum í Kirkjubæ, og bætti Sigurður sér það upp á þann hátt, að hann skaut undan ofurlitlu af mjölinu, en lét koma lúkufylli af fínni ösku í staðinn Nú komst upp hrekkur Sigurðar, og hugðist prestur setja honum allþungar skriftir. Þá mælti Sigtirður: „Ég veit þér verðfff vægur og miskunnsamur eins og frelsarinníí. Baðstofulíf. Gísli hét maður Brandsson, kynjaður af Laxárdal i Húnavatns sýslu. Eitt sinn var hann um vetr artíma á Eiðsstöðum í Blöndu dal og fékkst við að smíða hagld ir. Þar var og kona, sem hét Guð rún Sigurðardóttir, strangtrúuð, og hafði Gísli oft þrefað við hana um sanngildi ritningannnar. Nú gekk Gísli þar að, er Guð rún sat, skorðaði sig á gólfinu fyr ir íraman hana og spurði: „Þú trúir víst enn á ruglið I biiblíunni?" Guðrún brást svo við, að hún hallaði sér aftur á bak á rúminu, sparn fæti í bringu Gísla og sagði: „Vík frá mér, andskoti“. $ r J ^ I'I O 6 L I t__J) r 6 u r «i t* * k Tr u m p •) h u /i Y X * * N I XX.C á K K i f h " í A J fXV } H£L l » f <i n i rXN t o m i y, ' i *. > > * p * I H N * r k a *X/l * a * K c HfflhXöMtfíVf/X f- • M /^N H I' H 2> X* X* ; n a V' fi u e fi a s r t n r I týt ° I 5 X1 ' ' T n i t ijjgs r o f.u ey.i C N / H f/ I bíM'n ^XíúlíIlMi X/ fj * n H * D R L ro T I M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.