Tíminn Sunnudagsblað - 12.10.1969, Page 3

Tíminn Sunnudagsblað - 12.10.1969, Page 3
Vorið er ekki ævinlega komið, þótt vorlegt sé í bili, og fá fleiri að sanna það en við íslendingar. Svíar telja maurana það vortiákn, sem bezt má treysta. Þeir fara ekki að skríða utan á mauraþúfunni fyrr en varm- inn er kominn svo djúpt í jörð, að hann vekur þá af vetrarsvefni. Þegar haustar, hörfa maurarnir niður í göng og rásir, sem þeir hafa grafið 1 jörðina undir þúfu sinni. Þar þrengja þeir sér saman eins og mest má verða. Það gera þeir til þess að njóta þess litla hita, er leggur af þeim sjálfum. Svefninn verður langur, og öllu verður að tjalda. Líkamshiti maurs i dvala er mjög nálægt fros+marki. Hann fer þó eftir hitastigi umhverfisins. Maurarnir vakna ekki til fulls fyrr en sól nær að skína á þá. Fyrstu maurarnir, sem sjást á vor- in, eru ákaflega dauflegir. Þeir terra fætur sína og fálmara á an- kanalegan hátt og reyna að drekka í sig sem mestan yl. Margir halda, að þeir geti fagnað vori, þegar þeir sjá fyrsta fiðrildið Valt er að treysta á þau. Ef til viil hafa þau legið I dvala í útihúsi og vaknað við sólarglætu í glugga. Vorfiðrildin leggjast I dvala full vaxin. Þau leita sér oft skjóls I sprungnum trjáberki eða einhverri slíkri smugu. Þau rumska þess vegna fljótt, þegar hlýnar, og þau falla lika unnvörpum i kuldaköstum á vorin. Býflugurnar ganga síður í þá gildru. Þær eiga vetrarskjól i jörðu niðri og vakna ekki eins fljótt. Þegar þær fljúga suðandi iír vetrar byrginu, eru fyrstu vorblómin in sprungin út á móti suðri. Þar bíður matborðið þeirra. Þær eru tíðir gestir vorblómanna ungu. Hunang geta þau þó ekki boðið, og þess vegna verða þær að sætta sig við annað sem kemur í góðar þarfir. Og það fá þær líka: Frjóduft þessara blóma er sannkall- að kjarnfóður s'tordýranna. T í M I N N SUNNUDAGSBLAÐ 795

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.