Tíminn Sunnudagsblað - 12.10.1969, Blaðsíða 5

Tíminn Sunnudagsblað - 12.10.1969, Blaðsíða 5
inn i málarekstur þann, sem^spratt aí hvárfi Mka Reynistaðarbræðr;r á Kili, en þó ekki meira en svo, að hann slapp við svardaga. Jón dúk- ur var lítill reiðumaður, drylck- feldur og óróasamur, fáfróður kallaður og lítt laes. Eitt sinn hafði hann, ásamt fleira fólki, reynt að brjótast inn í tukthúsið í ölæði á aðfangadagskvöld. Hinn hét Jón Eyvindsson og var kynjaður ur Ölfusi. Hann hafði verið viðriðinn þjófnaðarmál kringum 1790, setið fimm vikur í varðhaldi í Viðey, og meðal annars hafði hann haft við- búnað til þess að bjálpa aðalsöku- dólgnum til þess að flýja. Frá þessu slapp hann þó vonum betur. Báðir voru þeir Jónar byæntir menn og báðir komnir á fertugs- aldur, er sú saga gerðist, er hér verður sögð. En hún sýnir, hve fá- vísiega og fyrirhyggjulaust menn gátu stofnað til afbrota, hve miíklar furðusögur þeim datt í hug að spinna upp og hve frjálslega þeir töluðu við fjölda fólks um fyr- irætlanir sínar og framkvæmdir, ón þess að hafa verulegan beyg af þeirri mælgi. Verður af því ekki annað lyktað en þetta fóik hafi vit- að sakir hvað á annað og ek'ki ver- ið þess umkomið að ljóstra upp at hæfi nieðbræðra sinna. Jón dúkur bjó í Litla-Landakoti, en byggði síðar Dúkskot við Vest- urgötu. í Landakoti var hann haust ið 1796 með Kristínu Páisdóttur, konu sinni, er var sjúk. Virðist Jón dúkur talsvert hafa verið í sendiferðum hjá kaupmönnum, og í einni slíkri sendiferð hafði hann fengið peningum skipt og aura að láni suður í Stapakoti í Innri- Njarðvík hjá efnamanni, Einari Árnasyni. Hafði Einar farið með Jón dúk í sikemmu, þar sem marg- ar kistur voru, og opnað eina þeirra, er í var peningakistill hans. Virlist Jóni sern kistiillinn væri hér um bii fullur af peningum. Við þessa sjón blossaði ágirnd- in upp. Hann gat ekki gleymt þessari peningahrúgu, og sú hugs- un varð æ áleitnari, að þarna væri mikill fengur, ef eftir væri leitað. Jón dúkur átti bróður í Reykja- vík, Einar í Götuhúsum. Kona Ein- ars hét Málfríður Einarsdéttlr. Jón innti að þvi við bróður sinn, hvort hann vildi fara með sér ránsferð suður í Stapakol. Einar taldist undan því, en ekki for þetta hljóðlegar en svo milii bræðranna, að Málfríður, kona Einars, vissi um þetta sikraf og sagði kunningj um sínum frá þvi. Jón Eyvindsson bjó vestur i Hlíðarhúsum með konu sinni, Hlað gerði Einarsdóttur, og reri þar hjá Davíð formanni Guðmunds- syni, föður Jóns hafnsögumanns, er síðar bjó lengi í Illíðarhúsum. Jón Eyvindsson hafði verið^ við sitthvað brugðinn, og Jón dúkur ásetti sér að leita lags við hann, er Einar vildi e-kki freista þess að krækja í Stapakotsauðinn. Tók hann því að gera sér títt um Jón Eyvindsson, og þar kom, að hann ávarpaði hann með þessum orðum: „Viltu ekki fara með mér þang- að, sem peninga er von?'‘ „Hvert?“ spurði Jón Eyvindsson. sem skildi þegar, hvað klukkan sló. „Að Stapakoti.“ svaraði Dúkur, „því í seinustu ferð skipti Einar við mig seðli fyrir smápeninga. Hann kastaði seðli mtínum niður i kistil í kistu, sem stóð í skemrnu hans.“ Hvort sem þeir töluðu um þetta lengur eða skeanur, urðu beir ein- huga um að fara ránsferð suður í Stapakot og láta greipar sópa um peningakisturnar í skemmunni. Jón Eyvindsson hafði áður um það talað, að hann þyrfti að bregða sér austur í Ölfus til fundar við Jón nokkurn í Sogni, og nú tók hann mjög að vekja máis á þessarj ferð við kunningja sína. Jón dúkur hafði átt barn í lausaleik og aldrei um það skeytt, enda vissi hann ekiki, hvort heidur það var niður komið í Krýsuvík eða Grindavík. Þetta afkvæmi sitt fýsti hann skyndilega mjög að sjá. Tygjuðust þeir Jónar báðir til ferðar, og rétt eftir jólin, að morgni hins 28. des- embermánaðar, kom Jón dúkur 1 Hlíðaiihús og vildi njóta samfylgd ar Jóns Eyvindssonar upp á Öskju hlíð, þar sem leiðir þeirra hlutu að skiljast, ef annar hélt austur yíir Heillisheiði, en hinn suður í Krýsu vík. Báðir höfðu þeir nesti nokk- urt, en þó af skornum skammti, og Jón Eyvindsson lánaði nafna sínum buxur í ferðina, er hann batt þó um öxl sér. Fjóra banka- seðla hafði Jón Eyvindsson vafið í bréf og sagzt ætla að hafa með sér, en þegar hann fór, urðu þeir eigi að síður eftir. Ekki bað hann Davíð, formann sinn, fararleyfis. Nafri stakk Jón Eyvindsson á sig, og Dúkur gekk við járntein, er hann haföi fengið að iáni hjá kunningija sínum. Nú víkur sögunni suður i Stapa- kot. Litilu eftir að fólk var háttað og Ijós höfðu verið slökkt að kvöld, fimmta jóladags, heyrði heimilis- fólk þar, að gengið var um hu-a- sund, en ekki gat það gen sér grein fyrir því, hvort þar fór mað ur eða skepna. Einn heimamanna fór þó á fætur og leit út, en varð einákis var. Fór Stapakotsfó’k há að sofa og skeytti ekkl freka; im þetta. En að morgni gafst á aö líta. Út á hlað höfðu verið bornav þrjár kistur og hin fjórða drjúgan spöl Dúkskof viS önnur aldamóf en Jón dúkur Irfði Kring um það hús af nýrra fagl T f M 1 N N — SUNNUDAGSBLAÐ 797

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.