Tíminn Sunnudagsblað - 26.10.1969, Blaðsíða 2

Tíminn Sunnudagsblað - 26.10.1969, Blaðsíða 2
BREF TIL BJARGAR Uim hríð hefur verið til um- ræðu,‘ hvernig rétta megi hag rithöfunda í landinu og gera þeim kleift að sinna köllun sinni af fullri alúð. Sjálf gera rithöf- undasamtökin harða hríð að stjórnarvöldum landsins um þessar mundir, svo sem eðlilegt er og sjálfsagt, og hafa komið fram ýmsar tillögur, er stefna að því marki að sjá hag rithöf- unda borgið. Allir, sem fást við að semja bækur, standa auðvitað í þakk- arskuld við þá, er leggja sig fram um að finna viðunandi lausn á þessu máli. Um hitt er ekki svo mjög að sakast, þótt í uppihafi kunni að vera á sum- um þessara hugmynda nokkrir vankantar, sem sníða þyrfti af, áður en þær eru lögfestar eða bundnar samningum. Slikt er ekki óeðílilegt um frumsmíð. Það er ein þessara tillagna, að ríkið kaupi handa bókasöfnum í landinu fimm hundruð eintök af ölilum skáldsögum, ljóðabók- um og barnabókum, er koma út eftir menn, sem eru í öðru hinna tveggja rithöfundafélaga, er til eru í landinu. Að sjálf- sögðu væri það umtalsverður stuðningur við rithöfunda, ef obbinn af því fé, er þannig yrði varið, rynni til þeirra. En á þessum hugmyndum eru nokkr- ir agnúar, eins og þeim var fyrst varpað framn, er gert geta framkvæimdina hæpna og jafn- vel hlálega. í fyrsta lagi felst í þessu þvingun. Til kunna að vera sér- lundaðir rithöfundar, sem ekki kæra sig um að vera í rithöf- undafélaginu öðru hvoru, og þeim yrði í framkvæmd búin miklu verri kjör en öðrum stall- bræðrum þeirra. Við fordæm- um harðræði, sem höfð eru í frammi við rithöfunda í öðrum löndum, og okkur samir illa að neyða menn í dilka með þessum hætti. í öðru lagi kynnu rithöfunda- fólögin sjálf að komast í krapp- an sjó. Skyndilega yrði gífur- legur munur á hagnaðarvonum rithöfujida, eftir því hvort þeir væru fólagsbundnir eða ekki, og fast yrði því sótt á að kom- ast í félögin. Þau yrðu að fella dóm yfir afkomuvonum manna, og gæti slíkt hæglega leitt til leiðinlegra átaka. Jafnvel gæti í það bJandazt ágreiningur um bókmenntastefnu, stjórnmál og margt annað, því að vild og hyggja geta leitt rithöfunda á villigötur rétt eins og aðra menn. Til slíks er óhyggilegt að stofna, ef finna mætti aðra leið. Rithöfundafélögin ættu ekki að bera vítisvél inn í sínar eigin herbúðir í trausti þess, að ekki verði sprenging. í þriðja lagi yrði skipting bóka á milli flokka, styrktra og óstyrktra, fyrirsjáanlega svo hláleg, að andúð hlyti að valda. Hefðu slíkar reglur, sem gert er ráð fyrir í tillögunni, verið í gildi síðustu áratugi, hefði ævi- saga séra Árna Þórarinssonar, Saga Eldeyjar-Hjalta, íslenzk menning og Áfangar Sigurðar Nordals og Landið okkar og Mannraunir Pálma Hannessonar lent utan garðs, en ríkisfé ver- ið varið til þess að kaupa fimm hundruð eintök af öðrum sam- tímabókum, sem allir sjá og skilja, að fjarstæða er að nefna í sömu andrá og þessi rit — út- valningin engu stutt nema van- hugsuðum dilkadrætti. Ég kin- oka mér að vísu við að nefna ákveðin dærni um slíkar bæk- ur, sem broslegt hefði verið að taka fram yfir öndvegisrit, enda getur hver og einn fundið þau án leiðbeininga af minni hálfu. Enginn mun dirfast að neita því, að þessar bækur þeirra Þórbergs, Hagalíns, Sigurðar Nordals og Pálma, hefðu átt er- indi í bókasöfn landsmanna og höfundar þeirra verið góðs mak- legir fyrir þessi verk sín, jafn- vel umfram þorra annarra, sem við ritstörf fengust samtímis þeim. Þetta má ekki skilja svo, að ég sé að leitast við að hafa neitt af neinum. Ég er aðeins að benda á smíðagalla, sem þarf að ráða bót á. Þvá að þess- ar hugmyndir um aukinn stuðn- ing við rithöfunda eru ekki fram komnar til þess eins að bæta hag einstakra manna, þótt það geti líka verið réttmætt, heldur ekki síður til að efla íslenakt menningarlíf. J. H. HEYRT MEÐ ÖÐRU EYRANU •fc Kristbjörn Hatliðason á Birnustöðum á Skeiðum andaðist síðast- liðinn vetur. Hann var fimmtán barna faðir, mjög fjölhæfur verkmaður og frábær sláttumaður. Það var í frásögur fært, og þótti vel til fundið, að orfið, sem hafði leikið honum svo léft í höndum, var bundið ofan á kistuna og látið fylgja honum i gröfina. •fc í Kalmanstungu má enn sjá úti forn liey, hin elztu allt að tuttugu ára og mosagróin orðin. Hey úr þessum gömlu desj- um var efnagreint fyrir skömmu, og kom þá í ljós, að það hafði furðulítið tapað sér. T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.