Tíminn Sunnudagsblað - 26.10.1969, Blaðsíða 4

Tíminn Sunnudagsblað - 26.10.1969, Blaðsíða 4
VS spjallar um bókmenntir SALTKORN í MOLD Guðmundur Böðvarsson á Kirkjubóli er eitt ágætasta Ijóð- skáld okkar, í senn sannur, djúpskyggn og listfengur. Hann hefur á bak við sig frjóa og þróttmikla menningarerfð. Hvít- ársíðan, þar sem hann hefur alið aldur sinn nær allan, er ein af fegurstu og seiðmögnuðustu sveitum landsins, og fyrir því höfum við orð kunnugra, að þarna í uppsveitum Borgarf jarð- ar hafi á einu skeiði gerzt dramantískari atburðir á leiksviði ★ Þegar við höfum lokið við að lesa einhverja regiulega góða bók, verða viðhrögð okkar stundum á þann veg, að okkur þykir sem varla verði um bætt. Það getur jafnvel kveðið svo rammt að þessu, að okkur finnist höfundurinn allur til okkar kominn, ef frá bonum hafa komið nokkrar mjög góðar bækur, þar sem leikið er á sömu eða svipaða strengi tilfinningalífs- ins. Þetta viðhorf held ég að hafi dálítið verið farið að gera vart við sig hjá sumum aðdáendum Guð- mundar Böðvarssonar hér á árun- um, og reyndar ekki alveg að ástæðulausu. Kvæði hans höfðu yfirleitt verið alvarlegs eðlis, jafn- vel tregablandin. Og meira en það. Það er einmitt þessi ljúfsári tregi, sem öðru fremur gefur þeim það undarlega sterka seiðmagn, sem þau búa yfir. Það var því nokk- ur vorkunn, þótt sumum væri far- ið að detta í hug, að iítillar gam- ansemi muni að vænta úr þeirri átt- En svo gerist það allt í einu og ókunnugum að óvöru, að skáldið kveður alla slíka sleggjudóma nið- ur, vel og rækilega. Það var árið 1962. Þá kom út fyrra bindi bókar hans, Saltkorn í miold, og þar kveð- ur nú heldur betur við nýjan tón, áður öþekktan í bókum höfundar: Gaman og glens, leiftrandi og geisl andi, já meira að segja spriklandi galsi. Hér var svo sannarlega kom- in ný 'hlið á þessum ágæta höf- undi, og maður svalg kvæðin, þangað tii að maður kunni bókina utan að, spjaldanna á milli (enda er hún raunar ekki þykk). Fyrir þá, sem enn hafa ekki kynnzt þess- ari bók, skal hér vikið að henni ofurlítii nánar. í eftinmála fyrra bindis segir höfundurinn frá fyrstu drögunum til þessara yrkinga. Faðir skálds- ins var mikill fræðaþulur og stál- minnugur: Orðbrögð og atferli manna endalaust kunni hann. .. • mannlífsins en víSast annars staðar. Og hann sagði drengjunum sín- 844 T 1 M I N N SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.