Tíminn Sunnudagsblað - 26.10.1969, Blaðsíða 20

Tíminn Sunnudagsblað - 26.10.1969, Blaðsíða 20
Guy de Maupassanf ; MOIRON KENNARI Umræðurnar snerust um Pranz- ini. Maloureau. sem hafði verið ríkissaksóknari í keisaradæminu, sagði okkur eftirfarandi sögu: „Fyrir allmörguim árum hafði ég með höndum dularfullt mál, sem var sérstaklega athyglisvert í sumum atriðum Takið nú eftir. Ég var keisaralegur ríkissak- sóknari í bæ einum í héraðinu. og vegna föður míns. sem var dóm- stjóri í París. var ég einkar vel þokkaður við hirðina. Sagan, sem ég ætla að segja yður, er um hið fræga Moiron-mál, sem er svo um- talað ennþá. að þið hafið örugg- Iega heyrt á það minnzt. Moiron var vinsæll kennari í litlum bæ í Norður-Frakklandi. Hann var skynsamur, mjög sið- vandur, en fremur þögull. Kvænt- ur var hann og hafði átt prjú börn. sem öll dóu úr berklum. hvert á eftir öðru. Þegar síðasta barnið dó. virtist sem öll ást hans beindist að þeim börnum, sam hann kenndi og umgekkst daglega. Hann eyddi miklum nluta af lítil fjörlegum launum sínum til þess að kaupa leikföng. fianda dugleg- ustu og kurteisustu nemendum sín um. Hann gaf þeim sælgæti og gómsætar kökur eins og þau gátu f sig troðið. Allir voru sammála um, að hann væri einstaklega góð hjartaður og hrósuðu honum há- stöfum. En skyndilega cþáu fimm nemendum bans á dularfullan hátt með stuttu millibili. Læknarnir héldu fyrst, að börn in hefðu dáið úr farsótt. og hefðu fengið hana á því, að drekku vafn sem skemmzt hafði vegna þurrka, þeir leituðu að dauðaorsökinni. en án árangurs. Sjúkdómseinkennin, sem 1 liós' Icomu hjá börnunum, voru i hæsta máta einkennileg. Börnin byrjuðu að veslast upp, hættu að borða og kvörtuðu um magaveiki. Þeim versnaði stöðugt, þar til þau gáfu upp andann með óskapiegum þján ingum. Seinasta barnið, sem dó, var krufið, en án árangurs. Innvflin voru send til Parísar til rannsókn- ar, en phfcert eitur fannst í þelm. Ár leið, án þess að nokkuð kæmi fyrir, en þá dóu tveir beztu nemendur skólans, sem voru í sér- stöku uppáhaldi hjá Moiron, með fjögurra daga millibili. Það var á ný fyrirskipuð krufning, og i þetta skipti fundust fjöldi fínna gler- brota i börnunum. Af þvi var ályktað, að drengirnir hefðu i óvarkárni borðað eitthvað, sem ekki var alveg hreint. Það hefðí til dæniis getað verið nægilegt. ef glas hefði dottið niður í mjólkur- skál og brotnað. Málið hefði ver- ið látið niður falla, ef þjónustu- stúlka Moirons hefði ekki veikzt meðan á öllu þessu s'tóð. Læknir- inn, sem kallaður var til stúlkunn- ar, fullyrti, að þetta væru sömu sjúkdómseinkennin og höfðu kom- ið i Ijós hjá börnunum. Hann spurði stúlkuna í þaula og að lok- um játaði hún, að hún hefði stol- ið einhverju af sælgæti þvi, sem Moiron hefði keypt handa nem- endum sínum. Læknirinn fór til yfirvaldanna, og ég skipaði svo fyrir að húsleit skyldi gerð hjá kennaranum. Þar fannst skápur, sem var troðfullur af leikföngum og sælgæti, sem allt átti að gefast börnunum. í nær öllu sælgætinu voru mjög fín gler- brot og örsmáir saumnálaroddar. Moiron. sem var handtekinn strax, virlist verða mállaus af undrun yfir grun okkar, svo að nærri lá, að ég léti hann lausan. Á meðan hrúguðust upp gögn. sem bentu til sekíar hans, og þau eyddu fljótlega hugmyndum mín- um um sakleysi hans. En þær voru byggðar á hinu mikla áliti, sem hann naut, flekklausu líferni hans og þeim ólíkindum. að hann hefði í rauninni framið þvílíkan verkn- aað að ástæðulausu: Hvers vegna hefði þessi hjartagóði. látlausi og trúrækni maður átt að myrða börnin, meira að segja börn, er voru hans uppáhaídsnemendur, sem hann dekraði við og tróð í sælgæti. Meira en helming launa sinna eyddi hann þó i leikföng og sælgæti handa þeim? Gerði maður annars ráð fyrir, að hann hefði drýgt glæpinn, þá hlaut verknaðurinn að vera frai\i- inn í augnabliksæði, En hann virt- ist vera svo rólegur, jafnvægið svo óhagganlegt, að ómögulegt var að sanna. að hann væri geðveikur. Eigi að síður hlóðust upp líkur á móti honum. Það var lagt hald á kökur, konfekt og brjóstsykur I þeim verzlunum. þar sem Moiron var vanur að kaupa slíkt. En ekk- ert fannst grunsamlegt. Iíann fullyrti þá. að hann ætti óvin. sem hefði opnað skáp hans með þjófalykli, og látið glerbrot- in og nálaroddana í sælgætið. Hann bjó til sögu um bónda. sem hefði átt að erfa eitt af börnun- um eftir dauða þess og þess vegna framið glæpinn og leitt gruninn nð sér. — Fúlmennið. sagði Moiron. Hann kærði sig kollóttan, þótt 'hin börnin dæju. bara ef hann næði takmarki sínu. Þetta var mögulegt. Maðurinn virtist svo öruggur. og þó ihan við sig af sorg. að við hefðum án alls efa sleppt honum. þrátt fyrir allt sem mælti á móti honum. ef ekki hefðu komið til tvær nýjar uppgötvanir, sem sönnuðu sekt hans. Annað var tóbaksdós, full af glerbrotum, sem fannst i levnihólfi í skrifborði hans. þar sem hann geymdi peningana sína. Ilonum heppnaðist þó að út- skýra þetta á sennilegan hátt: Þetta var síðasta bragð óþekkta sökudólgsins. En þá gaf vefnaðar- vörusali frá Saint-Marlouf sig fram við rannsóknardómarann og sagði. að karlmaður hefði oft komið í búðina til sín og keypt saumnál- ar. hinar fíngerðustu. sem til voru, og hann hafði brotið eina til að at- huga, hvort 'þær hentuðu sér. Tólf karlmenn voru leiddir fyr- ir vefnaðarvörusalann. og hann benli strax á IVþnron. sem var einn þeirra: Þetta var hinn grunsam- legi viðskiptavinur hans. Nánari eftirgrennslan leiddi í ljós, að kenn arinn hafði verið í Saint-Marlouf þá daga. sem vefnaðarvörusalinn tilnefndi. Ég sleppi hræðilegum vitnis- burði skólabarnanna, hvernig kenn arinn sjálfur valdi sælgætið handa þeim, skipaði þeim að borða það í augsýn sinni og eyðilagði vendi- lega molana, sem eftir urðu. Moiron var dæmdur til dauða. Hann reyndi að áfrýja dómnum, en því var vísað á bug. Hið eina, T f M I N N SUNNUÐAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.