Tíminn Sunnudagsblað - 09.11.1969, Side 7

Tíminn Sunnudagsblað - 09.11.1969, Side 7
ast handa um að gera úr honum góðan bónda. En því miður þótti fljótlega bera á því, að búmanns- lnæfileikar hans væru af skornum skammti, þótt bændáblóð rynni i æð'um hans. Þetta var bræðrum hans og foreldrum nokkurt óliyggjuefni, og héldu þau margar ráðstefnur til þess að fjalla um, iivað til bragðs skyldi taka með drenginn. Öllum þótti þeim vænt um hann, ,því að hann var líf og yndi allra á beimilinu. Þá kom fyrir smáatvik, sem réði úrslitinn í þessu máli og batt enda á aliar umræður um hugsanlegan eveitamannsferil yngsta bróðurins. Það þurfti að bjarga heyi undan rigningu dag nokkurn. Sólin hafði skinið brennheit af heiðum himni, en meiri háttar demba var í aðsigi. Þá átti Georg að taka á öllu, sem hann átti til, og bjarga heyinu í bús. En það tókst ekki betur til en svo, að hann ók fullum heyvagni út af veginum og endaði ferðina í fúadíki. AL’t fór um koll, vagn, hest ur og ökumaður. Þar varð sveita- maðurinn Georg Williams til. Nú var tekin sú örlagaríka ákvörðun, að drengurinn skyldi sendur til þorpsins, og töldu bræð- ur hans það raunar ægilega hegn- ingu. Þegar hér var komið sögu, var einn eldri bræðra Georgs far- inn að heiman. Hann hagði lagt það til málanna, að Georg yrði komið til náms hjá klæðasala. Þrátt fyrir allt var drengnum ekki alls varn- að, og það vissu bæði bræður hans og foreldrar. Vonuðust þau til þess, að úr honum rættist, ef hann spreytti sig á öðrum sviðum. Ekki vildi móðir hans, að hann færi til Lundúna svo ungur. Leið >. Ihans lá því fyrst um sinn til lítill- ar, sagnfrægrar borgar, Bridge- water, sem var um fjörutíu kíló- metra frá æskustöðvum hans. Þeg- ar þeir ferðalangarnir komu ríð- andi inn á aðalgötu borgarinnar og langar húsaraðirnar blöstu við á báðar hliðar og ofurhár kirkjuturn inn teygði sig upp í kvöldhimin- inn, þá þótti drengnum unga sem hann kæmj í annan heim. Og það mátti til sanns vegar færa. Til klæðasalans. Fyrirtækið Holmes var stærsta vefnaðarvörufyrirtækið í bænum. Herra Holmes hafði 27 afgreiðslu- menn og skrifstofumenn í þjón- ustu sinni, svo að ekki hefur verzl- unin verið nein búðarhola. f þá daga var starfsliðið í slíku fyrir- tæki eins og ein fjölskylda, og sá vinnuveitandinn þvi fyrir fæði og húsnæði og öðrum nauðsynjum. Þarna var Georg nú ráðinn. Hófst þar með langur og affarasæll starfsferill hans í viðskiptaheimin- um. Lengi fann Georg fyrir þvi þarna hjá Holmes, að hann var aðeins lærlingur og nýliði. Hann vann lítil- mótlegustu verkin, sópaði gólf- in, fór í sendiferðir og hélt annars mest til í vöruskemmunum. Síðar fékk hann að reyna sig við af- greiðslu og varð hann brátt mjög vinsæll afgreiðslumaður. Annars varð Georg fljótlega hrókur alls fagnaðar í hópi starfs mannanna. Þegar piltarnir fóru i háttinn á kvöldin í svefnsalnum, urðu þeir aldrei leiðir á að hlusta á skemmtilegar frásögur hans. Ekki voru þetta allt ömmusögur. Georg þóttist maður með mönn- um, og hann kryddaði mál sitt með hraustlegum blótsyrðum og öðrum kjarnyrðum. En allt varð málfarið hóflegra, ef herra Holmes var nær- síaddur. Þá átti illt orðbragð ekki við. Því að piltarnir vissu, að herra Holmes var meðlimur í ströngum fríkirkjusöfnuði og starfandi þar. Og þeir efuðust ekki um, að hann væri einlægur í trú sinni. Raunar þótti þeim einn ókostur við kristilegan áhuga húsbónd- ans. Hann skyldaði nefnilega starfsmenn sína til þess að sækja kirkju í söfnuði sínum á sunnudög- um í Zíon-kapellunni, sem svo var nefnd. Piltarnir sættu sig nú við þetta flestir, að vísu, því að Holmes var bezti karl. En þeim þótti miður, hvað bekkirnir í kapellunni voru harðir og óþægilegir, svo að þeim var ómögulegt að fó sér blund, meðan presturinn prédikaði. Georg Williams hafði lítið sem ekkert komizt í kynni við lifandi kristindóm í æsku sinni. Þegar hon- um varð hugsað til sóknarprests- inr síns í Somerseth, sá hann allt- af fyrir sér mann með riffil, veiði- Núverandi húsakynni aðal.iélagsins i Lundúnum, — þess, er Georg Williams stofnaði. IhllNN — SUNNUDAGSBLAÐ 895

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.