Tíminn Sunnudagsblað - 09.11.1969, Síða 14

Tíminn Sunnudagsblað - 09.11.1969, Síða 14
MöSruvellir í Hörgárdal, þar sem Norðlendingar endurreistu menntasetur sitt. brigðum barngóður. Á sunnudög- um hafði hann það fyrir reglu að setja ?kammtinn sinn — gömlu fólki var alltaf skammtað á þess- um tíma — upp á hillu, þvi að hann sagði alltaf: ..Það getur einhver komið svang- ur til kirkju í dag“. — En grannarnir? — Þar má minnast á Ólöfu skáldkonu frá Hlöðum. Hún var yfirsetukona sveitarinnar — mjög sérstæðui persónuleiki. Við hana tók ég ástfóstri. í Spónsgerði var tvíbýli, á öðru búinu bjuggu Jón og Margrét Stefánsdóttir. Margrét var saumakona sveitarinnar, og það var snilidarhandbragð á öllu, sem hún gerði — ógleymanleg mann- eskja. Svo kenndi Ólafur Davíðsson grasaf!'æðingur okkur krökkunum. Hann var frá Hofi í Hörgárdal og settist að á æskuslóðunum, er hann kom frá námi i Kaupmanna- höfn. Hann tók mig að sér eins og ég væri hans eigið barn. Ég á enn- þá einkunnabók, sem hann gaf mér 1902. Þar hefur hann skrifað: „Hulda les eins og engill. Ólafur, 1902“. Þá var ég fimm ára, en á þessum árum var byrjað að kenna börnum fyrr en nú er gert. Eins og margir muna eflaust, drukknaði hann í Hörgsá haustið 1903. Hann hafði farið niður að Gásum til þess að safna fjörugróðri og steinum og var talið, að hestur hans hefði hnotið í ánni. Áður en hann dó, hafði hann gert arfleiðslu- 902 skrá, þar sem hann arfleiddi mig að eigum sínum: Handriti að þjóð- sögum sínum, plöntusafni og nokkru safni barnabóka, sem þá voru sjaldséðrr. Stundum held ég, að Ólafur hafi séð lát sitt fyrir, því að stuttu áður en hann drukkn- aði, fór hann með okkur Valtý, bróður minn, til Akureyrar og lét mynda sig með okkur. Ólafur skipaði fremsta sess — ásamt for- eldrum minum — í huga mínum, enda vildi ég ekki læra hjá öðrum fyrst eítir lát hans. — Svo flytjizt þið til Akureyr- ar? — Eítir brunann vorum við öðru hvoru á Akureyri- Þegar fað- Stefán Stefánsson, skólameistari. ir minn tók svo við skólastjórn 1908, fluttumst við svo alveg til Akureyrar. Ég saknaði mjög sveit- arinnar og fólksins á Möðruvöll- um. Á Akureyri sá ég fyrst jólatré — þá sjö ára — er við vorum boðin tii Odds lyfsala Thorarensens Faðir minn var á móti jólatrjám, því að hann sagði, að íslendingar ættu ekki að taka þann sið upp fyrr en þeir gætu sjálfir ræktað jólatré handa sér. — Var ekki oft mikið lif og fjör í skólanum? — Maður hlakkaði alltaf til á haustin, þegar nemendurnir komu, en kveið líka kveðjustundinni á vorin. Valtýr Stefánsson, rifstióri TtUlNN — SUNNUDAGSBLAÐ /

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.