Tíminn Sunnudagsblað - 09.11.1969, Page 17

Tíminn Sunnudagsblað - 09.11.1969, Page 17
Færeyjar eru mikiUIeitar, og synir eyltíi\na eru. traustir rrienn margir hverjir) oft hæglátir, dulir og viijesterkir. — Myndin er úr Hvajjnhaga á Suðurey. ★ Þorkell Færeyingur Þáttur úr endurminningum Jónasar Jónassonar, skipstjóra Þorkell er maður nefndur. Hann var Færeyingur að uppruna og hafði kornið til Neskaupstaðar með liöndum sínum, sem stunduðu þar sjóróðra um margi'a ára skeið^ og öentist þar að lokum. Hann stund- aði þar sjóróðra eins og fleiri og gerði við ýmsa hluti hjá fólki, því áð maðurinn var hagur á flest, og hafði lært járnsmíði i Færeyjum á ungum aldri. Hann bjó einn í kofa niðri við sjóinn, þegar hér var komið sögu, matreiddi í sig sj'álfur og sá um sig að öllu leyti. Hann var nokkuð við aldur, þeg- ar ég kynntist bonum, og féll vel ó með okkur. Hann var skemmt- inn í viðræðum og kunni frá niörgu að segja. Honum þótti gott í sfaupinu, en .gæíti hófs í því sem öðru. Hann var trúmaður, eins og margir íxtsknir Færeyingar voru, og mátti ekki vamm sitt vita og þvi varð honum vel til vina. Ýmsar sagnir £§Dgu um þ^ð þar eystra, að Þorkeli væri nokk- uð það til lista lagt, sem fáir aðr- ir kynnu. Var það i því fólgið, að hann gat opnað hvaða læsingu,' sem hann vildi, og það á svo undur samlegan hátt, að hann virtist ekki nota nein verkfæri — bara berar hendurnar. Mér þótti þetta í meira lagi merkilegt, ef satt væri, og ákvað að leita mér frekári vit- neskju um þetta hjá mönnum, sem treysta mátti að segðu satt og rétt fná. Ég þurfti ekki að leita lengi, því að þetta mátti heita á hvers rnanns vörum í pióssinu. Ég komst líka að því seinna, að sá, sem sagði mér, var bezti vinur og trúnaðarmaður Þorkels Ilann sagði mér, að áður fyrr, nokkru eftir að Þorkell ílentist þarna, hefði hann oft opnað hirzlur fyrir fólk. En enga borgun tók hann fyrir og mátti helzt ekkj heyra á það minnzt. Séra Jón, sem þá var prestur i Norðfirði, var afgreiðslumaður Sameinaða gufuskipafélagsins þar. Einhvern tíma vildi svo til, þegar verið var að afgreiða skip, að lyki- ar að stórum penjngaskápi, sem þar var, týndust. í skápnum voru geymd skjöl og peningar, sem t’t- heyrðu afgreiðslunni. Nú v.oru góð ráð dýr. Einhver benti presti á að leita til Þorkels, en hann var tregur til og sagðist ekki trúa á slíka furðu. En þegar allar vonir brugðust að opna skápinn, og ekki var útlit á öðru en skipið yrði að fara án skjalanna og peninganna. gaf prestur loks eftir, og Þorkeil var sóttur. Þegar hann kom, set’u menn sig út til að sjá, hvort ham hefði nokkuð meðferðis. En hann var í sínurn vanalega klæðnaði, duggarapeysu og vaðmálsbuxum. varð ekki séð, að hann hefði með- ferðis nein sérstök verkfæri. Hann gekk rakleitt inn í skrif- stofuna og skipaði öllum að fara út. Því var hlýtt. Þorkell lokaði síðan hurðinni. Eftir örskamma stund korn hann út, og sáu menn þá í gegnum dyragættina, að skáp- urinn stóð opinn upp á gátt. En Þorkell gekk heim til sín og hai'ði ekki frekar tal af neinum. Þegar Keli Færeyingur (því syo var Jj§nn oEasi nefndúr í dfiglegíi umgengni), fór að eldast, vavð hann æ tregari að fást til þess að opna læsingar, og að síðustu neit- aði hann því algerlega. Það var eitt sinn, að Sigfús Sveinsson, sem var kaupmaður, stóratvinnurekandi og afgreiðsiu- maður Thorefélagsins í Neskaup- stað, týndi lyklunum að peninga- skáp sínum. Reið honum þá á að komast 1 hann af svipuðum ástæð- um og séra Jóni fyrr á árum. Þeg- ar reynt hafði verið til þrautar að o.pna skápinn, sendi hann mann til Kela Færeyings og báð hann að rlniNN — SVNNUOAGSBLAÐ 905

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.