Tíminn Sunnudagsblað - 23.11.1969, Blaðsíða 18

Tíminn Sunnudagsblað - 23.11.1969, Blaðsíða 18
MAGGI SIGURKARL Gömul minning Sumar og sól, fuglasöngur og blómadýxð. Hún leiðir lítinn dreng við hlið sér og glæðir skilning hans á dýrð lífsins — dýrð guðs. Eða hin löngu dimmu vetrai- kvöld: Hún situr á rúminu sínu og prjónar, og litli drengurinn við hlið hennar. Þá kennir hún hon- um fallegar bænir og vísur eða segir honum sögur. Svo þegar hann stækkar, þá kennir hún honum að lesa- Hann er hreykinn, þegar hann sex ára gamall getur lesið upphátt fyrir hana úr Nýja-testamentinu og Njálu. Og árin líða. Drengurinn verður að fara í skóla. í fyrstu finnst honum ó- bærilegt að þurfa að skilja við gömlu konuna, en hann sættir sig þó við það. Erfiðast er það, þegar hann á einn vetur eftir. Þá er gamla kon- an lasin, og hann veit, að svo getur farið, að hann sjái hana ekki aft- ur. En hann verður að fara. Þegar hann kveður, tárast gamia konan, en honum tekst að láta ekki á meinu bera, þó að honum sé þungt fyrir brjósti. Gleði endurfundanna er líka ttnikil, kyrrlát, hlý og djúp. Nokkrum dögum seinna er hann að vinna úti á túni. Þá er kallað á hann að koma strax heim. Hann veit hvað er að gerast. Eintover innri rödd segir honum, að nú sé kveðjustundin komin. Gamla kon- an hefur ftengið slag. Hún þekkir hann þó, þegar hann kemur að xúiminu toennar og reynir að lyfta hendinni. En mátturinn er þrot- inn. Hann sezt á rúmstokkinn og tekur í hönd hennar. Hún hafði alitaf styrkt hann, ef hann þurfti á styrk að halda, og nú vill liann veita henni þann styrk, sem hann getur, í hennar hinztu baráttu. í fjórtán klukkustundir hefur hann setið og haldið í hönd henn- ar, meðan lífið fjaraði út i líkama hennar. Þá er eins og af henni brái. Hún hálfrís upp sem snöggv- ast, og það breiðist bros um and- lit hennar. Bros, sem er þrungið gleði, friði og öryggi. Svo hnígur hún út af og þrjú andvörp stíga frá brjósti hennar. ★ Jarðarförinni er lokið, og hinir nánustu þeirrar látnu ganga i röð að gröfinni og signa h ina. Hann er seinastur i röðinnl. Hann veigrar sér hálfpartinn við að iíta niður í gröfina. AS lobum er þó röðin komin að honum. Hann gengur hægt að gröfinni og skrifar krossmark í loftið. Hing- að til hefur hann getað harkað af sér, en nú er líka viljastyrkur hans þrotinn. Hann getur þó ekki grátið, en hann gefur frá sér sárt hljóð. Þá er lögð sterk hönd á öxl honum. Vinarhönd er ævinlega nærri á örlagastundum. Það má aðeins eldd hrista hana af öxl sér. Höndin, sem hvíldi á öxl hans, virtist ekki gera mikið, en hín óskiljanlega orka að baki hennar, máttur kærleikans, veitti honum nýjan styrk. Hann leit niður á hvítu kistuna í síðasta sinn. í sama bili kom sólin fram undan skýi og iýsti niður í gröfina, fyllti hana af birtu og yl. 954 T t M 1 N N — SUNNUD A GSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.