Tíminn Sunnudagsblað - 01.11.1970, Blaðsíða 14

Tíminn Sunnudagsblað - 01.11.1970, Blaðsíða 14
arsvæðið, og nú er svo komið, að þetta hefur verið árviss atburður, sem notið hefur sívaxandi vin- sælda. Var til dæmis einn liður í listahátíð í Reykjavík. — Þið ætlið þá auðvitað að halda þessu áfram? — Nú er svo ráð fyrir gert, að við hvílum okkur næsta ár, en komum síðar með margföldum krafti undir bert loft sumarið 1972. Upphaflega var hugmynd , okkar með þessu sú, að efla högg- myndalist sem útilist á íslandi En það var mikil vinna að gera mynd- ir svo stórar, og úr því efni, sem þolir íslenzka veðráttu Við ótt- umst, að þreyta geri vart við sig hjá listamönnunum, og því viljum við hvíla okkur í eitt ár — Halda ekki íslenzkii mynd- listarmenn sambandi við starfs- bræður sína í öðrum löndum? — Jú. Síðast liðið vor var ég fulltrúi íslands á fundi Norræna listabandalagsins í Osló Það var þriggja daga samkoma. — Þar hafa mörg mái verið til umræðu? ; — Já. já. Meðal þeirra mála, ; sem þar voru rædd, var stóra nor- ræna myndlistarsýningin, sem halda á í Reykjavík 1971. í leið- inni notaði ég tækifærið til þess að skoða myndlist og að kynnast forystumönnum félagsskapar myndhöggvara í Osló. Þar gat ég komið á framfæri áhugamáli okk- ar, íslenzkra myndhöggvara: Nán- ari tengslum og samskiptum við ! kollega okkar í Skandinavíu. Fyrsti þáttur slíks samstarfs myndi verða skipti á íslenzkum og norskum myndhöggvurum, þannig að þeir gætu fengið vinnustofu, bústað og sýningarsal gagnkvæmt hvorir í annars landi. — Það virðist vel til fundið En má ég nokkuð spyrja um viðhorf j þín til myndlistar almennt? j — Ég er realisti og kannski ji næstum natúralisti. Þetta hafur að vísu ekki átt upp á pallborðið nú um sinn, en margt bendir til þess, að einhvers konar realismi sé aft- ur að verða áberandi í heimslist- inni. Þessir framúrstefnustílar hafa óneitanlega stækkað vettvang myndlistarinnar. Mín skoðun er þó sú, að þeir, út af fyrir sig, hafi ek'ki skapað snillinga. Aftur á móti hafa snillingar skapað þá. Og snillingar geta leyft sér hvaða stíl sem er. VS. JÓNAS E. SVAFÁR: Hrafnaþing að hafa yfir höfði sér hlutlausa hrafna hljóðvarp og sjónvarp að brjótast til vits og ára með þórshamri og mánasigð að hneigja sig djúpt í gengislækkun fyrir verðbólgu hafmeyjanna að sjá í gegnum fingur við fálkann og hafa fjárfestinguna í hendi sér. 854 T f M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.