Tíminn Sunnudagsblað - 01.11.1970, Side 20

Tíminn Sunnudagsblað - 01.11.1970, Side 20
vilja hafa sa'man við okkur að sælda. En þeir koma sarnt. Við eigum að vera eins og við erum, en samt eru þeir alltaf á hælunum á okkur til þess að leggja okkur lífsreglurnar, segja okkur, hvað við eigum að gera og hvað við niegum ekki gera, og þegar færi gefst, neyða þeir okkur til þess að leggjast með sér i einhverju skúmaskotinu. Vig búum aldrei í svo 'andstyggilegum grenjum, að þeir setji það fyrir sig, ef þeir koma þar að okkur einir í skugg- sýnu“. Það sló þögn á þær allar við þessa ádrepu. Já, hvað vilja þeir eiginlega? stundi Sara í barm sér. Hún snökti ofurlítið og bar handlegg- inn upp að andlitinu. Hún minnt- ist margra annarra biðraða, sem hún hafði orðið að standa í síðustu mánuðina. Fyrst hafði það verið á þessari svokölluðu heilsuvernd- arstöð. Það höfðu þeir auðmýkt hana svo hræðilega, að hún gat ekki gleymt því. En hinar konurn- ar voru með allan hugann við börnin sin og mennina sína. Hvað skyldi vesalings barnið mitt verða að þola vegna föður síns? hugsaði hún. Hún hafði með sér prjóna, svö að hún gæti komið sér upp ein- hverju plaggi á barnið. Og nú þeg- ar hún stóð við þessar skrifstofu- dyr hafði hún engan tima til þess að hugsa um það, sem gerðist í heilsuverndarstöðinni heima 1 hverfinu hennar. Hún heyrði dá- lítið högg inni í skrifstofunni, og svo skrjáfaði í pappír. Og svo heyrði hún önuga rödd: „Næsta“. Biðröðin mjakaðist áfram. Þetta var þriðja vikan, sem hún var hér, án þess að hún kæmist inn í her- bergið, þar sem skrjáfaði í papp- írum og röddin önuga kallaði á þá næstu. Sér til furðu hafði hún veitt því athygli, að það var tals- verður munur á þessum konum og þeim, sem komu í heilsuvernd- arstöðina heima. Þar voru þær hreyknar af mönnum sínum og börnum — hér kvörtuðu þær að- eins yfir þeim hörmungum, sem þær höfðu orðið að þola. Hún nálgaðist dyrnar, og hún fór að kvíða því, að dyravörður- inn myndi segja eins og hann var vanur: „Baas mkúlú — herran mikli — kemur aftur á morgun“. Þau orð hafði hún heyrt allt of oft. Dyravörðurinn afríski var þrek- vaxinn maður, og hárið vísaði allt fram. Það var vani hans að horfa illskulega yfir gleraugun. Það var ekki út í bláinn gert. Konurnar urðu að víkja einhverju að hon- um í von um, að þá yrði viðmót- ið skárra, þegar inn kom, ef þær vildu ekki vekja reiði hans. Öðru hverju leit hann inn í skrif- stofuna, og síðan hleypti hann inn einni og einni konu. sem kom út aftur að vönnu spori. Dveldist þeim inni, rak hann höndina í einhverja konuna, klappaði henni á bakið og sagði: „Tsena mósalí!“ Og svo fékk ein að fara inn. Fæstar skeyttu því, þó að hann væri nær- göngull við þær. Næsta! Sara dró andann léttar. Já, herrann mikli þarna inni hafði hjálpað imörgum stúlkum, og hvers vegna skyldi hann þá ekki líka hjálpa henni til þess að fá öfurlítinm styrk. Þetta flaug í gegn um huga hennar, þegar hún sá manninn. Biðröðin var orðin löng. Kon- urnar tíndust út, ein og ein — - sumar brosandi, aðrar daprar, grátandi. Það mátti sjá á þeim, hver erindislokin höfðu orðið. Skrifstofan var stór. Um hana þvera var langt og þungt skrif- borð, og á því voi'U hlaðar af skjöl um, mismunandi að lit og stærð og lögun. Bækur og skjalahylki voru í röðum fyrir aftan feitan, hvítan mann, sem sat við borðið og beið þess, að Sara bæri upp erindi sitt. Andlitið var dumb- rautt, og hann var hörkulegur á svip, munnurinn stór, gervitenn- ur. Hann spennti greipar á borð- inu fyrir framan sig, og blá aug- un horfðu á Söru undan loðnum augabrúnum. Það var eins og skyrtan væri að springa utan af honum, og aftan á hálsinum voru margar fellingar. Hann ræskti sig öðru hverju. Jafnskjótt og konan hafði sagt eitthvað, kingdi hann munnvatni sínu og sagði: „Næsta!“ Þetta hafði liann gert í tuttugu ár. Hann hafði alizt upp úti í sveit, og leiksystkin hans voru börn Miaborgin í Pretoríu, þar sem goð hinna hvítu manna standa á stöllum í myndarlegu umhverfi. Frá slík- um stoðum er ánauðinni stjórnað. 860 TÍMINN - SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.