Tíminn Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Tíminn Sunnudagsblað - 02.05.1971, Qupperneq 10

Tíminn Sunnudagsblað - 02.05.1971, Qupperneq 10
Svörtuásum og Urðarásliiiu A'ðiins sást höggva fyrir Hvalhnjók, þeg- ar við fórum fyrir suðvesturenda hans. Þokan stækkaði aJlt og giör breytti öllu, svo að klettadrangar og smáhólar sýndust ferlegustu fjöll. Og þannig hélzt veðrið vest- ur yfir hábrún fjailsins, ofan fyr- ir efstu brún Grindaskarða. Þá var sem komið væri allt í einu inn í annan heim, aðra veröld Þegar komið er ofan úr efstu og bröttustu brekku skarðsins, mynd ast allstór stallur í fjallið, norð- vestan götunnar. í hvammi þess- um eða hvilft, sem er vel gróin, munu flestir lausríðandi, hvort heldur voru á austur eða vestur- leið, hafa farið af baki. Það stóðst á endum, að þegar við komum í hvamm þennan var allt óveður að baki: Veður þar þurrt og gott, eng- in þoka, aðeins dagsbirta. Þegar við komum í hvamminn til þess að rétta ofurlítið úr okkur og fara úr vosklæðum, þá er þar maður fyrir og er að spenna hankkólar af tösku sinni og hlífðarfötum. Hann sá augsýnilega, hvernig veðrið myndi vera, þegar upp kæmi á fjallið, enÆg kunnug- ur bæði vegi og veðri í þessum slóðum. Maður þessi reyndist vera Jón Jónsson yngri, bóndi að HHð- arenda í Ölfusi, einn af fáum Ölf- j usbændum, sem notuðu þessa leið til kaupstaðarferða til Hafnar- fjarðar, jafnvel einnig, þótt ferðin væri gerð til Reykjavíkur. Þótt Jón bæri ekki kennsl á okfcur, þá þekkti ég hann undir augun. Hann innti nú eftir, hver við værum og hvaðan við kæmum úr heyskap, þar eð hann sá am- boð okkar á reiðingshestinum. Við sögðum Jóni deili á okkur og hvar við höfðum heyjað. Þá segir Jón: „Þú kaupir vitan- lega villiféð í Herdísarvík“? , „Hug hef ég á því“, anza ég. „Þið hljótið að koma ykfcur sam- I an, hann er í svo slæmri stöðu, "en þú með allan réttttm þín megin“, áréttaði Jón. Ég svaraði því til, að ég hefði enga löngun til að beita þeim rétti og myndi ekkj. gera, fyrr en taQt annað væri þrofið. Að síðustu gekk Jón að hesti sínum, opnaði hnakktösku sína og kom þaðan méð pela, fullan af f.jkóhíaki. Bauð hann okkur hress- ingu, hvað við þágum, þar eð vatnsioppa var enn í höndum okk- a’r. Að þessu eakramenti loknu lót Jón peiann 1 tösku sína, kvaddi okkur með beztu óskum, lagði tauma á makka og lét hestinn taka götuna í þrattann og illviðrið, sem hvein í tindum og brúnum fjalla. Við stigum á bak og héldum und- an brekku niður í sólskinið, sem beið okkar neðan fjalls. Óveður það, sem geisaði austan Grindaskarða, kom aldrei nær Hafnarfirði þann dag en á brún Grindaskarða, því að sólskin var og þurrkur allan daginn við sjó- inn. Smáútskefjar voru óslegnar í túni okkar á Hvaleyri, sem við unnum upp og þurrkuðum, og var heyskap þar með lokið það sumarið. Að þeim töðugjöldum loknum fór ég til Reykjavíkur á vit við Þórarin til að heyra, hvernig í honum lægi um hugsanleg við- skipti okkar. Ég var búinn að afla mér öruggra heimilda, sem var að vísu trúnaðarmáT, um verðlag á sláturafurðum, svo sem verða myndi á komandi hausti, Það er í næstu sláturtíð. Eftir því verðlagi samdi ég verðskrá og tók þar til, hvað ég treysti mér til að greiða fyrir hverja tegund fjárins. Hús hey og timbur lét ég liggja á milli hluta fyrst um sinn. Tilboð mitt í féð var sem hér segir: Ær, mylkar...á 27,- Ær, geldar...á 35,- Sauðir............á 40. Hrútar............á 30.- Veturgamalt..á 28.- Lömb..............á 12,- Því miður fékk ég ekki verð- lista Þórarins, en ég man, að allir flokkarnir voru allmi'klu hærra metnir heldur en mitt boð var. Ég man aðeins, að lömbin áttu að kosta fimmtán krónur. í verðlagi mínu gerði ég ráð fyrir að kaupa nokkru verði líf fjárins, sem á vetur yrði sett. Tók þar undan lömb og sauði, sem hvort tveggja fór, eða myndi fara, í sláturhús þetta haust, þar eð ég taldi, að ég yrði að borga Þórarni þá um haustið svo mikið sem mögulegt væri. Ég afhenti Þórarni verðlista minn og óskaði í fullri alvöru, en hóglega, að hann athugaði vel þau viðskipti, sem lægju nú í loft- inu okkar í millum, þar eð verð- lag gæti versnað enn. Þórarinn sagði ekkert við þessu. Mér fannst þó, sem hanm væri heldur mýkri ákomu heOduT em í 'hið fyrra skipti. Ég sá, að gagnlaust myndi að tefja lengur, þakkaði því veittar vel gerðir og kvaddi hjónin með vin- semd og virktum. Tíminn leið óðfluga að réttum, svo ég varð að fara að fá eitt- hvað að vita. Að viku liðinni frá síðustu för minni til Þórarins fór ég emn að finna hann og satt að segja, þá bjóst ég ekki við lokk- andi tilboði frá honum. En það fór á annan veg. Ég var varla setzt- ur niður hjá honum, þegar hann segir, formálalaust: „Ég hef hugsað mér, að þú fáir vilja þínum framgengt. Ég geng að þínu boði, og í einu tilfelli fer ég lægra, þú færð lömbin á fíu krónur, en þú bauðst tólf krónur. Svo læt ét fjármark mitt fylgja fénu sem kaupbæti. Það er tví- rifað í stúf hægra og stúfrifað vinstra“. Svo auðvelt datt mér ekki í hug, að þetta yrði. Með annað, serni Þórarinn átti þar eystra — hús, hey og timbur á reka — fór hann niður í tólfhundruð krónur, og taldi ég harla góð kjör. Þótt þessi upphæð væri nokkur penimgur, þetta allt miér nauðsymlegt vel standandi í góðu ásigkomulagi og á staðnum. Ég var því mjög glað- ur við þessi óvæntu tíðindi, sem engin hætta var á að riftað yrði. Svo kom frú Ólöf með góðgerðirn- ar, sem að þessu sinni voru jafn- rausnarlegar sem fyrrum í Her- dísarvík. Það stóð næstum á sama, hve mikið var borðað og drukkið, leifarnar virtust vera jafnmiklar og þegar inn var borið. Að góð- gerðum þegnum segir Þórarinn: „Ég er búinn að fá hamn Steiina í Lónakoti til að smala allar rótta- smalanir í haust með ykkur, og hanrn á að afhenda þér allt féð jafnóðum og fyrir kemur. Hann hefur samhljóða tölur á hverri tegund og ég gaf þér upp, og ætla ég, að ekki skakki miklu. Þið hafið samband ykkar á milli. Þetta verður þér að kostnaðarlausu". Þorsteinn sá, sem Þórarimn nefndi, var fyrrverandi fjármaður Þórarins, afbragðs fjármaður. Allt það, sem Þórarinn sagði við mig að þessu sinni, gladdi mig ósegjanlega, og var sem ég heíði himin höndum tekið. Ég hélt heim- leiðis hlaðinn góðum fréttum. Fám dögum seinna bar mér annað happ að höndum og það óvænt og fyrirhafnarlaust. Fyrir komandi vetri, hvað veru rnína eða m ItMINN SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.