Tíminn Sunnudagsblað - 28.04.1973, Side 19

Tíminn Sunnudagsblað - 28.04.1973, Side 19
Séra Jón E Einarsson, Saurbæ: Kirkju- þáttur íí Frá þvi barnið biöur fyrsta sinn blitt og rótt við sinnar móður kinn, til þess gamall sofnar sfðstu stund, svala ljóð þau hverri hjartans und. Þannig komst séra Matthias að orði um Passiusálmana. Þau orð eru ennþá i fullu gildi. I yfir 300 ár hafa Pssiusálmarnir flutt islenzku þjóðinni hið lifandi og eilifa orð vonar, kærleika og trúar. Þeir hafa flutt íslendingum styrk og huggun, verið þeim trúarleg næring og leiðarljós á vegi þeirra frá vöggu til grafar. Flestir íslendingar muna orð séra Hallgrims allt frá fyrstu bernsku og svo lengi sem þeir lifa. Það er staðreynd, að hvar sem is- lenzk móðir signir barn sitt og kennir þvi að biðja, þar talar séra Hallgrimur. Og i hvert sinn sem látinn samferðamaður er kvaddur, þar hljóma orð hans. Allt lifsskeið- ið tala trúarljóðin hans til okkar og varpa birtu á veginn, sem við göng- um. En á svo gamall skáldskapur, sem Passiusálmarnir eru, nokkurt erindi til þeirrar kynslóðar, sem nú lifir i landinu. Hafa þeir menn ekki rétt fyrir sér, sem telja það fá- sinnu, að þeir séú lesnir i Rikisút- varpið, þar sem þeir eigi ekkert er- indi til samtimans? Eru Passiu- sálmarnir kannski úreltir og þvi ósamboðið útvarpinu og menningarhlutverki þess, að þeir séu fluttir nútimafólki? Væri það satt, þá væri Passiusálmarnir ekki sú bók á Islandi, sem oftar er gefin út en nokkur önnur. Og þá mundu ekki þúsundir manna, jafnt ungir .sem aldnir, leggja leiö sina að Saurbæ, ganga meö lotningu að leiði skáldsins og i minningarkirkju hans, fræðast um Pássiusálmana og komast i snertingu við anda þeirra og boðskap. Sannleikurinn er sá, að séra Hallgrimur er enn i dag samtimamaður og trúarleiðtogi is- lenzku þjóðarinnar. Hann hefur verið og er hinn mikli og lýsandi viti, sem borið hefur ljós og anda frelsarans inn i lif Islendinga kynslóð eftir kynslóð. Vegna Passiusálmanna hefur enginn Islendingur verið elskaður og dáð- ur eins og hann. I Passiusálmunum hefur hann talað til þess, sem dýpst er, rótstæðast og varanlegast i eðli og innri verund islenzkrar þjóðar. Passiusálmarnir eiga brýnt er- indi til samtimans, af þvi að þeir flytja okkur sannleikann um Guð og manninn, um okkur sjálf and- minu þau ár, sem ég hef verið prestur i Saurbæ, minnist ég fjöl- margra einstaklinga, bæði inn- lendra og erlendra, sem með þakk- lætið efst I huga hafa lagt leið sina að gröf sálmaskáldsins eða komið i kirkju hans, ekki einvörðungu til að sjá og skoða fegurð hennar og tign, heldur lika til að þakka Guði fyrir þá miklu gjöf, sem Passiusálmarn- ir eru, og fyrir miskunn hans og eilifa trúfesti. Ég minnist gamall- ar, vestur-islenzkrar konu, sem fyrir fáum árum kom um langan veg úr annarri heimsálfu, ásamt syni sinum, einkabarninu, sem heitinn var eftir séra Hallgrimi. Hún haföi orðið fyrir þeirri þungu Passíusálmarnir og samtíminn spænis Guði. Passiusálmarnir flytja nútimamönnum boðskap til aðvörunar og eftirbreytni. Þeir flytja þeim lærdóm i lifsspeki og siðprýði, auðmýkt, þolinmæði og fórnarlund, trúartrausti, bænrækni og kærleika. Þeir geta hjálpað hin- um ungu íslendingum til vaxtar og þroska i hinu góða og sanna, hjálp- að þeim til að lifa svo lifinu, að það verði Guði þóknarlegt og þjóð þeirra og samtið til sannrar gleði, hamingju og blessunar. — Með hverju ári, sem liður, verður mér það æ betur ljóst, hversu mikils virði Passiu- sálmarnir eru, ekki aðeins trúar- lifi, uppeldi, og kristinni menningu islenzku þjóðarinnar, heldur einnig trúarlifi annarra þjóða. Frá starfi raun að missa fjögur börn sin. Þá lét hún heita eftir séra Hallgrimi, og það dugði. Og að Saurbæ voru þau komin til að bera gjafir þakklætisins i kirkju skáldsins og flytja Guði lofgjörð hjá leiði hans. Ég minnist ameriskrar konu, sem fyrir nokkrum árum kom vest- an frá Bandarikjunum og bað um að fá að dveljast i Saurbæ i nokkra daga. Hana langaöi til að kynnast Passiusálmunum i þvi umhverfi, þar sem þeir urðu til, fá að sjá stað- inn, þar sem séra Hallgrimur lifði og orti. Hún starfaði að uppfræðslu barna I heimalandi sinu, og hana langaði til að bera börnunum boðskap Passiusálmanna. Og svo sterkt orkuðu Passiusálmarnir og Flutt á bls 382 Sunnudagsblað Tímans 379

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.