Morgunblaðið - 09.05.2004, Side 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. MAÍ 2004 9
Mörkinni 6, sími 588 5518.
Stuttar og síðar kápur,
sumarúlpur, heilsársúlpur,
regnkápur, bolir, peysur,
stakir jakkar og slæður
Opið sunnudag kl. 12-16
Opið virka daga kl. 10-18
laugardaga frá kl. 10-16
Sumartilboð
15-50% afsláttur
Síðasti dagur vortilboða er í dag
og að sjálfsögðu er opið frá kl. 10-17
Veiðihornið - Hafnarstræti 5 - sími 551 6760 • www.veidihornid.is • Veiðihornið - Síðumúla 8 - sími 568 8410
Sendum samdægursMunið gjafabréfin
ERTU AÐ MISSA AF EINHVERJU?
VORTILBOÐUM VEIÐIHORNSINS LÝKUR Í DAG!
Frábært úrval af fluguveiðisettum á vortilboði. Sage DS2 (grafit 2) ásamt Ron Thompson
diskabremsuhjóli með uppsettri línu, baklínu og taumatengi. Aðeins 31.800. Scierra HMS
(Henrik Mortensen Series) ásamt Ron Thompson diskabremsuhjóli með uppsettri línu, baklínu og
taumatengi. Aðeins 29.999. Scierra Avalanche 3 hluta stöng með Scierra Large Arbour hjóli með
uppsettri línu, baklínu og taumatengi. Taumur og kastkennsla á dvd með Henrik Mortensen fylgir.
Verð aðeins 24.900. Hvergi meira úrval, hvergi betra verð.
Ron Thompson neoprenvöðlur frá 7.995.
Ron Thompson vöðlur + vatnsheldur jakki með öndun + vöðlutaska aðeins kr. 19.995.
Scierra MBQ öndunarvöðlur ásamt Scierra Greyhound skóm aðeins 19.995.
Scierra Aquatex vöðlur ásamt jakka og skóm aðeins 29.995.
Úrvalið er hvergi meira og verðið hvergi betra. Neoprenvöðlur frá 7.995, öndunarvöðlur frá 15.120, vöðluskór
frá 7.195, vatnsheldir jakkar með öndun frá 9.590, veiðivesti frá 3.360 og margt fleira.
Láttu okkur vita ef þú sérð meira úrval og betra verð annars staðar.
Simms og Scierra öndunarvöðlur í miklu úrvali á vortilboðsverði.
Simms Freestone vöðlur ásamt Simms skóm, belti og sandhlífar fylgja. Aðeins 29.900.
Bættu Simms jakka við og allur gallinn fæst á aðeins 49.900. Hvergi meira úrval, hvergi betra verð.
Frábært úrval af fluguhjólum og spinnhjólum á mögnuðu vortilboði. Greys Large Arbour hjól með
diskabremsu, hulstri og 2 aukaspólum, aðeins 8.390. Bættu við 3 flugulínum og pakkinn er á 16.995.
(Uppsetning með baklínu 3.000). Okuma Large Arbour hjól með diskabremsu aðeins frá 3.750.
Ron Thompson með diskabremsu og legu. Neoprenhulstur fylgir. Aðeins frá 5.250.
Okuma spinnhjól í úrvali frá kr. 2.250. Hvergi meira úrval, hvergi betra verð.
Byssuskápar á besta verði
Öruggir, vandaðir og viðurkenndir byssuskápar á betra verði en þú sérð annars staðar. Við höfum
selt talsvert á annað hundrað skápa á fáum vikum. Stór sending er væntanleg um mánaðamótin
maí/júní. Enn á ný bjóðum við skápa í forsölu. Þeir sem kaupa skáp fyrirfram og staðgreiða fá
15% afslátt. Stór sending í mars seldist upp áður en hún kom til landsins. Stór sending í apríl
seldist einnig upp áður en hún kom til landsins.
Við fáum 3 stærðir af skápum í þessari sendingu.
INAL5 fyrir 5 byssur (140x33x25 sm). Topphilla. Verð aðeins 21.900 í forsölu, annars 25.900.
INALPT7 fyrir 7 byssur (150x45x33 sm). Læst innra hólf. Verð aðeins 29.980 í forsölu, annars 35.500.
INALPT14 fyrir 14 byssur (150x45x40 sm). Læst innra hólf. Verð aðeins 36.900 í forsölu, annars 42.500.
Skáparnir eru viðurkenndir af lögreglu. 3 mm stál, 5 kólfar, 25 mm ganga úr hurð í karm.
Sjá einnig www.veidihornid.is
MÁLEFNI Orkuveitu Reykjavíkur
komu til umræðu á fundi borgar-
stjórnar á fimmtudag og var rökrætt
um rekstrarformið. Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson, oddviti Sjálfstæðis-
flokksins, sagðist ekki skilja hvað
borgarfulltrúar Vinstri-grænna inn-
an R-listans hefðu á móti hluta-
félagaforminu. Þeir hefðu barist
gegn því þegar breyta átti OR í
hlutafélag á sínum tíma þó að Fram-
sókn og Samfylking hefðu verið því
sammála. Margir félagar í VG væru
örugglega búnir að breyta sínum
rekstri í hlutafélag.
Tilefni ummæla Vilhjálms voru
umræður um kosti þess að breyta
Orkuveitu Reykavíkur í hlutafélag,
eins og lagt er til í skýrslu nefndar
um orkustefnu. „Það er ekki þannig
að heil stjórnmálahreyfing hafi eitt-
hvert tiltekið rekstrarform svo mikið
á heilanum að það megi hvergi koma
fyrir. Það er ekki þannig að flokk-
urinn sé mikið á móti hlutafélaga-
forminu sem rekstrarformi yfir höf-
uð,“ sagði Árni Þór Sigurðsson,
borgarfulltrúi Vinstri-grænna innan
R-listans. Fyrirtæki eins og OR ætti
að vera eign borgarinnar og ekki
ætti að selja það. Hlutafélagavæðing
byði þeirri hættu heim og benti hann
á fordæmi hjá ríkisstjórninni.
Stefán Jón Hafstein spurði sjálf-
stæðismenn í borgarstjórn af hverju
þeir vildu ekki ganga alla leið og
einkavæða Orkuveituna og vera
sjálfum sér samkvæmir. Ríkisstjórn
Sjálfstæðisflokksins notaði hvert
tækifæri til að stæra sig af einka-
væðingu á Íslandi og hann hefði
hlustað á Davíð Oddsson ræða það á
fundi í New York fyrir skemmstu.
„Undir minni forystu sem oddviti
borgarstjórnarflokks Sjálfstæðis-
flokksins verður ekki lögð fram til-
laga um að einkavæða Orkuveituna.
Við erum ekki með það á okkar
stefnuskrá. Ég hefði hins vegar vel
getað stutt Samfylkinguna og Fram-
sóknarflokkinn að gera Orkuveituna
að hlutafélagi,“ sagði Vilhjálmur.
Tekist á um rekstrarform OR
Vinstri-grænir einir á
móti hlutafélagaforminu
ÞRÍR nemendur úr rekstrardeild
Tækniháskóla Íslands tóku fyrir
skömmu þátt í alþjóðlegri nem-
endakeppni í Austurríki. Keppnin,
sem nú var haldin í tíunda sinn, er á
vegum samstarfsnets sextán há-
skóla og rannsóknarstofnana í Evr-
ópu, sem Tækniháskólinn er aðili
að.
Verkefnin áttu að þessu sinni að
fjalla með einum eða öðrum hætti
um áskoranir sem fylgja nýafstað-
inni stækkun Evrópusambandsins
og unnu nemendur THÍ sitt verk-
efni í samstarfi við nemendur
tveggja annarra háskóla, í Tékk-
landi og Austurríki.
Verkefni THÍ-nemendanna og
samstarfsaðila vann fyrstu verð-
laun í sínum riðli.
Nemendur THÍ og samstarfsskól-
anna greindu starfsumhverfi frum-
kvöðla í löndunum þremur og var
leitast við að svara þeirri spurningu
hvort, og þá hvaða áhrif stækkun
Evrópusambandsins kynni að hafa
á stöðu frumkvöðla í löndunum
þremur.
Eggert Tryggvason, deild-
arforseti rekstrardeildar, fylgdist
með keppninni. Hann segir þessa
keppni mjög lærdómsríka fyrir þá
nemendur sem taka þátt.
„Nemendurnir lögðu á sig mikla
vinnu fyrir keppnina og það skilaði
þessum árangri sem þær geta verið
stoltar af. Að mínu mati er þetta
samstarf mjög jákvætt fyrir okkur,
það er til marks um að skólinn
starfar og vill starfa í alþjóðlegu
umhverfi og enn einn vitnisburð-
urinn um það að Tækniháskólinn
hefur á að skipa framúrskarandi
nemendum og býður samkeppn-
ishæft nám á alþjóðlegan mæli-
kvarða, “ segir Eggert.
Nemendur við Tækniháskóla Íslands
Sigurlið THÍ í Euroweek-keppninni (talið frá vinstri) Pálína Mjöll Páls-
dóttir, Árdís Ármannsdóttir og Helga Kristjánsdóttir.
Sigruðu í alþjóðlegri nem-
endakeppni í Austurríki