Morgunblaðið - 09.05.2004, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. MAÍ 2004 29
Dr. Conteh lagði sig íhættu til að bjargasjúkri konu í barns-nauð. Að sögn dr.Koka, yfirlæknis frið-
argæsluliðs SÞ í Sierra Leone
hafði þessi sérfræðingur í Lassa-
sjúkdóminum nýlega svarað að-
spurður eftir fyrirlestur í Koidu að
hann væri sjálfur vísast ónæmur
fyrir Lassa-veirunni. Menn hefðu
orðið þá trú að sá sem einu sinni
lifði af smit mundi aldrei aftur
verða þessum skæða veirusjúk-
dómi að bráð. Það reyndist því
miður tálvon. Læknirinn mun hafa
rispað sig á nál við að taka á móti
barni konu með þennan sjúkdóm.
Og þrátt fyrir alla fáanlega hjálp,
m.a. friðargæsluliðsins og neyðar-
kall gegn um WHO lést hann á
skömmum tíma. Það sýnir best
hversu hættulegur þessi sjúkdóm-
ur yrði ef hann kæmist á kreik.
Í bók um tíu slíka skæða sjúk-
dóma, sem blunda á einhverjum
svæðum í heiminum og engin vörn
hefur enn fundist gegn, er Lassa
hitasótt einmitt í þeim hópi. Þess-
arar hitasóttar varð fyrst vart í
borginni Lassa í Nígeríu 1969 og
hefur hún síðan orðið að farsótt og
þess á milli landlæg á mjög af-
mörkuðum svæðum í Vestur-Afr-
íkuríkjunum Gíneu, Líberíu og
Sierra Leone, þar sem grimmileg
innanlandsstríð hafa eyðilagt alla
innviði og þarmeð læknisþjónustu.
Þegar UNAMSIL hafði sent á
þetta tiltekna svæði í austurhluta
landsins friðargæsluliða frá Sam-
bíu, sem tóku að hrynja niður, var
brugðist við. Gerður var út leið-
angur frá aðalstöðvunum, m.a. með
yfirlækni friðargæsluliðsins og
ýmsum sérfræðingum. Undirrituð
var þá með í för, sem varð tilefni
greinar um þennan skæða sjúk-
dóm. Var fyrst flogið í þyrlu til að
sækja dr. Conteh í bæinn Kenema
og síðan áfram á þetta sýkta svæði
og í herbúðir Sambíumannanna.
Niðurstaðan varð sú að snarlega
yrði að byggja til bráðabirgða ný
og hreinlegri eldhús og í framhaldi
að flytja allar herbúðirnar á nýjan
stað. Jafna yfir þessar, enda vilja
Sameinuðu þjóðirnar vitanlega
tryggja að friðargæsluliðar þeirra
snúi ekki heim í líkkistu. Í þessu
tilfelli var ekki einu sinni hægt að
senda líkin heim.
Sambíumenn tóku slíkum ráð-
stöfunum fálega, allt of dýrt yrði
að flytja herbúðirnar. Þannig stóðu
málin þegar við flugum áfram með
afríska vísindamanninn til friðar-
gæsluliðs Pakistana sem rekur
góðan spítala og þurfti ráðgjöf frá
dr. Conteh. En þegar mannaskipti
urðu í Sambíuliðinu í júnímánuði
þvinguðu aðalstöðvar UNAMSIL í
Freetown þá til að leggja niður
búðirnar og reiddu fram fé til þess.
Svo að búið er að flytja friðar-
gæsluliðana á öruggari stað og
eyða og jafna yfir fyrri búðir
þeirra.
Jafnframt var Sameinuðu þjóða-
liðið reiðubúið til að veita dr. Cont-
eh allt það lið í rannsóknum og
baráttunni gegn Lassa-sóttinni
sem hann hafði skort svo sárlega
sl. 10 ár meðan þar geisaði stríð.
Var framkvæmdastjóranum Stein-
ari Berg Björnssyni og hans fólki
sérstaklega þökkuð hjálpin eftir
andlát hans.
Óbætanlegt tjón
Nú er dr. Conteh fallinn frá og
tjónið óbætanlegt fyrir mannkynið
og alþjóðasamfélagið.
Með vaxandi samgöngum og ör-
um samskiptum í heiminum í dag
blunda nokkrir smitandi og bráð-
drepandi veirusjúkdómar á af-
mörkuðum stöðum, sem gætu feng-
ið vængi hvenær sem er ef á verður
ekki að ósi stemmd. Þess vegna er
misskilningur að alþjóðasamfélagið
sé bara að aðstoða vanmáttug, fá-
tæk lönd í Afríku. Það er að forða
mannkyninu frá vá. Heimurinn
stendur sameiginlega andspænis
hættunni af útbreiðslu slíkra sjúk-
dóma frá löndum sem hrjáð eru af
langvarandi stríðsátökum, svo sem
dæmin sýna.
Vísindamaður fell-
ur fyrir blundandi
bráðasjúkdómi
Morgunblaðið/Elín Pálmadóttir
Dr. Koka , yfirlæknir friðargæsluliðsins og dr. Conteh, sérfræðingur um Lassa-hitasótt, sem varð honum að bana.
Vísindamaðurinn dr. Conteh, sérfræðingur í Sierra
Leone í hinni skæðu Lassa-hitasótt, sem gæti orðið
að heimsfarsótt, er fallinn í baráttunni við þennan
illvíga sjúkdóm. Einmitt nú þegar friðargæslulið
Sameinuðu þjóðanna var komið honum til stuðn-
ings eftir nær áratugar aðgerðaleysi vegna skelfi-
legrar styrjaldar, eins og fram kom í grein sem Elín
Pálmadóttir skrifaði í júní síðastliðnum.
epa@mbl.is
HØJSKOLEN MIDT I NORDEN
Kurser på 5-9 måneder:
• Sang og scenetræning • Teater
• Nordisk rejse- og kulturlinje • Journalistik
Halve fripladser tilbydes to fra Island
Ansøg inden 25. maj
NORDISKA FOLKHÖGSKOLAN
BOX 683, S-44218 KUNGÄLV. SVERIGE
TEL +4630320 62 00
WWW.NORDISKA.FHSK.SE
Gildir: Pantanir má einnig setja á: holar@simnet.is eða
hringja þær inn í síma 587 2619. Bókaútgáfan Hólar.
Nafn/nöfn (sem eiga að koma saman á heillaóskaskránni)
Heimilisfang/póstnúmer/staður:
Kennitala greiðanda:
Vinsamlegast merkið X þar sem við á: Ég óska eftir að greiða bókina,
kr. 7.500 út í hönd með reiðufé/ávísun er fylgir hér með.
með greiðsluseðli sem sendur verður af Íslandsbanka.
með greiðslukorti.
Kortnúmer (16 stafir):
Iðnskólinn í Reykjavík 100 ára
Iðnskólinn í Reykjavík var stofnaður haustið 1904 og er því aldagamall um
þessar mundir. Af því tilefni hafa skólayfirvöld ráðist í það stórvirki að skrá
sögu skólans á bók og kemur hún út í október næstkomandi. Ritstjóri hennar
er Jón Ólafur Ísberg, sagnfræðingur, en Bókaútgáfan Hólar gefur út. Í bókinni
verður m.a. fjallað um tildrögin að stofnun skólans, árin hans við Tjörnina í
því glæsilega stórhýsi sem Iðnaðarmannafélagið í Reykjavík reisti yfir hann,
flutning skólans á Skólavörðuholtið og það lagaumhverfi sem hann byggir
starfsemi sína á og þróun þess í gegnum tíðina. Bókin verður í stóru broti og
ríkulega skreytt myndum úr starfi skólans og sögu iðnaðar í landinu. Heilla-
óskaskrá verður í bókinni þar sem öllum velunnurum Iðnskólans, nemendum,
starfsfólki og áhugamönnum um iðnað á Íslandi verður boðið að skrá nafn
sitt og eignast um leið þetta glæsilega rit. Verð þess verður kr. 8.900, en þeir
sem vilja óska skólanum til hamingju með áfangann og skrá nafn sitt á
heillaóskaskrána fá bókina á kr. 7.500, sem er áskriftarverð og greiðist fyrir-
fram og er sendingargjald innifalið í því.
Áskrift að afmælisriti Iðnskólans í Reykjavík