Morgunblaðið - 09.05.2004, Síða 59
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. MAÍ 2004 59
Kynntu þér tilboð okkar
á bílaleigubílum
Pantaðu AVIS bílinn áður en þú leggur af stað
Það borgar sig – Hringdu til AVIS í síma 591-4000
Við erum í 170 löndum
5000 stöðum
T.d. Reykjavík, London, Kaupmannahöfn,
Frankfurt, Milano, Alicante ...
AVIS Knarrarvogi 2 – 104 Reykjavík – Sími 591 4000 – Fax 591 4040 – Netfang avis@avis.is – Heimasíða www.avis.is
Minnum á Visa afsláttinn
Jens Ingólfsson, rekstrarhagfræðingur,
sölustjóri fyrirtækja,
Salómon Jónsson,
löggiltur fasteignasali.
Fyrirtæki til sölu
Upplýsingar um fyrirtæki ekki veittar í síma
Við sölu fyrirtækja er gagnkvæmur trúnaður mikilvægur og við gefum því
ekki upplýsingar um fyrirtæki í síma. Við viljum fá kaupendur til okkar og
kynnast þeim, en með því móti getum við einnig þjónað þeim betur.
Vinsamlega hringið áður og pantið tíma. Síminn er 533 4300, en einnig er
hægt að nota tölvupóstinn: jens@husid.is .
Eftirfarandi eru stuttar lýsingar á nokkrum fyrirtækjum sem eru fáanleg, en
við auglýsum ekki nema brot af þeim fyrirtækjum sem höfum til sölu:
Þekkt sportvöruverslun í miðbænum. Gott merki.
Vélaverkstæði á Akranesi með fjölbreytta þjónustu.
Lítil líkamsræktarstöð. Búin fullkomnustu tækjum. Auðveld kaup.
Útflutningsfyrirtæki með íslenskar afurðir. Rekstrarhagnaður 30 m. kr. á
ári. Hentugt til sameiningar við svipað fyrirtæki.
Stór og mjög vinsæll bar í úthverfi. Vinsæll sport og helgarstaður.
Dagsöluturn í verslunarmiðstöð.
Íþróttavöruverslun með þekkt merki og góð viðskiptasambönd. Sami
eigandi í 20 ár. Hagstætt verð.
Þekkt vefnaðarvöruverslun. Ársvelta 60 m. kr. Góð framlegð. Tilvalið fyr-
ir „saumakonur“ með góðar hugmyndir.
Maraþon í Kringlunni. Sportvöruverslun með þekkt merki og mikla sölu.
Rekstrarhagnaður 11 m. kr. á ári.
Þekkt barnavöruverslun. Góð umboð.
Vörubílaverkstæði með mikil föst viðskipti. 4-5 starfsmenn. Vel tækjum
búið, í eigin húsnæði á góðum stað.
Fasteignasala í fullum rekstri. Gott húsnæði og allur búnaður. Þrír sölu-
menn og stækkunarmöguleikar.
Vitum af mörgum sérverslunum, heildverslunum og iðnfyrirtækjum í
ýmsum greinum fyrir rétta kaupendur. Ársvelta 100-1000 m. kr.
Tvær litlar tískuverslanir í Kringlunni.
Þekkt lítið framleiðslufyrirtæki í matvælageiranum. Hentugt til samein-
ingar.
Matvöruverslun, bensínsala og veitingarekstur í Búðardal. Eigið hús-
næði. Ársvelta er nú tæpar 200 m. kr. og hefur farið vaxandi með hverju
ári. Góður hagnaður um margra ára skeið og mjög heilbrigður rekstur.
Sérstaklega hentugt fyrir stóra fjölskyldu eða tvenn hjón.
Flottur sportbar í góðu hverfi með nýjum innréttingum og tækjum, m.a.
þrjú breiðtjöld. Velta 2-3 m. kr. á mánuði. Tilvalið fyrir samhent hjón.
Söluturninn Hagamel. Auðveld kaup.
Álgluggaverksmiðja með miklum tækjakosti. Tilvalið til sameiningar.
Meðeign kemur til greina.
Arðbært þjónustufyrirtæki í byggingariðnaði með góða verkefnastöðu.
Ársvelta 60 m. kr. Tilvalið til sameiningar við fyrirtæki tengd bygg-
ingariðnaði.
Rekstrarleiga með kauprétti. Stórt samkomuhús í nágrenni Reykjavíkur
með góðri aðstöðu fyrir dansleiki, veislur og fundi. Ársvelta 30 m. kr.
Gott tækifæri fyrir fagmenn.
Lítið landflutningafyrirtæki með föst viðskipti um fiskflutninga. Heppileg
viðbót við annað álíka.
Gagnlegur fróðleikur á heimasíðu
fyrirtækjadeildar: www.husid.is .
Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsin v/Faxafen),
sími 533 4300, GSM 820 8658.
Það er best að játa þaðstrax. Ég hef ekki hug-mynd um það hver fannupp mæðradaginn. Égveit ekki hvort þetta er
gamall merkisdagur með djúpar
sögulegar og jafnvel trúarlegar ræt-
ur, eða bara eitthvað sem heims-
samband blómasala ákvað að helga
krafta sína eftir að hafa gersamlega
slegið í gegn með konudeginum. Um
hitt er ég ekki í vafa, að mæður eru
vel að því komnar að þeim sé fund-
inn virðulegur staður í dagatölum
heimsins. En eins og ég mun út-
skýra hér á eftir, eru í raun 365
mæðradagar á
hverju ári.
Af eðlilegum
ástæðum þekki ég
ekki móðurhlut-
verkið nema sem
afkvæmi og með-
höfundur og það
setur skilningi mínum og upplifun
vissulega ákveðnar skorður, en ég er
á því að þetta hlutverk sé stór-
merkilegt. – Móðir allra hlutverka,
mætti segja. Það er ekki bara vegna
þess hve mikils það krefst í lík-
amlegum skilningi, heldur einnig af
því að það tekur alla ævi að sinna
því.
Já, það er auðvitað rétt að pabbar
eru líka líffræðilega pabbar fyrir
lífstíð, en öfugt við mömmurnar,
þykir eðlilegt og sjálfsagt að þeir
dragi smám saman niður í einatt
fullstórskorinni túlkun sinni og taki
jafnvel að sér afkvæmishlutverk er
frá líður.
Ég held að enda þótt börnin flytji
að heiman, ungarnir fljúgi úr hreiðr-
inu, þá sé það þannig með mæður að
þær finni samt áfram fyrir þeim,
eins og fólk sem missir útlimi getur
enn klæjað í þá og kennt til í þeim.
Það er heldur ekkert undarlegt. Hér
er jú um að ræða lífverur sem í upp-
hafi voru hreinlega hluti af líkama
þeirra.
Þessi þaulsætni eða þolinmæði
sem virðist tilheyra móðurhlutverk-
inu felur auðvitað í sér bæði jákvæða
og neikvæða þætti. Umhyggja og af-
skiptasemi eru tvær hliðar á sömu
mynt. En allir sem eiga börn sem
einhverntíma hefur þurft að passa,
hljóta þó að taka undir það að rétt
eins og börn eru mikilvægari for-
eldrum en foreldrar börnum, eru
ömmur mikilvægari foreldrum, en
þær eru börnum.
Fyrir mér eru fæðingardagar
barna hinir einu og sönnu mæðra-
dagar. Fæðingardagur barns mark-
ar auðvitað ekki upphaf móðurhlut-
verksins, en hann er þó afdrifa-
ríkasti vendipunkturinn í mótun
þess.
Það er því í raun hálfeinkennilegt
að í hvert sinn sem við eigum afmæli
skuli hlaðið á okkur gjöfum, rétt eins
og við höfum unnið eitthvert afrek
með því að vera til.
Eina manneskjan sem vann raun-
verulegt afrek á þeim degi sem verið
er að minnast á hverju einasta af-
mæli hverrar einustu manneskju er
hvergi nefnd. Hún er á þönum um
allt til að sjá til þess að allt sé eins og
það á að vera. Hún var í vinnunni
fram eftir öllu kvöldi í gær, til að
geta komið snemma heim í dag til að
undirbúa veisluna okkur til heiðurs.
Við skulum fyrir alla muni minn-
ast mæðra okkar í dag, því á hinum
raunverulegu merkisdögum þeirra
höfum við nefnilega gleymt þeim al-
gerlega í öll þessi ár. Og næst þegar
við eða börnin okkar eiga afmæli
skulum við staldra við andartak og
spyrja okkur hvort við séum að
gleyma nokkru öðru en kertunum á
kökuna, eða ísnum á eftir, þegar
dyrabjallan hringir.
Til hamingju með daginn, mæður
og takk fyrir okkur.
Allir dagar eru mæðradagar
HUGSAÐ
UPPHÁTT
Eftir Svein-
björn I.
Baldvinsson
NÝVERIÐ var útivist-
ardagur hjá Gagn-
fræðaskólanum í
Ólafsfirði. Var hann
nýttur til að halda upp
á Dag umhverfisins,
sem var á vegum um-
hverfisnefndar bæjar-
ins. Þá fóru nemendur
í 8., 9. og 10. bekk
(ásamt kennurum) í
nokkrum hópum um
allan bæ til að tína
rusl.
Snyrtilegt
á degi um-
hverfisins
Ólafsfirði. Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Helgi Jónsson