Morgunblaðið - 11.05.2004, Blaðsíða 49
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ 2004 49
„ÉG er því mjög glöð yfir að við
unnum í dag því ég er ekki viss um
að við hefðum dugað í einn leik til
viðbótar,“ sagði Birgit Engl, sem
hefur átt góðan leik fyrir ÍBV að
undanförnu. „Ég held að mestu
skipti hve okkur langaði mikið til
að vinna og vorum tilbúnar til þess
en við spiluðum líka mjög góða
vörn. Það skipti líka máli að við
höfðum uppá einn leik að hlaupa og
máttum þess vegna tapa svo að
pressan var öll á Valsliðinu og það
kom okkur til góða. Mér fannst
þetta erfiðara en ég átti von á og
sigurinn því sætur, eflaust sá besti
á mínum ferli. Við þurftum að spila
mjög marga leiki í lok leiktíðar,
jafnvel of marga því við höfðum
varla tíma til að skipuleggja okkur
– það var bara stöðugt verið að
spila,“ sagði Birgit.
Sigur vannst á vörninni
„Ég er svo þreytt en líka mjög
ánægð með sigurinn,“ sagði Sylvia
Strass leikstjórnandi ÍBV og var að
niðurlotum komin. „Þetta var erf-
iður leikur en fyrst við unnum
skiptir það engu máli. Ég held að
sigur hafi að mestu oltið á hve vörn
okkar var sterk í þessum leik en
mestu skipti að við skoruðum fleiri
mörk.“ Sylvia hefur átti mjög gott
tímabil með Eyjaliðinu og oftast
stjórnað leik liðsins af öryggi. „Ég
vonaðist auðvitað eftir að vinna ein-
hverjar titla þegar ég kom til Ís-
lands og frábært að það skuli enda
svona.“
Veit ekki hvort við hefðum
dugað einn leik í viðbót
TRYGGVI Guðmundsson tryggði
Örgryte jafntefli gegn Örebro í
Gautaborg í gærkvöldi í sænsku 1.
deildarkeppninni í knattspyrnu, 2:2.
Tryggvi skoraði jöfnunarmarkið
þegar nokkrar sekúndur voru til
leiksloka, en þess má geta að gest-
irnir skoruðu tvö fyrstu mörk leiks-
ins. Jóhann B. Guðmundsson lék
einnig allan leikinn með Örgryte.
PÉTUR Hafliði Marteinsson og
samherjar hans hjá Hammarby
máttu þola tap fyrir Trelleborg á
heimavelli, 1:0. 11.612 áhorfendur
fóru óhressir heim, en þess má geta
að leikmenn Hammarby hafa átt í
erfiðleikum með að skora – hafa að-
eins sett knöttinn fimm sinnum í net-
ið hjá andstæðingum sínum í sex
leikjum í 1. deildarkeppninni.
SKOSKI kylfingurinn Colin
Montgomerie gæti þurft að bíta í það
súra epli að fá ekki að taka þátt á
Opna breska meistaramótinu í golfi
þar sem hann er sem stendur í 49.
sæti á heimslistanum í golfi, en að-
eins 50 efstu sætin fá boð um að taka
þátt risamótinu. Það sama gildir um
Opna bandaríska meistaramótið sem
er eitt af fjórum risamótum ársins.
MONTGOMERIE segir við BBC
að honum sé í raun sama um stöðu
sína á heimslistanum, en eiginkona
hans hefur flutt frá honum og sótt
um lögskilnað. „Ég þarf að hugsa um
fleiri hluti en golfið þessa dagana og
börnin mín munu þá fá meiri tíma
með mér,“ sagði Montgomerie er
hann var inntur eftir viðbrögðum um
stöðu sína.
JOEY Sindear kom sá og sigraði á
PGA-mótinu í golfi sem fram fór á
Wachovia-vellinum í Bandaríkjun-
um. Þetta er í fyrsta sinn í 14 ár sem
hann sigrar á atvinnumannamóti en
hinn 47 ára gamli kylfingur þurfti að
fara í gegnum forkeppni til þess að
öðlast keppnisrétt á mótinu. Sindear
sigraði á annarri holu í bráðabana
gegn Arron Oberholser en þeir voru
báðir á 11 höggum undir pari að
loknum 72 holum. Tiger Woods varð
þriðji á 10 undir pari líkt og Carlos
Franco.
SINDEAR fékk rúmar 74 millj. kr.
fyrir sigurinn en Oberholser fékk
um 45 millj. kr. Woods náði inn um
24 millj. kr. í sinn hlut líkt og Franco.
Phil Mickelson varð fimmti, á sama
skori og Steve Flesch eða 9 undir
pari og er óhætt að segja að um
sterkt mót hafi verið um að ræða.
OLIVER Kahn, fyrirliði Bayern
München og þýska landsliðsins, sem
hefur gert nokkuð af mistökum í
markinu að undanförnu, sagði í gær
að hann væri tilbúinn að afsala sér
fyrirliðastöðunni, til að geta einbeitt
sér alfarið að sínu starfi í markinu.
Kahn, sem er einn besti markvörður
heims, sagðist ætla að ræða við for-
ráðamenn Bayern á næstu dögum.
FÓLK
Byrjunin lofaði góðu fyrir heima-menn þar sem stjarna liðsins í
fyrstu þremur leikjunum, Berglind
Hansdóttir mark-
vörður, varði tvö
fyrstu skot ÍBV, sem
komu bæði frá Öllu
Gokorian. Valsmenn
voru vongóðir á áhorfendabekkjun-
um um að „Begga“ yrði í ham.
En stuðningsmönnum Vals varð
ekki að ósk sinni í fyrri hálfleik þar
sem varnarleikur liðsins var ekki til
þess að aðstoða markvörðinn, sem
náði aðeins að verja eitt skot til við-
bótar í fyrri hálfleik.
Varnarleikur ÍBV var mjög þéttur
og skynsamur frá upphafi til enda.
Bæði liðin léku 6/0 vörn og í hjarta
ÍBV-varnarinnar voru Alla Gokorian
og Birgit Engl allt í öllu.
Í bakvarðastöðunum voru Anna
Yakova og Sylvia Strass mjög hreyf-
anlegar, og skyttur Vals komust lítt
áleiðis. Valur skoraði 5 mörk úr lang-
skotum og þar af skoraði Gerður
Beta Jóhannsdóttir fjögur þeirra
sem skytta vinstra megin á vellinum.
Valur náði fínni rispu í upphafi
leiks og náði tveggja marka forskoti,
6:4, en ÍBV svaraði með þremur
mörkum í röð, staðan 7:6.
ÍBV leit aldrei um öxl
Eftir þennan kafla litu Íslands-
meistararnir aldrei um öxl.
Valur hélt í við ÍBV allt þar til 6
mínútur lifðu af fyrri hálfleik og
munurinn var aðeins eitt mark,
12:11. Gestirnir úr Eyjum skoruðu
hinsvegar fjögur síðustu mörk fyrri
hálfleiks, 16:11.
Valur náði ekki að hefja síðari
hálfleikinn af meiri krafti en áður.
Vörn ÍBV var einfaldlega of þétt, gaf
fá tækifæri á hraðaupphlaupum og
þegar leikmenn Vals reyndu sig með
skotum utan af velli var varnarmúr
ÍBV oftar en ekki reiðubúinn og bak
við vegginn var Julia Gantimorova
markvörður ÍBV á fínu róli, en hún
varði alls 14 skot í leiknum.
Fylgdarlið ÍBV var fjölmennt á
áhorfendabekkjum Hlíðarenda í gær
og fóru að syngja sigursöngva er
stundarfjórðungur lifði af leiknum.
Á hinum enda áhorfendabekkjanna
eygðu þeir rauðklæddu enn von er
ÍBV missti mann útaf í stöðunni
20:16. Berglind markvörður Vals
hrökk í gang í síðari hálfleik og
fengu leikmenn Vals tvö gullin tæki-
færi til þess að minnka muninn í tvö
mörk. Í fyrra skiptið stöngin út, og
skömmu síðar varði Gantimorova
eftir hraðaupphlaup Vals. ÍBV bætti
við tveimur mörkum og staðan var
26:20 er 7 mínútur lifðu af leiknum.
Á lokakaflanum reyndi Valur að
keyra upp hraðann en það gekk nú
ekki vel. Sendingar leikmanna liðs-
ins rötuðu fæstar rétta leið og á loka-
kaflanum töpuðu leikmenn Vals
knettinum 11 sinnum frá sér.
ÍBV hélt uppteknum hætti og
landaði Íslandsmeistaratitlinum
annað árið í röð. Lokatölur 30:26.
Eftirminnileg rimma
Rimma liðanna verður lengi í
minnum höfð, sérstaklega þar sem
að flestir spáðu ÍBV auðveldum sigri
í úrslitum. Valskonur voru á annarri
skoðun og komu gríðarlega á óvart á
útivelli, tvívegis, þar sem að úrslit
réðust ekki fyrr en í framlengingu.
Þjálfarar beggja liða þurftu að
kafa langt ofaní fræðiskruddur sínar
á milli leikja til þess að finna svör við
útspili andstæðinganna. Guðríður
Guðjónsdóttir þjálfari Vals notaði
helstu kosti ÍBV í vetur, hraðaupp-
hlaupin, sem vopn í fyrstu leikjunum
með frábærum árangri. En Aðal-
steinn Eyjólfsson svaraði með því að
breyta um varnaraðferð í þriðja og
fjórða leiknum, þar sem varnarmenn
ÍBV gengu langt út í skyttur Vals og
brutu á þeim við hvert tækifæri.
Eitthvað sem Valur átti að kannast
vel við, þar sem liðið hafði beitt sömu
varnaraðferð gegn ÍBV.
Mæddi mikið á Engl
Í liði Íslandsmeistaranna eru
margir gríðarlega snjallir leikmenn.
Birgit Engl er líklega sá leikmaður
sem mest mæðir á. Brimbrjótur í
vörn, ógnandi í hraðaupphlaupum og
í stöðugum slagsmálum um stöðu á
línunni í sókn. Sylvia Strass sýndi
hvað í henni í býr þegar mest á
reyndi. Ekki sú hávaxnasta en gríð-
arlega líkamlega vel á sig komin og
stóð vörnina af festu. Anna Yakova
og Alla Gokorian fundu leiðir til þess
að skora mörk með ýmsum hætti, en
verða seint taldar fljótar í förum.
Hornamennirnir Elísa Sigurðar-
dóttir og Guðbjörg Guðmannsdóttir
nýttu færi sín vel auk þess sem að
Gantimorova varði vel.
Glæsilegur árangur
Árangur liðsins á leiktíðinni er
glæsilegur, Íslands- og bikarmeist-
aratitill auk deildarmeistaratitils. Og
ekki má gleyma undanúrslitasæti í
áskorendakeppni EHF.
Valur hafði trú á eigin getu allt frá
upphafi en greinileg þreytumerki
voru hjá lykilmönnum liðsins í gær.
Berglind náði sér ekki á strik í mark-
inu í fyrri hálfleik, liðið nýtti hraða-
upphlaup sín illa og að auki voru
tæknileg mistök liðinu að falli.
Morgunblaðið/ÞÖK
ÍBV varði Íslandsmeistaratitilinn og vann alla þá titla sem í boði voru á leiktíðinni. Leikmenn
liðsins fögnuðu gríðarlega á Hlíðarenda og hafa eflaust fagnað enn meira er heim var komið.
Eyjastúlkur fögn-
uðu á Hlíðarenda
ANNAÐ árið í röð fögnuðu leikmenn og stuðningsmenn kvennaliðs
ÍBV Íslandsmeistaratitlinum í 1. deild kvenna í handknattleik, RE/
MAX-deild. ÍBV sýndi mátt sinn í fjórðu rimmu sinni gegn Val og
gerði það sem gera þurfti til þess að landa sigrinum sem skipti öllu
máli, lokatölur 30:26, og vann þar með einvígið 3:1. Eyjaliðið land-
aði öllum titlum sem í boði voru á leiktíðinni á Íslandi en liðið varð
einnig deildar- og bikarmeistari. Að auki lét liðið mikið að sér kveða
í áskorendakeppi Evrópu þar sem liðið féll úr keppni í undanúrslit-
um gegn þýska liðinu Nürnberg.
Eftir
Sigurð Elvar
Þórólfsson
STÚLKURNAR í ÍBV hafa orðið Ís-
landsmeistarar í handknattleik tvö
ár í röð og er þetta þriðji meist-
aratitill ÍBV á fimm árum. ÍBV lagði
Gróttu/KR að velli í úrslitarimmu
2000 og lék Alla Gokorian, sem er
lykilmaður Eyjaliðsins, þá með
Gróttu/KR, eins og Ágústa Edda
Björnsdóttir, leikstjórnandi Vals.
Eyjastúlkur fögnuðu þá meist-
aratitli í Eyjum, 3:0. Þær fögnuðu
einnig í Eyjum í fyrra, 2003 – lögðu
Hauka 3:0. Nú, 2004, fögnuðu þær
að Hlíðarenda og fóru með Íslands-
bikarinn til Eyja – eftir að hafa lagt
Val að velli, 3.1. ÍBV tapaði úr-
slitarimmu við Hauka 2001, 3:0.
2002 urðu Haukar meistarar, lögðu
Stjörnuna, 3:2.
Tvö ár í röð
hjá ÍBV