Morgunblaðið - 21.05.2004, Blaðsíða 12
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
12 FÖSTUDAGUR 21. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FISKKAUPENDUR á meginlandi
Evrópu geta nú nálgast ferskan ís-
lenskan fisk með aðstoð þjónustu-
fyrirtækisins Oojee [Údjí]. Karl Jó-
hannesson, framkvæmdastjóri og
stofnandi Oojee, segir mikla eft-
irspurn eftir íslenskum ferskfiski í
Evrópu og þar séu markaðir sem
eru tilbúnir til að greiða hátt verð.
Karl hefur nýverið stofnað Ooj-
ee og rekur það frá Boulogne í
Frakklandi. Fyrirtækið þjónustar
ferskfiskkaupendur, einkum í
Frakklandi en einnig á Spáni og í
Þýskalandi. „Kaupendurnir eru
bæði fiskiheildsalar og fiskverk-
endur, smáir og stórir. Fram til
þessa hafa þeir keypt ferskan fisk
á uppboðsmarkaði heima fyrir en
framboð á mörkuðum í Frakk-
landi og víðar hefur minnkað mik-
ið að undanförnu. Þessir aðilar
hafa því verið að leita að ferskum
fiski. Ég hef oft verið spurður að
því hvernig þeir geti nálgast ís-
lenskan fisk og sumir hafa slæma
reynslu af því að leita út fyrir
landssteinana eftir fiski. Til dæmis
tala þessir aðilar yfirleit litla
ensku og það veldur þeim oft
vandræðum.“
Oojee er þannig fyrst og síðast
þjónustufyrirtæki að sögn Karls.
„Ég mun bjóða kaupendum að
annast innkaup á ferskum fiski frá
Íslandi, Færeyjum og Noregi. Þeg-
ar kaupandi í Frakklandi ákveður
þannig að kaupa fisk frá Íslandi
fer pöntunin í gegnum Oojee sem
annast kaupin. Kaupendurnir eru
með bankaábyrgð hjá Oojee sem
einnig annast innflutning, flutn-
inga og tollamál.“
Karl segir að franskir kaup-
endur séu hreint ekki ókunnugir
íslenskum fiski en hafi fram til
þessa fengið hann í gegnum þriðja
aðila, til dæmis í Skotlandi og Dan-
mörku. „Þeir vilja losna við þessa
milliliði og kaupa fiskinn í beinum
viðskiptum. Oojee mun ekki kaupa
sjálft fisk frá Íslandi og selja með
hagnaði, heldur aðeins kaupa fisk
sem þegar er búið að panta en
taka hóflegt gjald fyrir. Þessi
kostnaður liggur alltaf fyrir áður
en kaupandinn leggur inn pöntun.
Þannig tel ég að skapa megi traust
og einnig koma á opnum sam-
skiptum milli kaupenda og fram-
leiðenda.
Markaður fyrir heilan fisk
Í raun erum við að reyna að búa
til sem beinustu og greiðustu leið
fyrir ferskan fisk inn á markaðinn
á meginlandi Evrópu. Þetta er
gríðarstór markaður og það gera
sér til dæmis fáir grein fyrir því að
þarna er góður markaður fyrir
heilan fisk. Þetta er einkum veit-
ingahúsa- og hótelamarkaðurinn,
sem vill fá fiskinn heilann inn í eld-
húsið þar sem hann er síðan flak-
aður og skorinn eftir þörfum.
Þessi markaður borgar gott verð
en Íslendingar hafa fram til þessa
ekki getað sinnt honum sem
skyldi, því það þarf að þjónusta
hann með öðrum hætti. Ég tel mig
hinsvegar vera í góðu sambandi
við þennan tiltekna kaupendahóp
og get upplýst hann um verð og
framboð og tekið við pöntunum.
Framleiðandinn á Íslandi hefur
þannig möguleika á að aðgreina
sína vöru frá öðrum framleið-
endum og fá greitt fyrir hana í
samræmi við það.“
Samstarf við Íslandsmarkað
Oojee hefur tekið upp samstarf
við Íslandsmarkað og mun þjón-
usta þá erlendu aðila sem kaupa
fisk í gegnum uppboð á Íslandi.
Uppboðin fara alfarið fram á Net-
inu og segir Karl að erlendum
kaupendum sé þannig ekkert að
vanbúnaði að kaupa fisk á Íslandi.
„Þeir geta bæði tengst mark-
aðnum sjálfir og keypt fisk í nafni
Oojee eða lagt inn pöntun hjá okk-
ur og við önnumst kaupin fyrir
þá,“ segir Karl.
Greiðir leið fyrir
ferska fiskinn
Þjónustufyrirtækið Oojee aðstoðar evr-
ópska fiskkaupendur að nálgast íslensk-
an ferskfisk. Helgi Mar Árnason ræddi
við stofnandann og framkvæmdastjór-
ann, Karl Jóhannesson.
Morgunblaðið/Helgi Mar
Allt á Netinu Oojee og Íslandsmarkaður kynntu samstarf sitt á evr-
ópsku sjávarútvegssýningunni í Brussel fyrir skömmu og var gestum
m.a. sýnt hvernig fiskuppboð fer fram á Íslandi.
3X-STÁL á Ísafirði afhenti nýverið loka-
áfanga í snyrtilínulausn til fiskvinnslunnar
Íslandssögu á Suðureyri.
Snyrtilínan var gangsett hjá Íslandssögu
fyrir rúmu ári hjá Íslandssögu. Fyrst um
sinn vigtaði línan inn á hvert stæði af þeim
24 stæðum sem eru í línunni og í sérhönn-
uðu upplýsingakerfi var hægt að fylgjast
með afköstum á hverju stæði.
Síðasti hluti þessa kerfis var síðan afhent-
ur á þriðjudag þar sem frávigtun var bætt
við kerfið og geta forsvarsmenn Íslandssögu
nú fylgst með innvigtun, frávigtun og nýt-
ingarupplýsingum fyrir hvert stæði á lín-
unni.
Þessi snyrtilína, ásamt upplýsingakerfinu
er afrakstur um tveggja ára þróunarvinnu
hjá 3X-Stál. Fiskvinnslan Íslandssaga hefur
gegnt lykilhlutverki við þróun búnaðarins
og hefur stutt við ferlið allt frá upphafi. Í
fréttatilkynningu frá 3X-Stáli kemur fram
að hin mikla reynsla og þekking sem liggur
hjá stjórnendum Íslandssögu hafi verið gríð-
arlega mikilvæg við þróun búnaðarins og
lykillinn í vel heppnaðri lausn.
3X-Stál fagnar tíu ára afmæli í ár en fyr-
irtækið hefur verið í örum vexti frá upphafi
og alltaf skilað hagnaði. Atvinnumálanefnd
Ísafjarðarbæjar útnefndi fyrirtækið frum-
kvöðul ársins 2003 fyrir skemmstu. Hjá 3X-
Stáli starfa á bilinu 25–30 manns og eru að-
alstöðvar þess á Ísafirði en dótturfyrirtæki
er starfrækt í St. Johns í Kanada. Auk þess
á 3X-Stál hlut í Rennex á Ísafirði sem er sér-
hæft renniverkstæði og framleiðir íhluti fyr-
ir 3X-Stál og fleiri fyrirtæki víða um land.
3X-Stál af-
hendir nýja
snyrtilínu
ÚR VERINU
● FLEIRI konur eru í æðstu stjórn-
unarstöðum hjá þeim fyrirtækjum,
sem vaxa hraðast, en hjá öðrum fyr-
irtækjum, samkvæmt nýrri könnun
sem greint er frá í Dagens Nærings-
liv. Svíþjóð hefur hæst hlutfall vaxt-
arfyrirtækja af 26 ríkjum sem könn-
unin náði til.
Endurskoðunar- og ráðgjafarfyr-
irtækið Grant Thornton gerði könn-
unina, sem kallast International bus-
iness owners survey. Niðurstöðurnar
sýna að hjá nærri helmingi fyrirtækj-
anna sem vaxa hraðast, eða 46%,
eru fleiri en tvær konur meðal æðstu
stjórnenda. Það á hins vegar við um
34% annarra fyrirtækja.
Meiri vöxtur hjá
kvenstjórnendum
sjóðirnir. Ljóst má vera að það er
óviðunandi að þeim séu gerðar væg-
ari kröfur hvað þetta varðar en öðr-
um slíkum sjóðum. Í dag halda fram-
kvæmdastjórar lífeyrissjóða utan
um rekstur og eignastýringu annars
vegar og vörslu, bókhald og skýrslu-
gjöf til stjórnar og Fjármálaeftirlits
hins vegar. Það liggur fyrir að þeir,
og stjórnir slíkra sjóða, eru settir í
stórkostlega áhættu þar sem ekki er
skýr aðgreining á milli rekstrar og
vörslu, enda geta hæglega orðið
hagsmunaárekstrar þarna á milli.“
Í bréfi til efnahags- og viðskipta-
nefndar í marz er þetta sjónarmið
ítrekað og segir þar „að það verði að
teljast í hæsta máta óeðlilegt að líf-
eyrissjóðum séu ekki jafn stífar kröf-
ur búnar um aðgreiningu starfssviða
og verðbréfa- og fjárfestingarsjóð-
um. Nýleg brotamál sem upp hafa
komið undirstrika enn frekar mik-
ilvægi þess.“
SAMTÖK banka og verðbréfafyrir-
tækja (SBV) hafa í bréfum til fjár-
málaráðherra og efnahags- og við-
skiptanefndar Alþingis gagnrýnt
ónógan aðskilnað rekstrar og vörzlu
fjármuna hjá lífeyrissjóðunum. Eins
og greint var frá í Viðskiptablaði
Morgunblaðsins í gær gagnrýna
SBV jafnframt lánveitingar lífeyris-
sjóðanna til sjóðfélaga og telja þær
skerða samkeppnisstöðu fjármála-
fyrirtækja.
Í bréfi SBV, sem sent var fjár-
málaráðherra í desember, er vísað til
nýrra laga um verðbréfasjóði og
fjárfestingarsjóði. „Ein meginbreyt-
ingin með þeim var að skylda slíka
sjóði til að aðskilja rekstur og vörslu
og ber þeim nú að halda utan um
reksturinn í sérstöku rekstrarfélagi
sem veitt er starfsleyfi af Fjármála-
eftirliti,“ segir í bréfinu.
„Stærstu sjóðir landsins um sam-
eiginlega fjárfestingu eru lífeyris-
Gagnrýni SBV á starfsemi lífeyrissjóðanna
Segja aðskilnað rekstrar
og vörzlu ónógan
JAPANSKI vörubílaframleiðand-
inn Mitsubishi Fuso Truck & Bus
Corp. tilkynnti í gær að nærri
200.000 vörubifreiðar og rútur frá
fyrirtækinu yrðu innkallaðar eftir
að rannsókn leiddi í ljós að fram-
leiðslugallar í bílunum kynnu að
hafa valdið slysum, þ.á m. einu
banaslysi.
Samkvæmt upplýsingum frá
Heklu, umboðsaðila Mitsubishi,
hafa bílar af þeim gerðum verða
innkallaðar ekki verið seldir hér.
Wilfried Porth, framkvæmda-
stjóri Mitsubishi Fuso, baðst í gær
afsökunar á málinu og sagði að það
sýndi að stjórnendur fyrirtækisins
hefðu reynt að leyna mögulegum
öryggisgöllum í bílunum.
Kennir fyrirtækismenningu um
„Við hefðum átt að kalla inn bíl-
ana árið 1996,“ sagði Porth. „Orsök
þessa er fyrirtækismenningin, sem
einkennist af leyndarhyggju.“
Forstjórinn greindi frá því að
meirihluti bílanna, sem yrðu inn-
kallaðir, væri með gallaða hlíf á
kúplingunni. Hideyuki Shiozawa,
gæðastjóri Mitsubishi Fuso, sagði
að gallinn, sem getur orðið til þess
að hlífarnar á kúplingunni hrökkvi
í sundur, kynni að valda því að
hemlar bifreiðanna virkuðu ekki.
Eykur á vanda eigendanna
Talið er að innköllunin muni hafa
veruleg áhrif á tekjur fyrirtækisins
á árinu, að sögn Porth. Mitsubishi
Fuso er að 65% í eigu Daimler-
Chrysler og Mitsubishi Motors á
20%, en DaimlerChrysler á 37% í
Mitsubishi Motors. Fyrirtækið hef-
ur verið til rannsóknar vegna gruns
um galla í hjólabúnaði, sem olli því
að hjól losnaði af Mitsubishi-vörubíl
árið 2002 og olli dauða gangandi
vegfaranda. Fyrr í mánuðinum
handtók lögreglan sjö fyrrverandi
stjórnendur hjá Mitsubishi Motors,
sem talið er að hafi vitað um gall-
ann. Fyrirtækið er enn að ná sér
fjárhagslega eftir að reynt var að
leyna framleiðslugalla, sem síðar
hafði í för með sér innköllun millj-
óna bíla fyrir fjórum árum. Hluta-
bréf Mitsubishi Motors og Daimler-
Chrysler lækkuðu í verði í gær.
Reuters
Biðjast afsökunar Wilfried Porth, forstjóri Mitsubishi Fuso, og Hideyuki
Shiozawa gæðastjóri hneigja sig á blaðamannafundi í höfuðstöðvum
Mitsubishi í gær.
Mitsubishi Fuso
innkallar 200.000 bíla
Tókýó. AP.
ÞETTA HELST …
VIÐSKIPTI
● TÖLVUÞRJÓTAR hafa ekki brotist
inn í Heimabanka sparisjóðanna,
líkt og komið hefur fram í fréttum,
segir í fréttatilkynningu frá sparisjóð-
unum. Heimabankinn http://
heimabanki.spar.is er hýstur hjá
Tölvumiðstöð sparisjóðanna.
Aftur á móti voru tvær upphafs-
síður, http://www.heimabanki.is og
http://heimabanki.is hýstar hjá
sjálfstæðum hýsingaraðila en þær
vísa viðskiptavinum eingöngu á hinn
raunverulega Heimabanka, segir
enn fremur þar. Hinn 10. apríl hafi
brasilískir tölvuþrjótar brotist m.a.
inn á þessar tvær síður. „Þeir við-
skiptavinir sem nota þessi tvö vef-
svæði til að komast inn í Heima-
bankann og reyndu að fara inn fengu
því upp síðu sem gaf tilefni til að
álykta að einhver hefði brotist inn í
Heimabankann. Sú var þó ekki raun-
in. Heimabanki sparisjóðanna var í
góðu lagi allan tímann og tölvuþrjót-
arnir komust aldrei nálægt honum.“
Ekkert innbrot
í Heimabanka
sparisjóðanna
LANDSSAMTÖK lífeyrissjóða mót-
mæla fullyrðingum sem fram koma í
bréfi Samtaka banka og verðbréfa-
fyrirtækja (SBV) til Geirs H. Haarde
fjármálaráðherra. Landssamtökin
segja það ömurlega framtíðarsýn að
bankar sitji einir að húsnæðislánum.
„Lífeyrissjóðirnir hafa haldið uppi
húsbréfakerfinu og gera það auðvit-
að ennþá og munu gera það áfram
með öllum tiltækum ráðum. Ég held
að það sé slæmur boðskapur að
halda því fram að þeir einu sem geti
verið á fasteignamarkaði séu bank-
arnir,“ segir Hrafn Magnússon,
framkvæmdastjóri Landssamtaka
lífeyrissjóða.
Eins og sagt var frá í Viðskipta-
blaði Morgunblaðsins í gær vilja
SBV að lokað verði fyrir heimildir
lífeyrissjóða til að veita sjóðfélögum
lán, eða þær takmarkaðar.
Hrafn segir þau rök fáránleg að
lífeyrissjóðir bjóði upp á hagstæð lán
á kostnað ávöxtunar fyrir sjóðfélaga.
Verið sé að bera saman tvennt ólíkt
þegar verðbréfafyrirtæki séu borin
saman við lífeyrissjóði, enda þjóni
sjóðirnir aðeins sínum félögum.
Spurður um hagsmunaárekstra
vegna þess að ekki sé aðgreining
milli rekstrar og vörslu hjá lífeyr-
issjóðunum, segir Hrafn það sama
gilda, borin séu saman ólíkt rekstr-
arform lífeyrissjóða og verðbréfafyr-
irtækja, sem standist ekki.
„Okkur þykir dálítið langt seilst
hjá bönkunum að vilja yfirtaka allan
fasteignamarkaðinn. Þetta er ein
grundvallarþjónusta lífeyrissjóð-
anna, að geta veitt sjóðfélögum lán.
Þeir hafa borgað í lífeyrissjóðina
sjálfir og eru að fá það fé til baka í
formi lána,“ segir Hrafn.
Lífeyrissjóðir bjóði
áfram fasteignalán