Morgunblaðið - 21.05.2004, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. MAÍ 2004 43
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
TVÍBURAR
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert þrautseig/ur og býrð
yfir óvenjumiklu hugrekki
sem ýtir oft undir velgengni
þína. Þér finnst best að
vinna ein/n. Það verða mikl-
ar og jákvæðar breytingar á
lífi þínu á árinu.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Fjármálin munu á einhvern
hátt koma þér á óvart í dag.
Þú gætir annaðhvort orðið
fyrir óvæntum útgjöldum eða
uppgötvað nýjar leiðir til
fjáröflunar.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú munt rekast á óvenjulegt
fólk sem mun gera daginn
eftirminnilegan. Vertu opin/n
fyrir hvers konar fé-
lagsstarfi.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú munt hugsanlega öðlast
nýja sýn á hlutina í dag.
Þetta á sérstaklega við um
vísindi og andleg málefni.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Samskipti þín við gamlan vin,
sem þú telur þig þekkja út og
inn, munu hugsanlega koma
þér í opna skjöldu í dag.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Einhver náinn þér mun segja
þér eitthvað óvænt og áhuga-
vert í dag.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú munt að öllum líkindum fá
nýja innsýn í hlutina í dag.
Tækni og vísindi vekja áhuga
þinn þessa dagana.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú munt hugsanlega fá
óvænta gjöf eða fyrirgreiðslu
í dag. Þú nýtur góðs af velvild
annarra.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú munt líklega heyra spenn-
andi fréttir af ástarmálum
annarra í dag. Farðu með
leyndarmál annarra eins og
þau væru þín eigin.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú gætir fundið nýja lausn á
gömlu vandamáli í dag. Þetta
getur hugsanlega þýtt það að
þú takir nýja tækni í þjón-
ustu þína í vinnunni.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú munt hugsanlega upplifa
ást við fyrstu sýn í dag. Að
öðrum kosti mun daður lík-
lega fá hjarta þitt til að slá
hraðar.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Einhver í fjölskyldunni gæti
fengið góða hugmynd eða
flutt þér óvænt tíðindi í dag.
Það virðast margir spenn-
andi möguleikar vera að opn-
ast í kringum þig. Gerðu ráð
fyrir því óvænta.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Það mun eitthvað verða til
þess að brjóta upp hvers-
dagsleikann hjá þér í dag.
Búðu þig undir að hlutirnir
fari öðruvísi en áætlað er.
Reyndu að njóta hins óvænta.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
SOFÐU, UNGA ÁSTIN MÍN
Sofðu, unga ástin mín,
– úti regnið grætur.
Mamma geymir gullin þín,
gamla leggi og völuskrín.
Við skulum ekki vaka um dimmar nætur.
Það er margt, sem myrkrið veit,
– minn er hugur þungur.
Oft ég svarta sandinn leit
svíða grænan engireit.
Í jöklinum hljóða dauðadjúpar sprungur.
Sofðu lengi, sofðu rótt,
seint mun bezt að vakna.
Mæðan kenna mun þér fljótt,
meðan hallar degi skjótt,
að mennirnir elska, missa, gráta og sakna.
Jóhann Sigurjónsson
LJÓÐABROT
60 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 21. maí,
er sextugur Ingólfur Andr-
ésson, Hamravík 30, Borg-
arnesi. Af því tilefni munu
hann og eiginkona hans,
Árný Guðjónsdóttir, taka á
móti ættingjum og vinum í
sumarbústað þeirra hjóna í
Galtarholti í Borgarbyggð
frá kl. 16 á morgun, laug-
ardaginn 22. maí.
80 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 21. maí,
verður áttræð Laufey
Jens-Jónsdóttir, Ægisíðu
86, Reykjavík. Af því tilefni
mun hún og eiginmaður
hennar, Páll G. Hannesson,
dvelja með ættingjum sín-
um.
ÞAÐ er varla hægt að segja
að spil austurs séu mann-
sæmandi – ekki eitt einasta
háspil og aðeins ein tía.
Þegar menn taka upp slíka
hönd er lágmarkskrafa að
fá að sofa í friði á meðan
hinir þrír skemmta sér. En
réttlæti er ekki til við
bridsborðið þegar til
skamms tíma litið og hér er
niðurlæging austurs alger.
Vestur gefur; NS á
hættu.
Norður
♠ÁKG7
♥ÁK64
♦9
♣G873
Vestur Austur
♠D9 ♠85432
♥DG9 ♥8532
♦KG64 ♦108
♣KD62 ♣54
Suður
♠106
♥107
♦ÁD7532
♣Á109
Vestur Norður Austur Suður
1 tígull Dobl Pass 2 grönd
Pass 3 grönd Allir pass
Suður hefði svo sem get-
að passað niður opn-
unardobl makkers, en hann
bjóst við flótta og nennti
ekki að eltast við einn í há-
lit doblaðan. Sem er skilj-
anleg afstaða í ljósi stöð-
unnar. Vestur hitti á gott
útspil – hjartadrottningu.
Sagnhafi dúkkaði, tók næst
hjartagosann með ás og
spilaði laufi á tíu og drottn-
ingu vesturs. Enn kom
hjarta, sem blindur tók og
sagnhafi svínaði aftur í
laufi. Það gekk ekki og
vestur spilaði sér út á
þriðja laufinu.
Suður spilaði næst spaða-
tíu, drottning og ás. Eftir
KG í spaða var staðan
þessi:
Norður
♠7
♥6
♦9
♣G
Vestur Austur
♠– ♠8
♥– ♥8
♦KG6 ♦108
♣6 ♣–
Suður
♠–
♥–
♦ÁD75
♣–
Austur hafði sofið vært
fram að þessu, en þegar
laufgosa var spilað vaknaði
hann upp við vondan
draum: hann var þvingaður
í þremur litum! Hann var
með þrjár áttur og þær
voru allar dýrmætar. Tíg-
uláttan varð auðvitað að
fara, en þá spilaði sagnhafi
tígli á drottninguna og
endaspilaði vestur, sem
varð að spila tígli frá G6
upp í Á7.
Austur var skiljanlega
sár: „Eitt er að vera tekinn
út af í miðjum leik, annað
er að láta kvelja sig á
bekknum.“
BRIDS
Guðmundur Páll
Arnarson
50 ÁRA afmæli. EiðurÖrn Hrafnsson,
Vogagerði 14, verður fimm-
tugur 24. maí nk. Í tilefni
tímamótanna taka Eiður
Örn og Hrönn á móti vinum
og samferðafólki laugardag-
inn 22. maí í samkomuhús-
inu Glaðheimum, Vogum, kl.
19.
50 ÁRA afmæli. Sunnu-daginn 23. maí nk.
verður fimmtug Sólveig
Kristjánsdóttir, Sæviðar-
sundi 66, Reykjavík. Af því
tilefni taka hún og eigin-
maður hennar, Sigþór Ing-
ólfsson, á móti ættingjum
og vinum á heimili sínu
laugardagskvöldið 22. maí
frá kl. 18–22.
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6
4. Ba4 Rf6 5. 0–0 Be7 6. He1
b5 7. Bb3 d6 8. c3 Ra5 9. Bc2
c5 10. d4 Dc7 11. d5 Bd7 12.
b3 0–0 13. h3 Rb7 14. c4
Hfe8 15. Rc3 g6 16. Bd2 Bf8
17. g4 h5 18. Rh2 b4
19. Ra4 hxg4 20.
hxg4 Be7 21. Rb2
Kg7 22. Kg2 Hh8 23.
Hh1 Hh4 24. f3
Hah8 25. De2 Dc8
26. Hag1 Dg8 27.
Be1 Hh3 28. Rd1
Dh7 29. Bg3
Staðan kom upp á
Evrópumeistaramóti
einstaklinga sem
stendur nú yfir í
Anatalya í Tyrk-
landi. Stigahæsti
keppandinn, Vassily
Ivansjúk (2.716),
þurfti að bíta í það súra epli
að tapa í fyrstu umferð með
hvítu gegn búlgarska al-
þjóðlega meistaranum Jul-
ian Radulski (2.497). 29. …
Rxg4! og hvítur sá sæng
sína útbreidda enda fátt um
varnir eftir 30. fxg4 Hxg3+
31. Kxg3 Dh3+ 32. Kf2
Bh4+.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
ANTIK KLUKKUR Á TILBOÐI
Laugavegi 20b • Sími 552 2515 • OPIÐ kl. 11-18 og Auðbrekku 1 • Sími 544 4480 • OPIÐ kl. 13-18
Antik klukkur
á vegg og borð
í úrvali
Takmarkað magn
Verð kr 7.900
Þú finnur strax muninn
Compeed plástur...
...er fyrirbyggjandi og hindrar blöðrumyndun.
...er vörn gegn vatni, óhreinindum og bakteríum.
...dregur fljótt úr sársauka og óþægindum.
Fæst í apótekum
Stórhöfða 25 • 110 Reykjavík • sími 569 3100 • www.eirberg.is
Suðurlandsbraut 4a • 108 Rvk. • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is
533 4800
Lindarbraut 22, Seltjarnarnesi
Sölusýning milli 17.00 og 19.00
Björn Þorri hdl. lögg. fastsali, Karl Georg hrl. lögg. fastsali.
Til sölu mjög glæsilegt 180 fm rúm-
lega fokhelt parhús með innbyggðum
bílskúr. Húsin skiptast í anddyri, þrjú
svefnherbergi, tvö baðherbergi, stofu,
borðstofu, eldhús, geymslu, þvotta-
hús og innb. Bílskúr. Byggingin
skilast fullgerð að utan. Fokhelt að
innan, full einangrað.
Byggingaaðili: Fimir ehf.
ÁRNAÐ HEILLA
50 ÁRA afmæli. Fimmtugur verður 25. júní nk. Jóhann B. Skúlason, verk-stjóri, Hraunbæ 22, Reykjavík.
40 ÁRA afmæli. Fertug varð 5. apríl sl. Kristen M. Swenson, kennari.Í tilefni af afmælum þeirra hjóna taka þau á móti vinum og vandamönn-
um í Akoges-salnum, Sóltúni 3, laugardaginn 22. maí nk. frá kl. 20.