Morgunblaðið - 25.05.2004, Qupperneq 47
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. MAÍ 2004 47
JÓNATAN Þór Magn-
ússon, fyrirliði bikar-
meistara KA í hand-
knattleik, mun að öllum
líkindum ganga til liðs
við sænska liðið Lugi á
næstu leiktíð. Félagið
bauð honum að koma út
til æfinga og var hann
til skoðunar hjá liðinu í
fimm daga þar sem
hann mætti á þrjár æf-
ingar og lék einn leik með liðinu.
„Ég fæ tilboð frá Lugi á morg-
un (í dag) og ég myndi segja að
það sé ansi líklegt að ég semji við
liðið. Mig langar að breyta til og
KA-menn hafa vitað af því í lang-
an tíma að það kynni að koma að
því að ég færi frá þeim.
Þetta er mjög spennandi
klúbbur og allar að-
stæður hinar bestu svo
það yrði gaman að fá að
spreyta sig þar,“ sagði
Jónatan í samtali við
Morgunblaðið í gær en
hann hefur verið einn
lykilmanna KA-liðsins
undanfarin ár enda sér-
lega góður varnar-
maður og útsjónarsamur leik-
stjórnandi.
Lugi, sem Jón Hjaltalín Magn-
ússon lék með á árum áður, hafn-
aði í sjöunda sæti í sænsku úrvals-
deildinni í vetur en var slegið út
af Skövde, 2:1, í úrslitakeppninni.
Jónatan Þór Magnússon
á leið frá KA til Lugi
FÓLK
PÉTUR Hafliði Marteinsson lék
allan tímann í vörn Hammarby sem
lagði Gautaborg, 1:0, á útivelli í
sænsku úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu í gær og var sigurmarkið
sjálfsmark á lokamínútunni. Hjálm-
ar Jónsson lék allan tímann fyrir
Gautaborg.
TRYGGVI Guðmundsson og Jó-
hann B. Guðmundsson léku báðir
allan tímann fyrir Örebro sem tapaði
fyrir Djurgården, 2:1.
FREYR Karlsson knattspyrnu-
maður hefur komist að samkomulagi
við stjórn knattspyrnudeildar Fram
um að verða leystur undan samningi
við liðið og er líklegt að hann gangi
til liðs við Þrótt. Freyr er 25 ára
gamall miðjumaður sem hefur leikið
75 leiki í efstu deild með Fram og
Víkingi.
GUÐRÚN Lilja Sigurðardóttir
setti heimsmet í 200 m flugsundi fatl-
aðra á Sundmóti Hafnarfjarðar um
helgina, synti á 3.27,89. Ingibjörg
Svala Björgvinsdóttir setti Íslands-
met í 50 metra baksundi garpa á
sama móti á 44,55 og Ragnheiður
Ragnarsdóttir bætti Hafnarfjarðar-
metið í 100 m bringusundi á 1.11,76.
SUNNA Gestsdóttir, Íslandsmet-
hafi í langstökki úr UMSS, stökk 6,37
metra á móti í Tönsberg í Noregi um
liðna helgi. Þetta er sjö sentímetrum
lengra en Íslandsmet hennar er. Þar
sem vindur var yfir leyfilegum mörk-
um fæst árangurinn ekki staðfestur
sem Íslandsmet.
STEFÁN Már Ágústsson, hlaup-
ari úr UMSS, keppti í þremur grein-
um á móti Malmö um helgina. Hann
hljóp 200 m á 24,45 sekúndum, 400 m
á 51,98 og 800 m á 1.56,33 mínútum.
LEIK FH og Keflavíkur í úrvals-
deild karla í knattspyrnu hefur verið
frestað frá fimmtudegi til föstudags
þar sem Þórir Jónsson, forystumað-
ur hjá FH um árabil og leikmaður á
árum áður, verður jarðsunginn á
fimmtudaginn. Þá hefur leik Fylkis
og Keflavíkur verið seinkað frá 31.
maí til 2. júní.
ANDRE Agassi er úr leik á Opna
franska meistaramótinu í tennis,
sem er fyrsta stórmót ársins. Banda-
ríkjamaðurinn er í sjötta sæti á
heimslistanum þessa stundina, tap-
aði í fyrstu umferð gegn heima-
manninum Jerome Haehnel sem er í
271. sæti á heimslistanum. Þetta er í
fyrsta sinn sem Haehnel tekur þátt í
atvinnumannamóti sem þessu en
hann er 23 ára gamall.
NORSKA úrvalsdeildarliðið Vik-
ing frá Stavanger, sem Hannes Þ.
Sigurðsson leikur með, hefur komist
að samkomulagi við enska þjálfar-
ann Roy Hodgson um að hann taki
við sem þjálfari liðsins í júlí á þessu
ári en Kjell Inge Olsen sagði starfi
sínu lausu í upphafi leiktíðar eftir
slakt gengi liðsins á undirbúnings-
tímabilinu og 4:0-tap í fyrstu umferð
á útivelli gegn Tromsö.
ÍSLENSKA landsliðið í knatt-
spyrnu æfir á völlum í eigu
enska úrvalsdeildarliðsins
Manchester United á meðan
það dvelur í Englandi vegna
landsleikjanna gegn Japan og
Englandi.
Liðið fær þar góða aðstöðu
og auk þess er steinsnar frá
hóteli þess í Manchester á
golfvöll þar sem hægt er að
stytta sér stundir á milli æf-
inga.
Stjórn Knattspyrnu-
sambands Íslands verður
mestöll samankomin í Man-
chester vegna landsleikjanna.
Ákveðið hefur verið að halda
stjórnarfund ytra föstudaginn
4. júní og hann fer fram á
kunnum stað, sjálfum Old
Trafford, hinum glæsilega
leikvangi Manchester United.
KRISTJÁN Finnbogason og Krist-
ján Örn Sigurðsson úr KR, sem vald-
ir voru í landsliðshópinn fyrir Man-
chester-mótið, verða á ferð og flugi
því tveir leikir með KR fara fram á
meðan landsliðið dvelur í Manchest-
er. Kristján og Kristján fara ekki til
Englands á fimmtudaginn, þar sem
KR mætir Víkingi þá um kvöldið.
Þeir fara því utan á föstudag, vegna
leiksins gegn Japan, en koma síðan
aftur heim til að spila með KR gegn
ÍBV í Eyjum á þriðjudag. Á miðviku-
dag liggur svo leiðin hjá þeim til
Englands á ný vegna undirbúnings
fyrir leikinn gegn Englendingum.
Jóhann lék síðast með landsliðinufyrir tveimur árum, vináttuleik
gegn Noregi í Bodö þann 22. maí
2002 sem endaði 1:1. Auðun lék með
landsliðinu þegar það gerði marka-
laust jafntefli í Mexíkó þann 20. nóv-
ember sl., en það var hans fyrsti
landsleikur í 26 mánuði. Eiður Smári
Guðjohnsen er aftur í hópnum en
hann fékk frí frá leikjunum gegn
Lettlandi og Albaníu fyrr í vor.
Þá bætast þeir Heiðar Helguson
og Hjálmar Jónsson í hópinn á ný en
þeir voru ekki með í síðasta leik,
gegn Lettlandi í Ríga 28. apríl. Þeir
léku hins vegar báðir gegn Albaníu í
Tirana fjórum vikum áður.
Arnar Þór Viðarsson leikur ekki
með í Englandi en eiginkona hans á
von á barni í næstu viku. Ólafur Örn
laugardaginn, en kemur síðan til
Englands.
„Við mætum sterkum andstæðing-
um í Manchester og það verður erfitt
að ná góðum úrslitum gegn þeim. En
við förum til Englands til að standa
okkur vel og á góðum degi getur allt
gerst. Það er mikið ánægjuefni að fá
verkefni á borð við þetta og geta ver-
ið með hópinn saman í tíu daga en
það gefur okkur Loga tækifæri til að
vinna að ákveðnum hlutum með lið-
inu,“ sagði Ásgeir Sigurvinsson.
Morgunblaðið/Kristinn
Ívar Ingimarsson í landsleik gegn Skotum á Hampden Park – á í höggi við Don Hutchison.
Jóhann B. og
Auðun á nýjan
leik í landsliðið
JÓHANN Birnir Guðmundsson, leikmaður Örgryte í Svíþjóð, og Auð-
un Helgason, leikmaður Landskrona í Svíþjóð, eru komnir í íslenska
landsliðshópinn í knattspyrnu eftir nokkurt hlé. Þeir eru báðir í 20
manna hópi sem Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson tilkynntu í
gær fyrir Manchester-mótið en Ísland mætir þar Japan á sunnu-
daginn kemur, 30. maí, og Englandi laugardaginn 5. júní.
Bjarnason, Gylfi Einarsson og Veig-
ar Páll Gunnarsson verða ekki með
þar sem þeir eru uppteknir með lið-
um sínum í Noregi. Helgi Sigurðsson
verður ekki með gegn Japan þar sem
hann spilar deildaleik með AGF á
Markverðir
Árni Gautur Arason, Man.City ................ 35
Kristján Finnbogason, KR....................... 19
Aðrir leikmenn
Arnar Grétarsson, Lokeren .................. 65/2
Hermann Hreiðarsson, Charlton ......... 53/3
Helgi Sigurðsson, AGF........................ 51/10
Þórður Guðjónsson, Bochum .............. 51/13
Brynjar Björn Gunnarsson, Stoke ....... 41/3
Tryggvi Guðmundsson, Örgryte........... 33/9
Pétur H. Marteinsson, Hammarby ...... 29/1
Auðun Helgason, Landskrona .............. 28/1
Eiður Smári Guðjohnsen, Chelsea ....... 27/9
Heiðar Helguson, Watford.................... 26/2
Jóhannes Karl Guðjónsson, Wolves ..... 17/1
Indriði Sigurðsson, Genk.......................... 15
Bjarni Guðjónsson, Coventry................ 14/1
Ívar Ingimarsson, Reading ...................... 14
Marel Baldvinsson, Lokeren.....................13
Hjálmar Jónsson, Gautaborg..................... 7
Jóhann Birnir Guðmundsson, Örgryte ..... 7
Kristján Örn Sigurðsson, KR..................... 3
Kristjánar á
ferð og flugi
LOGI Ólafsson sagði að þeir Ásgeir
Sigurvinsson fylgdust grannt með
Stefáni Gíslasyni, miðjumanninum
öfluga í Keflavík, þótt hann hefði ekki
orðið fyrir valinu í landsliðshópinn að
þessu sinni. „Stefán hefur leikið mjög
vel og við munum skoða hann áfram,
ásamt fleirum. Við Ásgeir höfum
skoðað leikina á Íslandsmótinu mjög
náið og þótt aðeins tveir leikmenn ís-
lenskra liða séu í hópnum að þessu
sinni eru allar dyr opnar fyrir þá sem
standa sig vel.“ Þá sagði Logi að Sin-
isa Valdimar Kekic, fyrirliði Grind-
víkinga, sé undir smásjánni eins og
fleiri. „Kekic er inni í myndinni hjá
okkur, hann er valkostur fyrir verk-
efnin síðar á þessu ári ef hann stendur
sig vel í sumar,“ sagði Logi Ólafsson.
Stefán undir
smásjánni
HÓPURINN
Stjórnar-
fundur
KSÍ á Old
Trafford