Morgunblaðið - 25.06.2004, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 25.06.2004, Qupperneq 28
UMRÆÐAN 28 FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ S ætur, ljótur, sætur, sæt- ur, ljótur.“ Þrjár systur sitja við sjónvarps- skjáinn og fylgjast með þjóðsöngvum Dana og Svía fyrir leik á Evrópumótinu í knattspyrnu. Myndavélinni er rennt yfir leikmenn liðanna og að mati systranna er nokkurt jafnræði með liðunum hvað fönguleik varð- ar. Svo hefst leikurinn og situr þá aðeins ein systirin áfram í stofunni og fylgist af hálfum huga með bolt- anum. Enginn fer varhluta af því að „knattspyrnuveisla“ stendur yfir suður í Portúgal þessa dagana. Strákarnir kljást sveittir um knött- inn á vellinum og í stúkunni er áhorfendafjöld. Karlmenn eru þar í miklum meirihluta. Ef marka má myndirnar sem öðru hverju birtast af knatt- spyrnuaðdá- endunum er næstfjölmenn- asti áhang- endahópurinn sætar stelpur í kringum tvítugt, léttklæddar í suð- ur-evrópsku blíðunni. Það ríkir sérstök stemmning í kringum fótboltakeppni eins og þá sem nú er háð í Portúgal. Hér heima eru flestir karlmenn 10 ára og eldri límdir við skjáinn, eða fylgjast að minnsta kosti með keppninni að einhverju leyti. Fyrir marga karla er keppni sem þessi langþráð skemmtun og einn lýsti EM fyrir mér sem einskonar „listahátíð“ knattspyrnuunnenda. Fyrir suma karla eru fótboltaleik- irnir sennilega notaleg afsökun til þess að slaka á með bjór í annarri hendi, snakk í hinni og vini sína í kringum sig. Kannski eru fótbolta- keppni sem þessi einskonar sauma- klúbbar karlpeningsins. En hvað er til ráða fyrir konur á þessum EM-tímum? Auðvitað hafa sumar þeirra mikinn áhuga á bolt- anum og sitja við skjáinn með strákunum. Aðrar fylgjast með öðruhverju og hafa gaman af. Enn aðrar birgja sig upp á mynd- bandaleigum bæjarins eða fara út á lífið með vinkonum sínum til að þurfa ekki að hafa grænleitan skjá- inn sífellt fyrir augunum. Ég er ein þeirra sem hef ekki gríðarlegan áhuga á fótbolta, en finnst ágætt að kíkja á leiki við og við og boltakeppni á borð við EM vekur hjá mér ákveðna sum- arstemmningu, svona svipaða og girnileg sumarsalöt og kælt hvít- vín. Þegar ég tek mig til og horfi á leiki með strákunum í stofunni er ég aldrei óvelkomin. Samt hef ég alltaf dálítið á tilfinningunni að ég eigi ekki alveg heima í þessum klúbbi. Þetta er einhvern veginn ekki „minn heimur“ og mig rennir í grun að fleiri konur upplifi EM- keppnina með svipuðum hætti. Mér hefur skilist að flesta litla stráka dreymi á einhverjum tíma- punkti um að komast í atvinnu- mennsku og landsliðsbúning og verða knattspyrnuhetjur. Þegar fullorðnir karlar horfa á Wayne Rooney þjóta upp völlinn og skora fyrir enska liðið á EM í Portúgal, eru þeir kannski að „endurupplifa“ æskudraumana. Ég horfi hins veg- ar á Rooney og finnst hann vissu- lega leikinn með knöttinn – en að heppilegra væri ef hann hefði jafn- framt útlitið með sér, líkt og Beck- ham. Og strákunum nægir ekki að horfa á leikina sjálfa. Til að auka enn á gleðina birtist Þorsteinn Joð okkur í RÚV á síðkvöldum og fær til sín knattspyrnuspekinga úr ýmsum áttum til að fara yfir leiki kvöldsins. Þar er rennt yfir helstu mörkin og ein og ein fegurðardís úr stúkunni fær gjarnan að fljóta með. Ein slík var einmitt sýnd hjá Þor- steini í vikunni. Var stúlkan sú afar léttklædd og virtist óska þess heit- ast að barmur hennar fengi að fylla út í sjónvarpsskjái Evrópubúa. Ung fréttakona, sem var gestur Þorsteins í þættinum, var spurð álits á brjóstasýningunni. Sagði hún eitthvað á þá leið að myndir sem slíkar væru bara hluti af leikn- um og hringdu engum fem- ínistabjöllum hjá sér. Ekki geri ég ráð fyrir öðru en að hún hafi þarna lýst skoðun sinni á hreinskilinn hátt. Mér fannst nú samt fréttakonan vera sett þarna í dálítið erfiða stöðu. Henni hafði verið boðið í „strákapartí“ og yf- irleitt er affarasælast fyrir gest- komendur að móðga ekki húsráð- endur. Er skortur á ámóta viðburðum og EM í fótbolta fyrir „okkur stelp- urnar“? Sumir telja eflaust að svo sé. Á baráttudegi kvenna, 19. júní, benti Femínistafélag Íslands á að það væri langt í frá jafnræði með karla- og kvennaknattspyrnu á Ís- landi. Afhenti félagið landsliðsþjálf- ara kvenna hina svonefndu bleiku steina og vildi með því hvetja til þess að jafnréttissjónarmið yrðu höfð að leiðarljósi í knattspyrnunni. Sagði ein forystukvenna félagsins að vinningslið karladeildar fengi mun hærra verðlaunafé en sig- urvegari kvennadeildarinnar og sýndi þetta ákveðið verðmætamat. Líklegt verður þó að teljast að umrætt „mat“ komi kynjunum í raun ekkert við, heldur byggist á ísköldum útreikningum fyrirtækj- anna sem fjárfesta í knatt- spyrnuíþróttinni. Það er gott að Femínistafélagið skuli vekja athygli á knattspyrnu kvenna. Það virðist þó langt í að kvennaboltinn verði „jafnstór“ íþrótt og karlaboltinn er. Þess vegna verður sennilega áfram erf- iðara að fá fjármagn úr einkageir- anum í kvennaboltann. Einnig má spyrja hvort það sé endilega eftirsóknarvert markmið? Ég hefði satt að segja orðið enn ánægðari með Femínistafélagið ef það hefði ákveðið að beita sér al- mennt fyrir auknu fjármagni og at- hygli til handa íþróttagreinum sem konur fjölmenna í. Margar þessara greina eru svo sannarlega ekki ofaldar fjárhagslega séð og komast sjaldan í kastljós fjölmiðla. Svo dæmi sé tekið fær áhugafólk um fimleika (sem eru að meirihluta til konur) einungis að njóta uppá- haldsíþróttarinnar sinnar í sjón- varpinu þegar Ólympíuleikar eru haldnir fjórða hvert ár. Því má heldur ekki gleyma að fjölmargar konur sameinast um að horfa saman á annað efni en íþrótt- ir í sjónvarpinu. Gott dæmi eru þættirnir um Carrie og vinkonur hennar í Beðmálum í borginni, sem hópar kvenna hafa skemmt sér yfir og skeggrætt á undanförnum miss- erum. Kannski eru þættir á borð við þá á vissan hátt „okkar svar“ við knattspyrnuglápi strákanna. Stelpurnar og boltinn Þegar ég tek mig til og horfi á leiki með strákunum í stofunni er ég aldrei óvel- komin. Samt hef ég alltaf dálítið á tilfinningunni að ég eigi ekki alveg heima í þessum klúbbi. VIÐHORF Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is FYRIR hönd Hjálparstofnunar landsins helga í Betlehem erum við innilega þakklát áralangri baráttu þinni fyrir friði og mannréttindum meðal þjóða. Við höfum í langan tíma beðið eftir fólki eins og þér til að tala fyrir málstað okkar og þjáningum og leggja okkur lið í baráttunni fyrir réttlæti. Í langan tíma hafa þjáningar okkar undir hernámi Ísraela verið hundsaðar af alþjóða- samfélaginu. Nú finn- um við sterka rödd sem mun standa upp í baráttunni fyrir réttlæti og var- anlegum friði verðir þú kjörinn for- seti. Héðan frá Palestínu, frá hernám- inu, frá Betlehem, skorum við á fólk að hjálpa þér, hr. Ástþór Magn- ússon, til að hjálpa þér að halda áfram að boða frið, ekki einungis með orðum heldur einnig í verki. Langt starf þitt fyrir friði og gegn ofbeldi, og barátta þín fyrir betri framtíð mannkyns, ætti að gera þjóð þína stolta af þér. Frá Palestínu, Ástþór Magnússon, erum við stolt af þér, stolt af samstarfi okkar og stolt af mannúð þinni sem við söknum hjá leiðtog- um heims. Land eins og Ísland hefur mikilvægu hlut- verki að gegna í því að styðja frið og réttlæti og byggja friðarbrýr milli þjóða. Við munum öll eftir því þegar forsetar Bandaríkjanna og Sov- étríkjanna mættust á Íslandi á dögum kalda stríðsins. Frá þeim tíma hefur fólk um allan heim litið til Íslands í von um aukin framlög til heimsfriðar. Hættuástandið í Mið-Aust- urlöndum þarfnast svo sannarlega liðsinnis ykkar Íslendinga sem þjóð- ar. Palestínumenn og Ísraelar þurfa átakanlega á hjálp ykkar að halda og nú er rétti tíminn fyrir land eins og Ísland að leggja hönd á plóginn og valda straumhvörfum til friðar, ekki aðeins í Mið-Austurlöndum heldur um allan heim. Ástþór Magnússon, barátta þín fyrir friði hefur nú þegar breytt lífi margra og þegar þú verður kosinn forseti, erum við þess fullviss að þú munt halda áfram á þeirri braut. Við óskum þér góðs gengis í for- setakosningum á Íslandi. Megi friður ríkja á jörð. Palestínumenn og Ísraelar þurfa átakanlega á hjálp ykkar að halda George Rishmawi skrifar opið bréf til Ástþórs Magnússonar frá landinu helga ’ Langt starf þitt fyrirfriði og gegn ofbeldi, og barátta þín fyrir betri framtíð mannkyns, ætti að gera þjóð þína stolta af þér. ‘ George Rishmawi Höfundur er umsjónarmaður Holy Land Trust í Betlehem, www.holylandtrust.org. ÞRÖSTUR Helgason blaða- maður víkur heldur óvinsamlega að mér í pistli í Morgunblaðinu fimmtudaginn 24. júní. Hann segir í tilefni ritdóms Helgu Kress í Sögu um bók mína, Halldór, fyrsta bindi ævisögu Halldórs Kiljans Laxness, að erfitt sé að taka það undir með mér, að bókin hafi verið unnin heiðarlega. Ég mun svara rit- dómi Helgu í Sögu. Ég bað raunar um að fá að svara honum í sama hefti tímaritsins, eins og eðlilegt hefði verið, en því var hafnað. Þar er aðalatriðið, eins og margoft hefur komið fram, að ég nýtti mér lýsingar Hall- dórs á æsku sinni, og gat þess skilmerkilega bæði í neðanmáls- greinum og eftirmála. En ég vek athygli á tvennu um vinnu- brögð Helgu Kress. Hún hefur tekist á hendur fyrir tvær dæt- ur Kiljans að semja greinar- gerð, sem þær ætla að nota í málshöfðun gegn mér. Hún er því beinlínis aðili að því máli gegn mér. Upplýsti hún rit- stjóra Sögu um það, þegar hún var fengin til að skrifa ritdóm um bók mína? Ef hún gerði það ekki, þá hefur hún brotið siða- reglur Háskólans, sem kveða á um það, að fræðimenn eigi að upplýsa um hagsmunatengsl sín. Í öðru lagi var hinni löngu álits- gerð, sem Helga samdi fyrir dæturnar, nýlega laumað í dag- blöð í því skyni að koma höggi á mig. Var það Helga, sem gerði það? Hún hefur að vísu neitað því í tölvupósti til mín, en um leið neitað að greina frá því, í hendur hverra hún lagði þessa greinargerð sína. Ef hún hefur staðið beint eða óbeint að þess- ari sendingu, þá hefur hún þar líka brotið siðareglur Háskól- ans. Það er því góð spurning, hver er hér óheiðarlegur. Þröst- ur Helgason blaðamaður er sjálfur í þeirri bókmenntafræ- ðiklíku, sem snúist hefur önd- verð við því, að ég fái að skrifa um Kiljan. Það veitir honum hins vegar ekki rétt til að mis- nota þann aðgang, sem Morg- unblaðið veitir honum að les- endum, eins og hann gerði í pistli sínum. Hver er óheiðarlegur? Höfundur er prófessor í stjórn- málafræði í Háskóla Íslands. Hannes Hólmsteinn Gissurarson ÉG STALDRAÐI við grein í Fréttablaðinu í gær undir fyrirsögn- inni ‘Hroki og valdníðsla í aðal- hlutverki’ um nýafstaðin viðtöl við mig í sjónvarpi. Blaðamaður sagðist hafa vorkennt mér og hefði fundist beinlínis óþægi- legt að horfa upp á auðsýndan hroka, lítilsvirðingu og valdníðslu þeirra fjögurra sjónvarpsmanna sem ræddu við mig þetta kvöld. Sagðist blaðamaður hafa skammast sín fyrir að vera Íslendingur þetta kvöld og spyr: ‘Til hvers að þykjast vera friðarþjóð þegar íbúarnir eru upp til hópa vargar með eina og sameiginlega skoðun? Því það er einmitt skoðanamyndandi umfjöllun í þessum dúr sem kyndir undir ósjálfstæðar skoðanir hins íslenska lýðs og skapar almenningsálitið.’ Einnig var sagt frá því í þessari grein Fréttablaðsins að blaðamaður hefði verið á læknastofu um daginn þegar útvarpsfréttir af mér skullu á hljóðhimnum biðstofugesta og hafi þá hver einasti hnussað hátt um leið og hann leitaði viðurkenningar á virðingarleysi sínu fyrir hugsjónum frambjóðandans muldrandi: ‘Djöfull er hann ruglaður, mar!’ Ég vildi óska þess að vandamálið væri einfaldlega það að ég sé klikk- aður, ruglaður, veruleikafirrtur eða eitthvað af þessu öllu saman sem ég hef orðið vitni að í umræðunni um mína persónu á meðal þjóðarinnar. Ef þetta væri satt væri ég fyrstur manna til að fara sáttur í háttinn á hverju kvöldi í mínum eigin hug- arheimi. En því miður er veruleikinn með allt öðrum hætti en gestirnir á tann- læknastofunni vilja trúa. Eftir að hafa heimsótt stríðshrjáð börn í Pal- estínu, Írak og Bosníu grætur mitt hjarta nær stöðugt fyrir þjáningar þeirra. Ég einfaldlega get ekki farið að sofa á kvöldin sáttur við slíkt ástand vitandi að hægt er að hjálpa þessu fólki bara ef raunverulegur vilji er fyrir hendi. Ég neita að trúa því að fimmt- ungur íslensku þjóðarinnar sé svo tómhjartaður að hann ætli að skila auðum kjörseðli í stað þess að virkja kosningaréttinn til að svara þeim neyðarópum sem okkur berast frá stríðshrjáðum löndum. Ég neita einnig að trúa því að þjóðin ætli að kjósa aftur mann sem virðist með hjarta úr steini, en annað er ekki hægt að kalla forseta sem hefur ítrekað aftur og aftur gert mig aft- urreka af skrifstofu sinni og Bessa- stöðum með áskoranir og hjálp- arbeiðnir frá fólki sem verið er að limlesta og drepa fyrir framan augu okkar. Ég bið Guð að vekja þessa þjóð. Ósjálfstæðir Íslendingar Ástþór Magnússon ritar um kosningarnar ’Ég neita að trúa því aðfimmtungur íslensku þjóðarinnar sé svo tóm- hjartaður að hann ætli að skila auðum kjör- seðli. ‘ Ástþór Magnússon Höfundur er forsetaframbjóðandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.