Morgunblaðið - 30.06.2004, Blaðsíða 19
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 2004 19
w
w
w
.h
el
en
ar
ub
in
st
ei
n.
co
m
SUMARTILBOÐ: Öskjur með Extravagant, vatnsheldum Extravagant,
Generous og Spectacular möskurum nú fáanlegar á næsta útsölustað. Auk
maskarans eru sem gjöf 50 ml All mascara augnhreinsir og Collagenist
augnkrem í hverri öskju.
Tilboðsverð: 2.170 kr. en raunvirði er 3.802 kr. - og þú sparar sem
nemur fjórföldum virðisauka.
Þú færð það ekki betra.
EXTRAVAGANT
HÁRNÁKVÆMUR MASKARI SEM
MARGFALDAR AUGNHÁRIN
MÖGNUÐ AUGNHÁR, ÞÉTT, LÖNG OG AÐSKILIN.
Helena Rubinstein er sérfræðingur í augnháralitum.
Útsölustaðir: Ársól Efstalandi 26 Grímsbæ, Gullbrá Nóatúni, Snyrtivöruverslunin Glæsibæ, Hygea Kringlunni,
Hygea Laugavegi 23, Mist Spönginni, Sara Bankastræti 8, Sigurboginn Laugavegi 80, Andorra Strandgötu 32
Hafnarfirði, Bylgjan Hamraborg Kópavogi, Hygea Smáralind, GK snyrtistofa Kjarna Mosfellsbæ.
Landið: Jara Hafnarstræti 104 Akureyri, Bjarg Stillholti 14 Akranesi, Hilma Garðarsbraut 14 Húsavík, Konur &
Menn Hafnarstræti 9 Ísafirði, Myrra Austurvegi 4 Selfossi, Miðbær Miðstræti 14 Vestmannaeyjum.
ÁVAXTANEYSLA er góð for-
vörn gegn augnsjúkdómi sem get-
ur valdið blindu, að því er nið-
urstöður nýrrar rannsóknar gefa
til kynna. Á fréttavef BBC kemur
fram að vísindamenn við sjúkra-
hús í Boston í Bandaríkjunum
fylgdust með um 118 þúsund
manns í 12–18 ár og í ljós kom að
þeir sem borðuðu þrjá eða fleiri
skammta af ávöxtum á dag voru
36% ólíklegri til að veikjast af ald-
urstengdum augnsjúkdómi sem
veldur blindu en þeir sem borðuðu
minna en einn og hálfan skammt á
dag.
Um er að ræða rýrnun á net-
himnu augans og er það ástand
helsta orsök blindu hjá fólki yfir
65 ára aldri. Fyrri rannsóknir hafa
leitt í ljós að andoxunarefni, vít-
amín og steinefni eru forvörn gegn
sjúkdómnum og stórir skammtar
af C- og E-vítamíni, betakarótíni
og sinki geta seinkað þróun hans.
Þátttakendur í rannsókninni
voru 77.562 konur og 40.866 karlar
yfir 50 ára aldri, án sjúkdóms-
greiningar. Fólkið svaraði spurn-
ingum um mataræði og fæðubót-
arefni. Á rannsóknartímabilinu
greindust 329 konur og 135 karlar
með augnsjúkdóminn á frumstigi.
Í ljós kom að bananar og appels-
ínur reyndust sérstaklega vernd-
andi.
Vísindamennirnir drógu einnig
þær ályktanir að auk vítamínanna
í ávöxtunum hefðu trefjar, fól-
ínsýra og kalíum, sem ávextir inni-
halda, einnig góð áhrif á augn-
heilsuna.
HEILSA
Morgunblaðið/Jim Smart
Gott fyrir augun: Ávexti, sérstaklega banana og appelsínur er gott að
borða til að vernda augun gegn sjúkdómi sem valdið getur blindu.
Ávextir góðir
fyrir augun