Morgunblaðið - 30.06.2004, Blaðsíða 40
Morgunblaðið/ÞÖK
Það rennur upp stór dagur á morg-
un hjá Tönju og Marlon Pollock því
þá gefa þau út plötu og halda tón-
leika.
FRÆNDSYSTKININ Tanya Lind
og Marlon Lee Úlfur Pollock
mynda rafpoppdúettinn Anonym-
ous.
Næstkomandi fimmtudag kemur
út plata frá þeim og aðeins tveimur
vikum síðar er annarrar plötu að
vænta.
„Þetta er það efni sem við erum
búin að vera að safna í mörg ár,“
sagði Tanya í samtali við Morg-
unblaðið.
„Þetta er tónlistin sem hefur þró-
að okkur áfram að því sem við erum
í dag. Það er því kominn tími til að
gefa það út áður en við förum að
byrja á einhverju nýju.“
Anonymous fór í tónleikaferðalag
um Bandaríkin fyrir tveimur árum
og seldi þar yfir 300 diska með tón-
list sinni. Eitthvað af því efni verður
gefið út á þessum tveimur diskum
en það hefur ekki komið út áður hér
á landi.
Tanya segir tónlistinni vera raðað
niður á diskana tvo eftir takthraða.
„Á fyrri disknum verða rólegri
lög og á þeim seinni mun harðari,“
segir hún.
Plöturnar hafa ekki fengið nafn
og það stendur heldur ekki til.
„Ekki frekar en fyrri plötur
Anonymous munu þessar heita
nokkuð. Við viljum ekki vera að
gefa fólki fyrirfram tilbúna mynd af
því hvernig tónlistin er. Við viljum
að fólk búi til sína eigin mynd út frá
því sem það heyrir,“ segir Tanya.
Dúettinn gefur út tónlist sína
sjálfur og verða væntanlegar plötur
til sölu hjá 12 Tónum á Skólavörðu-
stíg og versluninni Ósóma við
Laugaveg.
Útgáfutónleikarnir fara fram á
Sirkus á fimmtudagskvöldið milli
klukkan 21 og 23. Auk Anonymous
koma fram tónlistarmennirnir
Skurken og Prins Valíum.
„Við ætlum að leika tónlist af
nýju plötunni í bland við annað
efni,“ segir Tanya.
Aðspurð hvað sé framundan hjá
Anonymous segir Tanya þau ætla
að spila eins og þau nenna.
„Við höfum mest staðið sjálf fyrir
uppákomum og munum halda því
áfram samhliða því að semja nýtt
efni.“
Auk þess stefnir sveitin á spila-
mennsku í Bretlandi í sumar þó
ekkert sé enn staðfest í þeim efn-
um.
Tónlist | Útgáfa og tónleikar með
Anonymous
Nafnlausar plötur
Útgáfutónleikar Anonymous fara
fram á Sirkus á fimmtudags-
kvöldið milli klukkan 21 og 23.
40 MIÐVIKUDAGUR 30. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÁLFABAKKI
Kl. 5.30, 8 og 10.30.
Með hinum eina sanna og ofursvala
Vin Diesel. Geggjaður hasar og
magnaðar tæknibrellur.
SÝND Í LÚXUS VIP Í SAL KL. 8 OG 10.30.
Þær eru illgjarnar. Hún er ný.
Og fljótlega fær hún alveg nóg af þeim.
Kvikmyndir.is
KRINGLAN
Kl. 6, 8 og 10.10.
AKUREYRI
Kl. 8 og 10.
V I N D I E S E L
DV
HL Mbl
Sýnd kl.5.30.
Kvikmyndir.com
Ó.H.T Rás 2
HL Mbl
Sýnd kl. 6 og 8.Sýnd kl. 6 og 9.
SV MBL
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 10. Bi 14.
Mamma hans Elling
Ó.H.T Rás 2
SV Mbl
Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15.
Með hinum eina sanna og ofursvala Vin Diesel.
Geggjaður hasar og magnaðar tæknibrellur.
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 8 og 10.30.Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
"Snilld!" - SK, Skonrokk
"...ég man ekki eftir að hafa
séð betri heimildarmynd um
hljómsveit á ævinni. Búist við
heljarinnar skemmtun." - BÖS,
Fréttablaðið
V I N D I E S E L
ill ! - ,
"... i fti f
t i i il
lj it i i. i t i
lj i t ." - ,
tt l i
yfir 7.000 miðar seldir
mið. 30. júní kl. 19.30 upps. - fim. 1. júlí kl. 19.30 upps.
fös. 2. júlí kl. 19.30 upps. - sun. 4. júlí kl. 17.00 upps.
lau. 10. júlí kl. 16.30 upps. - lau. 10. júlí kl. 19.30 upps.
fim. 15. júlí kl. 19.30 & fös. 16. júlí kl. 19.30.
MIÐASALAN er opin á fame.is,
á þjónustuborði Smáralindar
og í síma 528 8008.
Ósóttar pantanir seldar daglega
!
"
#
$
%
&
"'( )
*%
!
"
$"%
'(
* #
!
, - # " .
%
+
%
,
%
-
.
/
0
%
1
2
+3
+-
4
+4
+.
+,
+/
+1
!
5
-
5
.
5
.
.
,
/
5
0
,
4
+-
,
+,
-
1
,
2
!" ##$
%
678*!!9:9;<!7679=!
'9:
*6!
678*!!9=!
'9;<!7679:9:
*6!9>*
<679?
9 67
67:9:
*6!9<67
;<!767
678*!!9;<!7679=!
' <679<679 67
<679?
9 67
<679?
9 67=!
' ;<!767
678*!!9;<!7679:9
!*
678*!!9=!
' 678*!!
<67
;<!767
678*!!
<67
678*!!9;<!767
<67
<67
ÞÓTT The Cure hafi lengi verið í
uppáhaldi hjá undirrituðum hefur
sú aðdáun blessunarlega ekki verið
blind. Þótt snillingur sé að mörgu
leyti hefur Robert karlinn Smith
stigið allnokkur feilspor á ferlinum
og sent frá sér plötur sem satt að
segja verða sorg-
legar í samanburði
við sterkustu plöt-
ur The Cure.
Tvær síðustu plöt-
ur sveitarinnar
Wild Mood Swing
og Bloodflowers hafa því miður
fallið fremur í flokk sorgarinnar en
snilldarinnar. En nú horfir allt til
betri vegar. Smith virðist einbeitt-
ari en hann hefur verið lengi og
áttar sig einhvern veginn svo vel á
því hvað það er sem gerir hann svo
dæmalausan í rokksögunni. Og
hann hefur komist að þeirri nið-
urstöðu að rokkið það læknar.
Endurhæfingin hefur nefnilega átt
sér stað undir handleiðslu hins
rokkættaða upptökustjóra, Ross
Robinson (Korn, Slipknot), sem
virðist hafa vitað alveg uppá hár
hvernig blása ætti lífi í The Cure.
Útkoman er því rokkaðri plata en
þær síðustu, með betri lögum –
einn og einn bömmur læðist reynd-
ar inná milli – og áhugaverðari
textum. Sem sé alveg vel yfir með-
allagi góð Cure-plata sem unnend-
ur sveitarinnar, bæði gamlir og ný-
ir þurfa að eiga.
Nú er rétti tíminn til að flytja
The Cure inn til Íslands. Einhver?
Rokkið
læknar
TÓNLIST
Erlendar hljómplötur
THE CURE / The Cure
Robert Smith búinn að ná áttum, hefur
fundið lækninguna á ný á þessari spán-
nýju og rokkuðu Cure-plötu.
Skarphéðinn Guðmundsson
SÚ FREGN hefur skotið upp koll-
inum í fjölmiðlum víða um heim að
Björk Guðmundsdóttir muni koma
fram á opnunarhátíð Ólympíu-
leikanna í Aþenu sem fram fara í
ágúst næstkomandi.
Ekkert hefur þó fengist staðfest
um sannleiksgildi frásagnarinnar,
hvorki frá talsmönnum söngkonunnar né aðstandendum Ólympíuleikanna.
Á fréttavef Norska ríkisútvarpsins www.nr.no segir að Björk standi nú í
ströngum æfingum vegna þess að lagið sem hún ætli að flytja eigi að vera
á forn-grísku þeirri sem töluð var þegar fyrstu Ólympíuleikarnir voru
haldnir.
Sem fyrr segir hefur ekkert verið staðfest í þessum efnum og verða
áhugasamir því bara að bíða og sjá.
Björk á
Ólympíu-
leikunum?
Morgunblaðið/Einar Falur
SÖNGVARINN David Bowie hefur
boðað forföll á tónlistarhátíðina í
Hróarskeldu sem fram fer í sam-
nefndum bæ í Danmörku um
helgina.
Það er samkvæmt læknisráði sem
Bowie tók ákvörðun um að mæta
ekki en hann var fyrr í vikunni lagð-
ur inn á sjúkrahús í Þýskalandi með
verki í öxl sem orsökuðust af
klemmdri taug. Hann þurfti jafn-
framt að hætta við tónleika í Prag í
síðustu viku af heilsufarsástæðum.
Talsmenn söngvarans, sem er 57
ára, harma ákvörðunina sem og að-
standendur Hróarskelduhátíðarinn-
ar en Bowie átti að vera stærsta
númerið næstkomandi föstudags-
kvöld á svokölluðu appelsínugula
sviði, sem er það stærsta á hátíð-
inni.
Reuters
David Bowie treystir sér ekki til að
leika á Hróarskelduhátíðinni í ár.
TENGLAR
.....................................................
www.roskildefestival.dk
Bowie hættir við Hróarskeldu