Morgunblaðið - 04.07.2004, Qupperneq 20
20 SUNNUDAGUR 4. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
T
ónlistarmaðurinn
kunni Rafn Jóns-
son lést á heimili
sínu í Hafnarfirði
sunnudaginn 27.
júní síðastliðinn
aðeins 49 ára að
aldri eftir langvar-
andi veikindi. Rafn, eða Rabbi eins og
hann var jafnan kallaður, var afkasta-
mikill tónlistarmaður og útgefandi
hin seinni ár, var í nokkrum vinsæl-
ustu hljómsveitum landsins og lék inn
á fjöldann allan af plötum auk þess
sem hann gaf út allmargar plötur
sjálfur.
Rabbi fæddist á Suðureyri við Súg-
andafjörð 8. desember 1954, lauk
námi við Gagnfræðaskólann á Ísafirði
og hóf nám í kjötiðn við Iðnskólann.
Hann byrjaði snemma að berja á
trommur, var í hljómsveitinni Ýr, sem
síðar varð Grafík, tók þátt í að stofna
Sálina hans Jóns míns og síðar Bítla-
vinafélagið, lék með hljómsveitinni
Galíleó og gaf út tvær sólóplötur á
ferlinum. Sú þriðja kemur út í næsta
mánuði, en hann hafði unnið að henni
síðustu mánuði.
Rabbi greindist með MND, hreyfi-
taugahrörnun, í ársbyrjun 1988 og
svo fór að hann lagði kjuðana á hill-
una en varð umsvifamikill í upptöku-
stjórn og útgáfu. Frá 1991 til 1994 átti
hann og rak upptökustúdíóið Hljóð-
hamar og árið 1994 stofnaði hann út-
gáfufélagið R&R músík sem hann rak
til dauðadags.
Rabbi byrjaði snemma í tónlistinni
og fyrsta hljómsveit sem hann spilaði
með var Náð. Síðan kom Ýr sem
starfaði á Ísafirði á áttunda áratugn-
um og varð síðan að hljómsveitinni
Grafík. Rúnar Þórisson lék með
Rabba í Ýr, síðan í Grafík og í fjöl-
mörgum verkefnum önnur.
Haukar, Ýr og Grafík
Rúnar Þórisson: „Við Rabbi kynnt-
umst í Reykjavík 1976 þegar okkur
var boðið að vera í hljómsveitinni
Haukum með þeim Gunnlaugi Mel-
steð og Magnúsi Kjartanssyni. Þá var
hann búinn að vera í Ýr og Náð fyrir
vestan og ég í Dögg og Dýnamit og
fleiri hljómsveitum. Okkur fannst það
mikil upphefð að vera boðið að spila
með mönnum eins og Magnúsi Kjart-
anssyni og Gunnlaugi Melsteð því
þeir voru eldri en við og þekktir tón-
listarmenn.
Við spiluðum með Haukum inn á
plötuna Fyrst á röngunni sem kom út
1976, en um áramótin flosnaði hljóm-
sveitin upp og Rabbi fór vestur. Hann
vildi fá mig með og ég ætlaði vestur,
var með flug til Ísafjarðar í janúar
1977 en komst ekki vegna ófærðar.
Ég fór því ekki í bili, spilaði með
Paradís í smátíma og Rabbi áfram
með Ýr, en um páskana fór ég vestur
til að kanna aðstæður og líkaði svo vel
við Ísafjörð og strákana í Ýr að ég
settist að fyrir vestan. Þetta var frá-
bær tími og við Rabbi urðum ævar-
andi vinir, vorum sem bræður upp frá
því.
Ýr var aðallega í að spila lög eftir
aðra en þó með þann metnað að við
vorum að taka lög með Gentle Giant
og fleiri þungum hljómsveitum,
reyndum að spila þau lög á sveitaböll-
um sem gekk ekki of vel. Ég fór suður
í skóla eftir að hafa verið fyrir vestan í
tvö eða þrjú ár og Rabbi stofnaði
Danshljómsveit Vestfjarða á meðan,
létti upp prógrammið eins og nafnið
ber með sér. Það komu ansi margir
við sögu í þeirri hljómsveit, meðal
annars ég um tíma. Haustið 1980 fór
Rabbi svo til Svíþjóðar að læra hjá
Pétri Östlund og var um veturinn, en
um jólin 1980 kom hann heim í jólafrí
og við fórum í félagsheimilið í Hnífs-
dal að gera tilraunir með músík og
tókum upp á TEAC átta rása tæki.
Grafík var aldrei formlega stofnuð ef
svo má segja, en varð til í kringum
þessar tilraunir.
Við vorum ekkert að spá í að gefa
þetta út en þegar við vorum komnir
með töluvert af músík ákváðum við að
gefa þetta út og stofna hljómsveit í
framhaldi. Þessar upptökur eru nátt-
úrlega barn síns tíma, við vorum und-
ir miklum áhrifum frá Cure á þessum
tíma.
Rabbi fór aftur til Svíþjóðar í árs-
byrjun 1981 til að klára námið og ég
hélt áfram að vinna smávegis í plöt-
unni og hann líka úti. Við vorum orðn-
ir svo vel samstilltir að ég samdi lag
hér heima og hann texta úti án þess
að hafa heyrt lagið og það smellpass-
aði. Við lukum svo við plötuna sum-
arið 1981 og hún kom út um haustið.
Mér er enn minnisstætt þegar við sát-
um við eldhúsborðið heima hjá mér
og teiknuðum þetta merkilega um-
slag Út í kuldann, en við vorum þá
báðir fluttir suður og hljómsveitin öll
reyndar. Platan kom út í þúsund ein-
tökum, en við gáfum þetta út sjálfir.“
Í Grafík á þessum tíma voru auk
Rabba og Rúnars þeir Örn Jónsson
og Vilberg Viggósson, sem báðir voru
í Ýr, og Ólafur Guðmundsson sem lést
fáum árum síðar úr hvítblæði. Þegar
önnur plata Grafík var tekin upp var
Ómar Óskarsson úr hljómsveitinni
Fress söngvari. Hann söng með sveit-
inni sumarið 1984 fyrir vestan til að
fjármagna plötu númer tvö, sem seld-
ist ekki eins vel og Út í kuldann. Þeg-
ar Ómar hætti í hljómsveitinni tók við
leit að nýjum söngvara, fyrst gekk
Helgi Björnsson til liðs við þá félaga
og síðan Andrea Gylfadóttir.
Rúnar Þórisson: „Það var hug-
mynd Rabba að fá Helga inn sem
söngvara, þeir voru æskufélagar að
vestan. Hann hringdi í Helga og
spurði hvort hann væri ekki til í að
syngja með okkur og eftir að hafa
hugsað sig um í tvo daga sló Helgi til
og var á ferð og flugi næstu mánuð-
ina, því hann kom vestur á æfingar og
til að syngja með okkur á böllum, en
var líka önnum kafinn í leiklistinni
fyrir sunnan.“
Grafík starfaði með hléum fram til
þess að Rúnar fór utan í framhalds-
nám í klassískum gítarleik. Síðustu
tónleikar Grafíkur voru um áramótin
1987–88, en Andrea Gylfadóttir hafði
þá sungið með sveitinni síðan 1986 og
inn á Grafíkplötuna Leyndarmál.
Rúnar átti eftir að starfa með Rabba
aftur, gerði meðal annars með honum
jólaplötu 1998 og svo plötuna Í álög-
um árið 2000, en á henni komu einnig
við sögu þau Helgi Björnsson og
Andrea Gylfadóttir.
Bítlavinafélagið og Sálin hans Jóns
míns
Áður en Grafík hætti tók Rabbi
þátt í að stofna Bítlavinafélagið með
Jóni Ólafssyni, en sú hljómsveit varð
gríðarlega vinsæl. Síðan stofnuðu
þeir Jón saman aðra hljómsveit sem
varð ekki síður vinsæl, Sálina hans
Jóns míns.
Jón Ólafsson: „Krunkið hjá okkur
Rabba byrjaði sennilega í desember
1985 þegar ég var að setja upp nem-
endamót í Versló. Þemað var sjöundi
áratugurinn og í sýningunni spiluð
lög með Bítlunum, Hollies, Beach Bo-
ys og svo framvegis. Mótið átti að
verða í byrjun febrúar og ég var að
leita að mönnum til að spila með mér í
því þegar ég kom í hljóðfæraverslun
Paul Bernburg þar sem hann var að
vinna. Ég vissi að hann var trommu-
leikari en þekkti hann ekkert af viti
þó ég hafi talað við hann fyrir útvarp
einu sinni. Mér fannst hann þó flottur
og skemmtilegur gæi og spurði hann
hvort hann væri til í að spila með mér
á skólasýningu og hann var til í það.
Hann tók með sér Harald Þorsteins-
son á bassa og ég var með Stefán
Hjörleifsson vin minn á gítar og svo
fékk ég Eyjólf Kristjánsson á kassa-
gítar, en hann þekkti ég ekkert fyrir
þetta, vissi bara að hann kunni á
kassagítar.
Á eftir sýningunni er alltaf haldið
ball og krakkarnir spurðu hvort við
værum ekki til í að spila líka á ballinu
svo við æfðum nokkur lög í viðbót og
gekk bara vel. Það næsta sem gerist
er að Eyfi er beðinn um að halda
Lennon-kvöld á Gauknum og þar sem
hann var hættur í Hálft í hvoru varð
úr að við tókum það að okkur, enda
höfðum við ekkert sérstakt fyrir
stafni annað. Svo þegar við vorum
búnir að æfa upp ein þrjátíu Lennon-
lög vorum við bara komnir með ansi
góða dagskrá, yfir fimmtíu lög, og
fórum að spila þessi lög með góðum
árangri, en eins og sjá má var það
skemmtileg röð tilviljana sem kom
okkur af stað. Við náðum vel saman,
varð vel til vina, og sérstaklega fannst
mér mikið til þess koma hvað Rabbi
var vel heima í tónlistinni, hann var
plötusafnari eins og ég, og við hitt-
umst oft til að hlusta á gamla músík.
Við héldum fleiri Lennon-kvöld og
alltaf fyrir fullu húsi, meira að segja
fór Rabbi með okkur á heimaslóðir
fyrir vestan og þar var líka fullt hús.
Þegar leið að sumri ákváðum við að
prófa að spila yfir sumarið, fara í
sveitaböllin, og þá fannst okkur að við
þyrftum að finna nafn á hljómsveitina
og Halli stakk upp á Bítlavinafélag-
inu, sem okkur fannst mátulega hall-
ærislegt og gott nafn.
Hljómsveitin varð vinsælasta ball-
sveit landsins og ekki minnkuðu vin-
sældirnar þegar út kom platan 12 ís-
lensk bítlalög. Næsta platan, Konan
sem stelur Mogganum, varð ekki eins
vinsæl og Jón segir að það hafi líklega
verið vegna þess að þeir hafi hlustað
of mikið á gagnrýnendur sem höfðu
allt á hornum sér með hljómsveitina.
Við Rabbi vorum þó búnir að velja
lög á næstu plötu sem átti að vera
framhald af 12 íslenskum bítlalögum.
Hann notaði þann lista svo fyrir
hljómsveitina Sixties sem varð ekki
síður vinsæl en Bítlavinafélagið.
Bítlavinafélagið tók sér síðan frí
Ótrúlegur maður
Tónlistarmaðurinn og útgefandinn Rafn Ragnar
Jónsson, Rabbi, lést fyrir viku langt fyrir aldur
fram. Árni Matthíasson fékk nokkra félaga Rabba
til að segja frá samstarfinu við hann.
Björg Sveinsdóttir
Rabbi með liðsmönnum í Grafík sem leika munu á tónleikum á Ísafirði í vikunni. F.v.: Haraldur Þorsteinsson, Hjörtur How-
ser, Rafn Jónsson, Egill Örn Rafnsson, Helgi Björnsson og Rúnar Þórisson. Myndin er tekin skömmu fyrir andlát Rabba.
Björg Sveinsdóttir
Rabbi tekur við blómum á tónleikum í Íslensku óperunni haustið 1991, en þá kvaddi hann trommusettið þó hann hafi hald-
ið áfram að spila á rafmagnstrommur.
Grafík undir það síðasta, Baldvin Sigurðsson, Rafn Jónsson, Andrea Gylfadótt-
ir, Rúnar Þórisson og Hjörtur Howser.